Vinnan - 01.05.1948, Side 43
29. Helxe4 d6—d5
30. Dc4xa6 d5xe4
31. Bd4—e3 Dd7—g4!
32. Da6—c4 Hd8—d3!!
33. Be3—cl
Ef 33. Dxe4, De2 og vinnur.
34 Rg6—h4!
34. Dc4xe4-)- f6—f5
35. De4—b7 c7—c6!!
Þessir síðustu 6 leikir eru enn í milldarlegri vegna þess, hve
Keres hafði lítinn tíma til að finna þá.
36. Db7xc6 He3—c3
37. Dc6—d5 Hc3—c5!
38. Dd5—d2 Hc5xcl
39. h2—h3
Auðvitað ekki 39. Hxcl vegna Rf3+, og vinnur drottninguna.
39 Dg4—g3?
Tímahraksleikur, sjálfsagt var ... . Rf3!+ og hvítur gat gefið.
40. Dd2—e2 Dg3xf4
41. Hflxcl Df4xcl+
Skákin fór nú í bið; það sem eftir er, er einungis leiknisspurs-
mál fyrir Keres. Við gefum aðeins leikina.
42. Kgl—h2 Dcl—f4+
43. Kh2—gl Rh4—g6
44. De2—c2 Rg6—e7
45. a2—a4 Df4<—d4+
46. Kgl—h2 Dd4—e5+
47. Kh2—gl Re7—d5
48. Dc2—dl Rd5—c3
49. Ddl—c2 Kh7—g6
50. Kgl—hl De5—el+
51. Khl—h2 Rc3—e2
52. Dc2—c6+ Kg6—h7
53. Dc6—c5 Re2—g3!
54. Dc5—d6 Rg3—fi+
55. Kh2—gl h6—h5
Og Euwe var í jiann veginn að leika Dd6—f4, þegar tími hans
var þrotinn. En staða hans er auðvitað alveg vonlaus.
Skákdæmi
Lausn á skákdæminu í síðasta blaði er: 1. Hg8, Bx8; 2. a8
(=D)+ Ba2; 3. Dh8 mát, eða 1.....Ka2; 2. Hb8 og mát í
næsta leik.
Skákdœmi ejtir Jos. C. J. Wainwright:
Hv.: Kfl, Df2, Rd2, Ra4, Pc2, c4, f4, d5.
Sv.: Kd4, He3, Pc6, d6.
Hvítur mátar í 3. leik.
Útbreiðið VINNUNA
r--------------------------------------N
SAMBANDS-
tíðindi
v______________________________________/
AlþýðusambandiS vinnur mál fyrir Félagsdómi
Þann 1. marz s.l. var í Félagsdómi kveðinn upp dómur í máli,
er Alþýðusambandið höfðaði fyrir hönd Verkalýðsfélags Akra-
ness, vegna kvennadeildar félagsins, gegn h.f. Ásmundi á Akra-
nesi.
Tildrög málsins voru þau, að samkvæmt gildandi samningum
milli kvennadeildar V.L.F.A. og atvinnurekenda á Akranesi ber
að greiða karlmannskaup fyrir vinnu við óverkaðan saltfisk.
Atvinnurekendur lögðu þann skilning í þetta ákvæði að þeim
væri ekki skylt að greiða nema kvennakaup fyrir að sauma utan
um saltfiskinn, og neituðu að greiða hið umsamda kaup (kr.
2.80 í grunnkaup á klst.)
Alþýðusambandið vann málið algjörlega. Dómsniðurstaðan
er svohljóðandi:
„Stefnda, h.f. Ásmundi, er skylt að greiða félagskonuin í
verkakvennadeild Verkalýðsfélags Akraness, sem vinna við að
sauma utan um óverkaðan saltfisk þegar honum er pakkað, kr.
2.80 í grunnkaup fyrir hverja klukkustund.
Stefndi greiði stefnanda, Alþýðusambandi Islands f. h. Verka-
lýðsfélags Akraness vegna kvennadeildar félagsins kr. 300.00
í málskostnað innan 15 daga frá birtingu dóms þessa, að við-
lagðri aðför að lögum.“
NÝIR SAMNINGAR
Nýr samningur blikksmiða
Snemma í marz var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Félags blikksmiða og atvinnurekenda. Samkvæmt hinum nýja
samningi hækkaði grunnkaup blikksmiða úr kr. 158.00 í kr.
170.00 á viku. Samningurinn gildir frá 1. apríl 1948 til 1. júní
1949.
Nýr samningur á Flateyri
Þann 6. marz s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri og atvinnurekenda þar.
Samkvæmt hinum nýja samningi hækkaði grunnkaup verka-
manna í almennri vinnu úr kr. 2.45 í kr. 2.60 á klst., í skipa-
vinnu úr kr. 2.69 í kr. 2.85 á klst. og í kola-, salts- og sements-
vinnu úr kr. 3.00 í kr. 3.18 á klst. Grunnkaup verkakvenna og
drengja 14—16 ára hækkaði úr kr. 1.75 í kr. 1.86 á klst. Eftir-
vinna greiðist með 50% álagi og nætur- og helgidagavinna með
100% álagi á dagvinnukaup. Samningurinn gildir frá 7. marz
til 31. des n.k. og er uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara.
Nýr samningur í Súgandafirði
Þann 13. marz s.l. var undirritaður nýr kjarasamningur milli
Verkalýðsfélagsins „Súganda" á Suðureyri í Súgandafirði og
atvinnurekenda þar.
Samkvæmt hinum nýja samningi hækkar grunnkaup verka-
manna í almennri dagvinnu úr kr. 2.45 í kr. 2.65 á klst., í skipa-
vinnu úr kr. 2.69 í k.r 2.91 á klst. og kola- og sementsvinna úr kr.
3.00 í kr. 3.24. Grunnkaup kvenna og drengja 14—16 ára hækk-
VINN AN
101