Bæjarins besta - 20.12.2001, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 23
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Hafnargötu – Bolungarvík
Fiskmarkaður Suðurnesja
Sindragötu 11 – Ísafirði
Suðurgötu 9 – Ísafirði
Hafnarkanti – Flateyri
Fremri-Breiðadal · Önundarfirði
Sindragötu 1 – Ísafirði
Aðalstræti 9 – Ísafirði
Sakfelld fyrir umferðarlagabrot, þjófnað og þjófnaðartilraun
Svipt ökurétti í tvö ár og
dæmd til greiðslu sektar
Tæplega fertug kona á Ísa-
firði var í Héraðsdómi Vest-
fjarða í síðustu viku dæmd til
greiðslu 80 þúsund króna
sektar og sviptingar ökuréttar
í tvö ár. Konan var fundin sek
umferðarlagabrot, þjófnað og
tilraun til þjófnaðar. Einnig
var nítján ára piltur í Súðavík
dæmdur til 60 þúsund króna
sektar fyrir umferðarlagabrot.
Dómurinn varð hins vegar
ekki við kröfu ákæruvaldsins
um sviptingu ökuréttar þar
sem hann féllst ekki á mat
ákæruvaldsins á uppsöfnuð-
um ökuferilspunktum.
Konan var sakfelld fyrir of
hraðan akstur. Einnig fyrir að
hafa ekið undir áhrifum áfeng-
is og svo óvarlega að bifreið
hennar lenti utan í annarri bif-
reið og fyrir að hafa horfið af
vettvangi. Auk þess var hún
ákærð og sakfelld fyrir þjófn-
að á þremur brjóstahöldurum
úr verslun á Ísafirði, samtals
að verðmæti kr. 3.202, og til-
raun til þjófnaðar úr annarri
verslun. Þar taldist hún sönn
að því að hafa tekið tómt
geisladiskshulstur úr sölu-
rekka í þeirri villu að það inni-
héldi geisladisk, stungið því
á sig og ætlað með það út úr
versluninni án þess að greiða
fyrir vöruna, sem hefði verið
að verðmæti kr. 2.199.
Við ákvörðun dómsins yfir
konunni var tillit tekið til þess,
að hún hefur áður hlotið
refsingu fyrir umferðarlaga-
brot. Einnig var litið til þess,
að þýfið var ekki mjög verð-
mætt og skilaði sér að fullu til
eigenda. Loks var við ákvörð-
un refsingar höfð hliðsjón af
högum konunnar.
Öldin önnur á heimavist Menntaskólans á Ísafirði
Vistarbúum fjölgar og
allt húsnæðið í notkun
Það er liðin tíð að hinar
miklu heimavistarálmur
Menntaskólans á Ísafirði
standi að mestu leyti auðar og
ónotaðar, nema yfir sumar-
tímann þegar Hótel Ísafjörður
hefur þar útibú. Bæði fjölgar
verulega þeim nemendum
skólans sem hafa þar búsetu
yfir veturinn og jafnframt eru
húsakynnin og aðstaðan vel
nýtt í þágu þeirra sem stunda
fjarnám við Háskólann á
Akureyri. Eftir áramótin verða
20 nemendur MÍ búsettir á
heimavistinni en í fyrra voru
þeir 9. Bæði eru þetta nemend-
ur af suðursvæði Vestfjarða
og eins nemendur úr öðrum
landshlutum.
Þrátt fyrir fjölgun nemenda
á vistinni er hún ekki fullsetin,
að því leyti að ekki eru tveir í
herbergi eins og upphaflega
var gert ráð fyrir. Hver nem-
andi hefur tveggja manna her-
bergi fyrir sig og því verður
aðstaðan að teljast óvenjulega
góð. Verið er að leggja tölvu-
tengingar við skólanetið í öll
herbergi og margir nemendur
eru með sjónvarpstæki og
annan einkabúnað inni hjá sér.
Nemendur í fjarnámi í
hjúkrunarfræði og rekstrar-
fræði á vegum Fræðslumið-
stöðvar Vestfjarða hafa fengið
mikla og góða vinnuaðstöðu í
heimavistinni. Segja má, að
nú séu fullnýttar allar vistar-
verur í þessum byggingum,
sem til skamms tíma voru tald-
ar vandræðabörn og enginn
vissi hvað ætti að gera við.
Krakkarnir í yngstu
bekkjum Grunnskólans á
Ísafirði brugðu sér í
safnabyggðina í Neðsta-
kaupstað á Ísafirði í síð-
ustu viku til þess að kynna
sér hvernig jólahaldi var
háttað á fyrri tímum. Páll
Gunnar Loftsson leikari
tók á móti börnunum og
sagði þeim jólunum í sínu
ungdæmi en jafnframt var
ýmislegt til sýnis sem er
frábrugðið því sem núna
tíðkast. Þeir sem komnir
eru yfir miðjan aldur
minnast vel lyktarinnar af
eplum, sem þá fengust
yfirleitt ekki nema um
jólin. Samkaup á Ísafirði
gáfu epli á sýningunni,
sem að öðru leyti var sam-
starfsverkefni GÍ Byggða-
safnsins og Skjalasafnsins.
Kynntu sér jólahald á fyrri tíð
Skólabörn í heimsókn í Neðstakaupstað á Ísafirði
Páll Gunnar Loftsson að spjalla við börnin.
51.PM5 19.4.2017, 09:5223