Vinnan - 01.05.1948, Síða 25
Ólafur Tryggvason,
bryti.
Dagbjartur Bjarnason, 1. stýrirn.
Jón Magnússon, 2. stýrim.
Hjalti Gunnlaugsson, bátsm.
Eiríkur Ásmundsson, 3. vélstj.
Ólafur Sigurðsson, 1. vélstjóri
Hermann Friðfinnsson, 2. vélstj.
Hásetarnir, talið frá vinstri: lngi Halldórsson, Guðmundur Krist•
insson, Hilbert Björnsson, Ólafur Sigurðsson, Ragnar Ágústsson
og Guðmundur Jónsson.
uppskipunar. Hlutverk þessara smærri skipa á því að
vera það, að greiða fyrir samgöngum og gera þær til-
tölulega kostnaðarminni en ella.“
— Hvernig finnst þér skipið reynast sem sjóskip?
„Eftir stærð hef ég ekki nema það bezta um það að
segja.“
— Hvað hefur þú fleira um ástand og útbúnað skips-
ins að segja-
„Skipið hefur 650 ha. dieselvél og gengur 10 sjó-
mílur í logni. — Það er búið öllum öryggistækjum,
nema radartækjuin, en ég þykist hafa ástæðu til að
ætla að úr því verði bráðlega bætt.“
— Hvað er skipshöfnin fjölmenn?
„Sextán menn, sem sé: Skipstjóri, tveir stýrimenn,
sex hásetar, fjórir í vél og þrír við matargerð og fram-
reiðslu. — Fyrsti stýrimaður er Dagbjartur Bjarna-
son, annar stýrimaður Jón Magnússon. Fyrsti vélstjóri
er Ólafur Sigurðsson og bryti Ólafur Tryggvason."
Vér þökkum Grími skipstjóra fyrir upplýsingarnar
og árnum honum, skipshöfn hans og skipi allra heilla.
V I N N A N
83