Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 89
ÉG ER NÚNA AÐ VINNA
SEX AUGLÝSINGAR
FYRIR MANCHESTER CITY OG
CHELSEA OG AKKÚRAT NÚNA ER
ÉG AÐ VINNA MEÐ PHIL FODEN,
SERGIO AGUERO OG EDERSON.
Jakob
Bræðurnir í Stokkhólmi í febrúar í fyrra en þótt COVID-19 hafi truflað kvikmyndabransann geta þeir ekki kvartað yfir verkefnaskorti. MYND/AÐSEND
Nicki Minaj vildi fá Jónas í heimsókn og þá ræddu þau ýmislegt og hann
segir kynnin af henni óneitanlega hafa verið lífsreynslu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jakob, Patricia og Jónas við tökur á myndbandinu Lost fyrir Jón Jónsson í
London þar sem þau unnu mikið þrjú saman áður en Jónas flutti til L.A.
en Jakob var einmitt staddur í L.A.
á þessum tíma og voru þeir bræður
fengnir til að mæta á tökustað til að
gefa ráð og leggja línur fyrir töku-
liðið, þannig að eftirvinnslan yrði
þægilegri.
„Megan Thee Stallion er með
þeim stærstu í kvennarappdeild-
inni og vinnan fyrir hana varð
til þess að ég var fenginn til þess
að klippa myndbandið við „Hot
Girl Summer“ með henni og Nicki
Minaj,“ segir Jónas.
„Þetta var stressandi törn,“ segir
Jónas um gerð myndbandsins fyrir
Nicki Minaj þar sem gekk á ýmsu.
„Þegar ferlið var langt komið fékk ég
skilaboð frá framleiðandanum um
að Nicki vildi hitta mig heima hjá
sér. Ég hafði áhyggjur af því hvort
ég væri nógu vel undirbúinn en að
lokum gekk þetta allt upp og hún
var ánægð. Við spjölluðum heil-
mikið og þetta var lífsreynsla og
gaman að fá tækifæri til að kynnast
henni aðeins.“
Stöngin inn
Jakob bætir við að þeim bræðrum
hafi tekist ótrúlega f ljótt að hasla
sér völl en meðal þeirra sem hann
hefur unnið fyrir í London eru
knattspyrnufélögin Manchester
City og Chelsea auk þess sem bræð-
urnir hafa gert tónlistarmyndbönd
fyrir sjónvarpsþætti Jimmy Kim-
mel, Ellen og Kelly Clarkson.
„Ég er núna að vinna sex aug-
lýsingar fyrir Manchester City og
Chelsea og akkúrat núna er ég að
vinna með Phil Foden, Sergio Agu-
ero og Ederson hjá Manchester City.
Það sem ég er að gera fyrir Chelsea
snýst um Tammy Abraham, Timo
Werner og Thiago Silva. „Ég er Liver-
pool-aðdáandi þannig að ég er að
bíða eftir því að heyra frá þeim,“
segir Jakob, og brosir glettnislega,
um það sem hann myndi telja topp-
inn í þessum málum.
„Það var líka gaman að gera
myndband sem gefið var út þegar
Lewis Hamilton varð heimsmeistari
í F1. Þetta var snúið verkefni og ég
þurfti að vinna með mikið af göml-
um tökum þar sem verkefnið fólst í
því að láta þær renna saman í eina
heild og staðsetja Lewis á sama stað
í rammanum. Þetta kom skemmti-
lega út og gaman að fá þetta tæki-
færi.“
Spennandi tímar
Síðasta ár reyndist kvikmyndaiðn-
aðinum sérlega þungt en bræðurnir
segjast þó hvorugur geta kvartað
yfir verkefnaskorti. „Hvað mig varð-
ar er 2020 besta árið hingað til og ég
hafði fullt að gera,“ segir Jónas sem
undir lok árs kom að gerð bíómynd-
ar en hugurinn stefnir enn frekar í
þá átt. „Síðan eru bara spennandi
tímar fram undan og önnur bíó-
mynd í pípunum og svo bara sjáum
við til en markmið ársins er að byrja
að vinna meira í bíómyndum.“
Jakob segist hafa haft mjög mikið
að gera alveg frá árslokum 2019.
„Þótt COVID hafi ekki verið gott
fyrir bransann almennt þá hefur
mikilvægi eftirvinnslunnar aukist
mikið vegna takmarkana sem sótt-
varnareglur setja um fjölda fólks
sem hægt er að hafa á tökustað
samtímis. Í eftirvinnslunni, hins
vegar, situr einn maður í einangrun
heima hjá sér fyrir framan tölvu-
skjá og þarf ekki einu sinni að setja
upp grímu!“ segir Jakob um augljósa
kosti þess að geta unnið einn.
toti@frettabladid.is
MÁNUDAGA
KL. 20.30
KARLMENNSKAN
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur
með áherslu á karla, karlmennsku
og jafnréttismál í umsjón Þorsteins V.
Einarssonar. Tekin eru fyrir málefni á
borð við klám, ofbeldi gegn körlum,
sjálfsvíg og auðvitað karlmennskan
sjálf.
Þátturinn er á dagskrá alla
mánudaga kl. 20.30
L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I ÐL Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 51L A U G A R D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1