Vinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 19
framleiðslutæki landsmanna og efla atvinnuvegina?
Þegar þú krefst atvinnu fyrir alla sem geta unnið?
Hlýðnast þú fyrirskipun frá Belgrad þegar þú krefst að
nýsköpun atvinnuveganna á Islandi verði haldið áfram?
Hvort munt þú eða Rússar hafa meiri hag af því að
byggðar verði mannsæmandi íbúðir sem þú og stéttar-
bræður þínir geta flutt í úr hermannabröggunum, kjöll-
urunum, hanabjálkaloftunum, skúrunum? Skyldir þú
eða Rússar hafa tapað meira á launaráninu sem framið
var á þér í vetur með setningu dýrtíðarlaganna, þar
sem ákveðið er að þér skuli greitt kaup samkvæmt vísi-
tölu 300, hvort sem hin raunverulega vísitala er 330 eða
kemst alla leið upp í 400? Ert þú að berjast fyrir þín-
um hagsmunum eða Rússa þegar þú krefst þess að fá
kaup þitt greitt samkvæmt réttri vísitölu? Hvort munt
þú eða Stalín í Kreml hafa meiri hag af því að dýrtíð-
in á íslandi verði lækkuð á kostnað auðmannanna,
heildsala, húsabraskara og annarra slíkra, í stað þess
að leggja dýrtíðarbyrðarnar á þitt bak með hækkuðum
tollum og sköttum? Gengur þú erinda erlends einræð-
isríkis þegar þú krefst leikvalla og barnaheimila í
Reykjavík svo börnin þín þurfi ekki frá morgni til
kvölds að gleypa ryk götunnar og vera í stöðugri hættu
fyrir að verða undir bíl? Gengur þú erinda erlends
ríkis þegar þú krefst bættra kjara fyrir hlutasjómenn
og lengri hvíldartíma fyrir togarasjómennina? Er krafa
þín um réttláta skiptingu gjaldeyris- ög innflutnings-
leyfa milli landshluta og milli samvinnuverzlana og
heildsala borin fram af auðmjúkri þjónustu þinni við
Stalin? Og síðast en ekki sízt: er krafa þín um að staðið
sé á verði um efnahagslegt og pólitískt sjálfstæði Is-
lands; að engu erlendu ríki séu leigð landsréttindi á
íslandi, —- er það íslenzk krafa — eða er kannske ein-
hverju erlendu ríki þetta meira áhuga- og hagsmunamál
heldur en þér?
Þannig mætti lengi telja. Þér hefur verið sagt að
allar þessar o. fl. kröfur vinnandi fólks séu bornar fram
samkvæmt skipun kommúnista, skipun erlends valds,
þær séu því óþjóðlegar og óþjóðhollar. Finnst þér
þjóðhollara og þjóðlegra að vilja selja íslenzka land-
helgi á leigu gegn því að greitt sé fyrir verzlunarsam-
böndum fyrir þig svo þú getir grætt á heildsölu- Er
þjóðhollara að selja íslenzk atvinnutæki út úr landinu?
Er þjóðlegra að falsa faktúrur og leggja inn í erlenda
banka þjófstolið fé svo milljónum króna nemur? Er
þjóðhollara að leigja erlendu herveldi flugvöll, sem
hvenær sem er má breyta í árásarstöð fyrir flugvélar
til að varpa kjarnorkusprengjum yfir stéttarbræður
þína í öðrum löndum?
Blöð auðmannastéttarinnar segja þér einnig að ef þú
ert sósíalisti eða Alþýðuflokksmaður sem ekki trúir á
hrunstefnu núverandi ríkisstj órnar — ef þú aðhyllist
sósíalisma, þá gangir þú erinda erlends valds, því sós-
íalismi sé erlend stefna. Ef þú ert Framsóknarmaður
áttu mjög auðvelt með að átta þig á þessu. Var ekki
samvinnustefnan upprunnin í Englandi? Ert þú þá að
ganga erinda erlends valds þegar þú vinnur að eflingu
samvinnustefnunnar hér á íslandi?
Enn segja blöð auðmannastéttarinnar þér meira. Þau
segja þér, að ef þú gengur með flibba um hálsinn, vinn-
ur í skrifstofu eða verzlun, þá eigir þú enga samleið
með sjómanninum og kolamokaranum. Hefur þá launa-
VINNAN
77