Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 46
Suzuki bílar • Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • 568 5100
Starfsmaður óskast í
varahlutadeild Suzuki!
Leitum að vinnusömum, jákvæðum og metnaðar-
fullum einstakling í varahlutadeild Suzuki.
Hæfniskröfur:
Almennur áhugi og þekking á bílum eða reynsla
sem nýtist í starfi.
Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir því að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá fyrir
25. febrúar á netfangið varahlutir@suzuki.is
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að talnaglöggum og þrautseigum einstaklingi sem er
tilbúinn til að leiða verkefni kjara- og réttindasviðs. Sviðið fæst m.a. við ráðgjöf og rannsóknir á sviði
kjaramála auk kjarasamningsgerðar við stofnanir sem hjúkrunarfræðingar starfa við.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á kjaramálum, búa yfir ríkri þjónustulund og hafa góða
þekkingu á íslenskum vinnumarkaði og opinberri stjórnsýslu.
Sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
leitar að öflugum liðsmönnum
• Þjónusta við félagsmenn
• Greining og úrvinnsla tölulegra gagna
• Kjararannsóknir
• Stýrir gerð kjara- og stofnanasamninga
• Vinna innan samstarfsnefnda
• Frétta-, greina-, og skýrsluskrif,
kynningarmál og fræðsla
• Þátttaka í öðrum verkefnum félagsins
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Háskólamenntun sem nýtist vel í starfi
• Farsæl reynsla af kjarasamningagerð nauðsynleg
• Mikil færni í tölfræðigreiningu og gagnavinnslu
• Þekking og áhugi á samningatækni æskileg
• Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
• Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
• Leiðtogahæfileikar
• Áhugi á og færni í teymisvinnu
• Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Menntun, reynsla og hæfni
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2021. Umsóknum skal skila rafrænt ásamt ferilskrá og kynningarbréfi á
formadur@hjukrun.is. Um er að ræða 100% starf sem fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í gegnum netfangið
gudbjorg@hjukrun.is
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þjónar rúmlega 4.500 félagsmönnum út um allt land. Hjá okkur starfar öflugur
hópur fólks sem hefur það hlutverk m.a. að vinna að árangursríkri og öruggri heilbrigðisþjónustu með eflingu
hjúkrunar, hagsmunagæslu á sviði kjara- og réttindamála hjúkrunarfræðinga ásamt því að vinna að aukinni
þátttöku þeirra í þróun og stefnumótun á hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu. Gildi félagsins eru ábyrgð, áræðni og
árangur og tekur ráðning mið af þeim. Nánari upplýsingar um félagið má finna á vefsíðu þess www.hjukrun.is
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að ráða ritstjóra í fullt starf. Í boði er fjölbreytt,
áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir m.a. á fagmennsku, samskiptahæfni og öguð vinnu-
brögð. Leitað er eftir áhugasömum, frjóum og hæfum einstaklingi sem tekur frumkvæði að þróun
Tímarits hjúkrunarfræðinga og annarri útgáfu á vegum félagsins.
Ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga
Ritstjórn og ábyrgð á faglegu og félagslegu
efni tímaritsins auk reksturs þess, greinaskrif
og önnur útgáfu- og kynningarmál á vegum
félagsins.
Helstu verkefni
• Háskólamenntun og farsæl starfsreynsla
• Reynsla af útgáfu tímarits og ritstjórn æskileg
• Mjög gott vald á íslensku og færni í textaskrifum
• Góð enskukunnátta og kunnátta í einu
Norðurlandamáli
• Góð tölvukunnátta
• Metnaður og frumkvæði
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni
• Kunnátta og reynsla af nýtingu samfélagsmiðla
Menntun, reynsla og hæfni
Lindarbros tannlæknastofa
- aðstaða til leigu.
Aðstaða til leigu á glænýrri tannlæknastofu, Lindarbros;
staðsett að Bæjarlind 12, 2 hæð, sem opnuð var í desember
2020!
Húsnæðið er allt ný innréttað og hið glæsilegasta í alla
staði. Tannlæknastofan er vel staðsett í miðju Stór-Reykja-
víkursvæðisins, aðkoma góða og bílastæðamál til fyrir-
myndar. Stór lyfta er í sameign og hjólastólaaðgengi gott.
Húsnæðið er ekki eingöngu hugsað fyrir tannlækna, heldur
einnig fyrir aðra heilbrigðistengda þjónustu, e.o. lækna,
sjúkraþjálfara, kírópraktóra og nuddara.
Áhugasamir aðilar geta sent fyrirspurn á;
lindarbros@lindarbros.is
Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá
Sjálfsbjargarheimilinu
Helstu verkefni og ábyrgð
Að veita skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra félags-
ráðgjafameðferð og stuðning til þess að takast á við
afleiðingar veikinda, slysa og hreyfihömlunar. Stuðla að
og auka þátttöku þeirra í samfélaginu. Veita skjólstæð-
ingum og fjölskyldum þeirra upplýsingar um félagsleg
réttindi. Sinna málastjórn hvað varðar að tengja saman
ólík þjónustukerfi og stuðning við hvers konar aðrar
aðstæður sem upp geta komið. Þátttaka í þverfaglegum
teymum þar sem náið samstarf er á milli heilbrigðis-
stétta.
Menntun og hæfniskröfur
• Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa
• Þekking á endurhæfingu er kostur
• Þekking og reynsla af því að vinna með fjölskyldum
er kostur
• Fjölbreytt starfsreynsla á sviði félags- og/ eða heil-
brigðisþjónustu
• Faglegur metnaður og einlægur áhugi á félagsráðgjöf
í heilbrigðisþjónustu
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum
• Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í
þverfaglegu teymi
• Færni til að vinna sjálfstætt og skipuleggja verkefni
Um er að ræða 80-100% stöðu.
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn með upplýsingun um menntun og starfsferil
ásamt afriti af prófskírteini og starfsleyfi berist til
Þórdís R. Þórisdóttur framkvæmdastjóra Sjálfsbjargar-
heimilisins á netfangið thordis@sbh.is fyrir mánudaginn
15. febrúar 2021.
Laun ráðast af kjarasamingum Félagsráðgjafafélags Ís-
lands við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Sjálfsbjargarheimilið rekur endurhæfingu og hjúkrun fyrir hreyfi-
hamlaða í Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12, Rvk.
Á Sjálfsbjargarheimilinu starfa um 70 manns og hefur það verið
rekið frá árinu 1973. Ýmis starfsemi fer fram innan Sjálfsbjargar-
heimilisins og vinnustaðurinn samanstendur af fjölbreyttum
starfsmannahópi. Sjálfsbjargarheimilið var hástökkvari í könn-
unni um Stofnun ársins fyrir árið 2020 og er búið að innleiða
vinnutímastyttingu.
Erum við
að leita að þér?
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 6 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R