Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 46

Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 46
Suzuki bílar • Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • 568 5100 Starfsmaður óskast í varahlutadeild Suzuki! Leitum að vinnusömum, jákvæðum og metnaðar- fullum einstakling í varahlutadeild Suzuki. Hæfniskröfur: Almennur áhugi og þekking á bílum eða reynsla sem nýtist í starfi. Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá fyrir 25. febrúar á netfangið varahlutir@suzuki.is Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að talnaglöggum og þrautseigum einstaklingi sem er tilbúinn til að leiða verkefni kjara- og réttindasviðs. Sviðið fæst m.a. við ráðgjöf og rannsóknir á sviði kjaramála auk kjarasamningsgerðar við stofnanir sem hjúkrunarfræðingar starfa við. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á kjaramálum, búa yfir ríkri þjónustulund og hafa góða þekkingu á íslenskum vinnumarkaði og opinberri stjórnsýslu. Sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að öflugum liðsmönnum • Þjónusta við félagsmenn • Greining og úrvinnsla tölulegra gagna • Kjararannsóknir • Stýrir gerð kjara- og stofnanasamninga • Vinna innan samstarfsnefnda • Frétta-, greina-, og skýrsluskrif, kynningarmál og fræðsla • Þátttaka í öðrum verkefnum félagsins Starfs- og ábyrgðarsvið • Háskólamenntun sem nýtist vel í starfi • Farsæl reynsla af kjarasamningagerð nauðsynleg • Mikil færni í tölfræðigreiningu og gagnavinnslu • Þekking og áhugi á samningatækni æskileg • Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni • Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni • Leiðtogahæfileikar • Áhugi á og færni í teymisvinnu • Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku Menntun, reynsla og hæfni Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2021. Umsóknum skal skila rafrænt ásamt ferilskrá og kynningarbréfi á formadur@hjukrun.is. Um er að ræða 100% starf sem fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í gegnum netfangið gudbjorg@hjukrun.is Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga þjónar rúmlega 4.500 félagsmönnum út um allt land. Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks sem hefur það hlutverk m.a. að vinna að árangursríkri og öruggri heilbrigðisþjónustu með eflingu hjúkrunar, hagsmunagæslu á sviði kjara- og réttindamála hjúkrunarfræðinga ásamt því að vinna að aukinni þátttöku þeirra í þróun og stefnumótun á hjúkrunar- og heilbrigðisþjónustu. Gildi félagsins eru ábyrgð, áræðni og árangur og tekur ráðning mið af þeim. Nánari upplýsingar um félagið má finna á vefsíðu þess www.hjukrun.is Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að ráða ritstjóra í fullt starf. Í boði er fjölbreytt, áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir m.a. á fagmennsku, samskiptahæfni og öguð vinnu- brögð. Leitað er eftir áhugasömum, frjóum og hæfum einstaklingi sem tekur frumkvæði að þróun Tímarits hjúkrunarfræðinga og annarri útgáfu á vegum félagsins. Ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga Ritstjórn og ábyrgð á faglegu og félagslegu efni tímaritsins auk reksturs þess, greinaskrif og önnur útgáfu- og kynningarmál á vegum félagsins. Helstu verkefni • Háskólamenntun og farsæl starfsreynsla • Reynsla af útgáfu tímarits og ritstjórn æskileg • Mjög gott vald á íslensku og færni í textaskrifum • Góð enskukunnátta og kunnátta í einu Norðurlandamáli • Góð tölvukunnátta • Metnaður og frumkvæði • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Jákvætt viðmót og góð samskiptafærni • Kunnátta og reynsla af nýtingu samfélagsmiðla Menntun, reynsla og hæfni Lindarbros tannlæknastofa - aðstaða til leigu. Aðstaða til leigu á glænýrri tannlæknastofu, Lindarbros; staðsett að Bæjarlind 12, 2 hæð, sem opnuð var í desember 2020! Húsnæðið er allt ný innréttað og hið glæsilegasta í alla staði. Tannlæknastofan er vel staðsett í miðju Stór-Reykja- víkursvæðisins, aðkoma góða og bílastæðamál til fyrir- myndar. Stór lyfta er í sameign og hjólastólaaðgengi gott. Húsnæðið er ekki eingöngu hugsað fyrir tannlækna, heldur einnig fyrir aðra heilbrigðistengda þjónustu, e.o. lækna, sjúkraþjálfara, kírópraktóra og nuddara. Áhugasamir aðilar geta sent fyrirspurn á; lindarbros@lindarbros.is Félagsráðgjafi óskast til starfa hjá Sjálfsbjargarheimilinu Helstu verkefni og ábyrgð Að veita skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra félags- ráðgjafameðferð og stuðning til þess að takast á við afleiðingar veikinda, slysa og hreyfihömlunar. Stuðla að og auka þátttöku þeirra í samfélaginu. Veita skjólstæð- ingum og fjölskyldum þeirra upplýsingar um félagsleg réttindi. Sinna málastjórn hvað varðar að tengja saman ólík þjónustukerfi og stuðning við hvers konar aðrar aðstæður sem upp geta komið. Þátttaka í þverfaglegum teymum þar sem náið samstarf er á milli heilbrigðis- stétta. Menntun og hæfniskröfur • Íslenskt starfsleyfi félagsráðgjafa • Þekking á endurhæfingu er kostur • Þekking og reynsla af því að vinna með fjölskyldum er kostur • Fjölbreytt starfsreynsla á sviði félags- og/ eða heil- brigðisþjónustu • Faglegur metnaður og einlægur áhugi á félagsráðgjöf í heilbrigðisþjónustu • Framúrskarandi hæfni í samskiptum • Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi • Færni til að vinna sjálfstætt og skipuleggja verkefni Um er að ræða 80-100% stöðu. Frekari upplýsingar um starfið Umsókn með upplýsingun um menntun og starfsferil ásamt afriti af prófskírteini og starfsleyfi berist til Þórdís R. Þórisdóttur framkvæmdastjóra Sjálfsbjargar- heimilisins á netfangið thordis@sbh.is fyrir mánudaginn 15. febrúar 2021. Laun ráðast af kjarasamingum Félagsráðgjafafélags Ís- lands við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Sjálfsbjargarheimilið rekur endurhæfingu og hjúkrun fyrir hreyfi- hamlaða í Sjálfsbjargarhúsinu að Hátúni 12, Rvk. Á Sjálfsbjargarheimilinu starfa um 70 manns og hefur það verið rekið frá árinu 1973. Ýmis starfsemi fer fram innan Sjálfsbjargar- heimilisins og vinnustaðurinn samanstendur af fjölbreyttum starfsmannahópi. Sjálfsbjargarheimilið var hástökkvari í könn- unni um Stofnun ársins fyrir árið 2020 og er búið að innleiða vinnutímastyttingu. Erum við að leita að þér? 12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 6 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.