Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 76
Konráð á ferð og flugi og félagar 440 „Og hvað eigum við nú að gera við þessa gulu og grænu þríhyrninga?,“ spurði Kata snúðug. „Ég sé átta gula og átta græna þríhyrninga. Þetta er nú ekki erfið þraut,“ bætti hún við roggin. „Þrautin er ekki alveg svona einföld,“ sagði Lísaloppa. „Við eigum líka að telja alla þá þríhyrninga sem við getum séð út úr myndinni, líka þá þríhyrninga sem verða til úr öðrum.“ „Þú meinar ekki bara þessa átta gulu og átta grænu?,“ spurði Kata. „Líka þá sem verða til, eins og einn gulur plús sá græni við hliðina á honum og svo framvegis?“ „Já, einmitt,“ sagði Lísaloppa. Það hnussaði í Kötu. „Auðvitað, gera manni lífið erfiðara en nauðsynlegt er.“ Konráð horfði á myndina og byrjaði að telja. Hann fann að hann ruglaðist oft og var farinn að sjá þríhyrninga alls staðar í myndinni og tapaði tölunni fljótlega. „Úff, það eru endalausir þríhyrningar í þessari mynd,“ sagði hann og dæsti. „Ekki endalausir,“ sagði Lísaloppa. „En mér sýnist þeir vera ansi margir.“ Getur þú talið hvað eru margir þríhyrningar í þessari mynd? ? ? ?? ? Lausn á gátunni Það eru fjörutíu og fjórir þríhyrningar i myndinni? Kári Rafnar Eyjólfsson, tíu ára, sigraði í Ljóðakeppni grunnskóla Kópavogs. Hann kveðst hafa verið smá hissa fyrst. Yrkir þú mikið, Kári Rafnar? Bara stundum. Í skólanum eða heima? Ég sem ljóðin heima en mér er kennt það í skólanum. Englabróðir er frekar sorglegt ljóð. Já, Sverrir Rafn bróðir minn dó áður en ég fæddist en ég sakna hans samt. Samdir þú ljóðið fyrir keppnina? Ég gerði hluta af því meðan mamma fór að gröf bróður míns. Svo bætti ég við það og sendi í keppnina. Hugsar þú oft um hvernig lífið væri ef Sverrir Rafn væri lifandi? Já, en ég reyni að særast ekki of mikið. Áttu f leiri systkini? Tvo bræður, annar er 30 ára og hinn 21. Ég er eini krakkinn á heimilinu núna. Hver eru helstu áhugamálin þín? Fótbolti og handbolti. Ég er nýbyrj- aður í handbolta eftir hlé en hef verið í fótbolta frá því ég var fimm eða sex ára. Hvert er uppáhaldsfagið í skól- anum? Líklega samfélagsfræði, mér gengur best þar. Lestu mikið? Ágætlega mikið, oft þegar ég fer að sofa. Ég man mest eftir nýjustu bók- inni um Kidda klaufa. Núna er ég að lesa bók um Klopp, þjálfara Liver- pool. Hefurðu lent í ævintýrum? Ég hef oft farið til útlanda að heimsækja bróður minn þar, hann er stöðugt að f lytja en er í Þrándheimi núna. Svo var ævintýri þegar bíllinn hans pabba festi sig í drullu. Reyni að særast ekki of mikið „Ég sem ljóð heima en mér er kennt það í skólanum,“ segir Kári Rafnar. Englabróðir Stóri bróðir ég sakna þín. Eitt það sem ég þrái heitast er bara að sjá þig, bara einu sinni alla vega. En ég veit að þú ert alltaf hjá mér og gætir mín í gegnum skýin. Nú værir þú tólf ára, tveimur árum eldri en ég. Þú myndir gæta mín samt, þótt við hefðum fengið að vera hér samtímis. En nú gerir þú það í gegnum skýin. Það er skrítin tilfinning að sakna þín án þess að hafa hitt þig. Mér finnst ég hafa hitt þig Í gegnum minningar þeirra sem þekktu þig best og við elskum báðir. Þú hést Rafn, ég heiti Rafnar því ég gæti krummans þíns. Gestur á veitingahúsi: „Þjónn. Ég vil gjarnan fá það sem maðurinn þarna er að borða.“ Þjónninn: „Ég skal reyna að ná diskinum af honum en ég er ekki viss um að hann verði ánægður með það.“ Gunnar: „Pabbi, er Kyrrahafið alltaf kyrrt?“ Pabbi: „Geturðu ekki spurt að ein- hverju gáfulegra?“ Gunnar: „Jú, hvenær dó Dauða- hafið?“ Skúli: Nú get ég varið mig ef ein- hver ræðst á mig. Ég er byrjaður að æfa karate og er þegar búinn að brjóta múrstein með hnefanum. Stebbi: Það er flott hjá þér, en er ekki frekar sjaldgæft að múrsteinar ráðist á fólk? Málfræðikennarinn var að reyna að útskýra muninn á nútíð og þátíð fyrir Júlíusi og vildi ekki gefast upp. „Júlíus minn,“ sagði hann. „Hvaða tíð er „ég borða““? Júlíus: „Það er pottþétt máltíð.“ Brandarar Hæ, gosi! Spilararnir eru tveir. Annar stokkar spilin og gefur, skiptir spilunum jafnt þannig að hvor sé með 26 spil. Best er að gefa þrjú og þrjú í einu. Spilararnir hafa bunkana á hvolfi fyrir framan sig og skiptast á að fletta upp einu spili, hvor af sínum bunka, og leggja það á mitt borðið í kastbunka. Sá sem ekki gaf byrjar. Þegar spilin tía, gosi, drottning kóngur og ás koma upp keppast spilararnir um að gefa eftirfarandi merki. n Tía: Skella flötum lófa ofan á bunkann. n Gosi: Hrópa „Hæ, gosi.“ n Drottning: Blístra. n Kóngur: Bera hönd að enni að hermannasið. n Ás: Standa upp. Sá spilari sem er fyrri til að gefa merki tekur allan kastbunkann og bætir honum neðst í eigin bunka. Ef báðir eru alveg jafn fljótir að gefa merki er bunkinn látinn liggja áfram á borðinu. Sá vinnur sem endar með allan bunkann í lokin. Spilið Öll þessi fimm spil hafa sitt hlutverk og eru þýðingarmikil í spilinu Hæ gosi! 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.