Bæjarins besta - 20.12.2001, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2001 17
á Þorláksmessu, renni
svo mega jólin koma
miðdegismat, hangikjöt með
tilheyrandi.
Helga lætur fylgja upp-
skriftir að þeim mat sem er á
hennar borðum á aðfanga-
dagskvöld en segist sjálf ekki
nota uppskriftir mikið nema
rétt til að styðjast við. Í fyrra
var hún með reyktan lax með
piparrótarrjóma og melónu í
forrétt en gerir ráð fyrir að
sleppa honum í ár þar sem
hann féll ekki alveg í kramið
hjá yngsta liðinu.
Í aðalrétt er hún með gljáð-
an hamborgarhrygg með syk-
urbrúnuðum kartöflum, epla-
salati, rifsberjahlaup og rauð-
káli í aðalrétt og rjómabúðing
sem desert.
Hamborgarhryggur
fyrir 6 manns
1,6 kg hamborgarhryggur
með beini
2 l vatn
1 laukur
10 svört piparkorn
4 negulnaglar
Sykurgljái
2 msk sætt sinnep
2 msk hunang
2 msk púðursykur
Hamborgarhryggurinn sett-
ur í vatn ásamt grófsöxuðum
lauknum og pipar. Suðan er
látin koma upp rólega. Soðið
við vægan hita í 35 mínútur.
Látið kólna örlítið en síðan
fært upp á grind og látið kólna
í 20 mínútur. Sykurgljáinn
hrærður saman og penslaður
á hrygginn sem er settur í
180°C heitan ofn í 10 mínútur.
Sett á fat og skreytt með ana-
nas og kokteilberjum.
Sósa
8 dl soð af hryggnum
50 g hveiti
50 g smjör
1-2 dl rjómi
sósulitur
Lagið smjörbollu úr smjöri
og hveiti og bakið upp soðið.
Bætið í rjóma í lokin og sósulit
eftir smekk (athugið að minn-
ka soðið og bæta í vatni ef
það er of salt).
Sykurbrúnaðar
kartöflur
1 kg kartöflur
6 msk sykur
50 g smjör
2-3 msk vatn eða malt
Kartöflurnar soðnar og
flysjaðar. Sykurinn brúnaður
á pönnu og smjörinu bætt í.
Hrært í með sleif og því næst
er vökvanum bætt í. Hrært
þar til allt hefur samlagast.
Kartöflurnar settar út á pönn-
una. Látið malla við vægan
hita í 5 mínútur. Hrært varlega
í á meðan.
Eplasalat
8 valhnetur
3 epli
20-25 vínber
2 dl sýrður rjómi
smásletta af þeyttum rjóma
örlítill sykur ef vill
Eplin eru afhýdd, hreinsuð
og skorin í smábita. Hneturnar
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Egg og sykur þeytt vel sam-
an. Matarlímið sett í kalt vatn
og látið blotna upp. Mesta
vatninu hellt af og matarlímið
brætt yfir vatnsbaði (eða í ör-
bylgjuofni, passa að það sjóði
ekki). Blandað saman við
eggjahræruna ásamt vanill-
unni. Látið kólna örlítið.
Rjóminn er þeyttur og blandað
varlega saman við. Síðast er
ávöxtunum bætt í. Makka-
rónukökurnar eru muldar, sett-
ar í skál og búðingnum hellt
yfir. Skreytt með súkkulaði-
laufum, þeyttum rjóma og
ávöxtum.
eru grófsaxaðar, vínberin
skorin í tvennt og steinarnir
fjarlægðir. Sýrða rjómanum
og rjómanum blandað varlega
saman við.
Rjómabúðingur
4 egg
3 dl sykur
½ l rjómi
5 blöð matarlím.
½ tsk vanilludropar
ávextir að eigin vali, ferskir
eða niðursoðnir
makkarónukökur (ef vill)
Þrymur ehf.
– vélsmiðja –
Suðurgötu 9 – Ísafirði
Netagerð
Vestfjarða hf.
Grænagarði – Ísafirði
Sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
Vífilfell ehf.
Suðurgötu – Ísafirði
Helga Guðný ásamt fjölskyldu sinnu. F.v. Aldís Þórunn, Sindri Gunnar, Björn, Helga Guðný og Hólmfríður María.
Auglýsendur athugið!
Fyrsta blað BB á nýju ári kemur
út fimmtudaginn 3. janúar
jólahefðir og siðir tveggja
þjóða sameinaðar á heimil-
inu?
Við fjölskyldan erum með
nokkuð hefðbundið, íslenskt
jólahald. Fyrsta desember
hengjum við upp jóladagatal
þar sem á hanga litlir smá-
pakkar fyrir hvern dag fram
að aðfangadegi. Þrettán dög-
um fyrir jól setja krakkarnir
síðan skóinn út í glugga eins
og hefð er fyrir á Íslandi. Á
Þorláksmessu er jólatréð
skreytt og á aðfangadag borð-
um við klukkan sex en fyrir
matinn gefum við hvert öðru
oblátur og óskum hvert öðru
gleðilegra jóla. Við höfum
yfirleitt hamborgarhrygg eða
rjúpur í matinn á aðfangadags-
kvöld og á eftir er frómas með
möndlu. Síðan opnum við
pakkana og hringjum til Pól-
lands þegar líður á kvöldið.
Þá förum við í kaffi og endum
kvöldið á að fara í kaþólsku
kirkjuna hér á Ísafirði. Á jóla-
dag er síðan fjölskylduboð hjá
ömmu.
Vatnakarpi í hlaupi
vatnakarpi 1200-1400 g
3 stórir laukar
2 gulrætur
2 nípur
2 lárviðarlauf
allrahanda, bara smávegis
salt
pipar
1 tsk matarlím
Afhreistrið fiskinn og hrein-
sið, fjarlægið innyflin en
hreinsið fiskinn ekki að innan.
Flakið hann og saltið. Látið
bíða í hálfa klukkustund. Sker-
ið niður lauk, hreinsið græn-
metið, fiskhausinn og það sem
er hægt er að nýta af innyfl-
unum. Setjið í pott með köldu
vatni (u.þ.b. 1½ l). Bætið út í
kryddi og látið sjóða. Þegar
suðan er komin upp eru fisk-
flökin sett út í og allt látið
malla við vægan hita í um 10-
20 mínútur. Fiskurinn er settur
á frekar djúpt fat og raðað
þannig að upprunaleg lögun
hans haldist (hausinn með).
Soðið er síað (ef það er meira
en ½ lítri er það látið sjóða
aðeins lengur), bætið út í salti
og pipar eftir smekk. Bætið
matarlími smám saman út í
fisksoðið og setjið það síðan
yfir fiskinn. Skreytið með gul-
rót og hyljið fatið þar til bera
á fiskinn fram.
Valmúafrærúlla
Deig
500 g hveiti
300 g sykur
210 g smjörlíki
3 eggjarauður
300 ml mjólk
30 g ger
rifinn sítrónubörkur
salt
smjör
brauðmylsna
Fylling
500 g valmúafræ
300 g sykur
2 msk hunang
1 msk smjör, ríflega
2 eggjahvítur (þeyttar)
vanillusykur
210 g rúsínur
300 g saxaðar valhnetur
1 msk fínsaxaður, sykurhúð-
aður appelsínubörkur
Sykurbráð
300 g flórsykur
1 msk sítrónusafi
1-2 msk sjóðandi vatn
1 egg til penslunar
Hreinsið valmúafræin, tak-
ið hýðið af þeim með heitu
vatni og látið bíða yfir nótt.
Næsta dag er deigið hnoðað
og látið hefa sig. Þurrkið val-
múafræin í sigti og hristið
nokkrum sinnum í þeim.
Bræðið smjör í potti, bætið út
í sykri, valmúafræjum, hun-
angi, valhnetum og appelsínu-
berki. Steikið þetta allt við
vægan hita í nokkrar mínútur
og hrærið í á meðan. Kælið
og setjið síðan þeyttar eggja-
hvítur saman við. Skiptið
deiginu og fræblöndunni í þrjá
hluta, fletjið síðan hvern hluta
út með smávegis hveiti. Jafnið
síðan fræblöndunni yfir deig-
ið, rúllið því upp og setjið í
aflöng kökuform (brauð-
form). Vefjið endana undir
deigið. Látið rúllurnar hefa
sig á hlýjum stað og hyljið
þær með klút, penslið þær
síðan með eggi blandað
saman við 1 tsk mjólk.
Bakið við um 180° hita í
35-40 mínútur. Athugið
með tannstöngli hvort deig-
ið er fullbakað. Látið kólna
í formunum, takið síðan
rúllurnar úr þeim og setjið
sykurbráð yfir þær.
Barbara Gunnlaugsson.
51.PM5 19.4.2017, 09:5217