Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Side 2

Vinnan - 01.04.1994, Side 2
'4NK>I Útgefandi: Alþýðusamband Islands Ritnefnd Lára V. Júlíusdóttir Hallór Grönvold Snorri S. Konráðsson Ritstjóri: Þorgrímur Gestsson Ljósm.: Róbert G. Agústsson Útlit: Sævar Guðbjömsson Prófarkalestur: Hildur Finnsdóttir Afgreiðsla: Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík Sími: 91-813044 Fax: 680093 Auglýsingar: Áslaug G. Nielsen og Guðmundur Jóhannesson Símar: 641895/641816, Fax: 641525 Umbrot: Blaðasmiðjan Filmuvinnsla og prentun: ODDI h/f Alþýðusamband íslands: Benedikt Davíðsson forseti, Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur ASI og framkvæmdastjóri, Halldór Grönvold skrifstofustjóri, Bryndís Hlöðversdóttir lögfræðingur, Ari Skúlason, Guðmundur Gylfi Guðmundsson og Gylfi Arnbjömsson hagfræðingar, Bolli B. Thoroddsen og Sigur- þór Sigurðsson hagræðingar, Ingibjörg Haraldsdóttir gjald- keri, Sif Ólafsdóttir og Helga Dagný Ámadóttir fulltrúar. Menningar- og fræðslusamband alþýðu: Snorri S. Konráðsson fram- kvæmdastjóri, Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, Ásmundur Hilmarsson og Finnbjöm A. Hermannsson fræðslufulltrúar, Bergþóra Ingólfsdóttir gjald- keri. Listasafn Alþýðusambandsins: Ólafur Jónsson forstöðumaður, Tómstundaskólinn: Þráinn Hallgrímsson skóla- stjóri, Sigríður Einarsdóttir rit- ari. Mikilvægara en nokkru sinni áb nota samtaka máttinn Um þessar mundir eru liöin 30 ár frá því aö flest félög ófaglærða verkafólks- ins hér á landi slógu sér saman um myndun Verkamannasambands íslands. Sá áfangi markaði vissulega tímamót í samstarfi verkalýðsfélaganna. Um sömu mundir voru einnig stofnuð fleiri starfs- greinasambönd félaga innan ASÍ. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hefur það vissulega sýnt sig að þau skref sem þá voru stigin í átt til aukins samstarfs félaganna hafa haft mikla félagslega þýðingu, kannski alveg sérstaklega fyrir smærri félög um hinar dreifðu byggðir okkar, félög sem hvert fyrir sig voru kannski ekki mjög mikils megnug en geta nú í hinu breiða samstarfi styrkt heildina verulega. Það er kannski mikil- vægara nú en nokkru sinni fyrr að geta og kraftar félaganna nýtist vegna þess mikla sameiginlega vanda sem við er að glíma, atvinnuleysið. Einstök félög, þótt sterk séu og öflug sum, ná varla viðunandi árangri í barátt- unni við þennan vanda. Lausn verður ekki fundin nema í samstarfi margra að- ila. Þar þurfa bæði að koma að samtök launafólks og stjórnvöld. í þeirri umfjöllun sem nú á sér stað á vegum verkalýðssamatakanna um málið er ekki aðeins horft til vanda dagsins í dag, sem er yfirþyrmandi og krefst úr- lausna hið bráðasta, heldur er einnig verið að fjalla um lausn vandans til lengri tíma. Við gerð kjarasamninga á nokkrum síðustu misserum hefur verkalýðshreyf- ingin tekið fullt tillit til þess samdráttar í aflabrögðum sem vísindamenn hafa talið fyrirsjáanlegan á hverjum tíma. Verka- fólk hefur þannig tekið á sig þá kjara- skerðingu sem af aflasamdrættinum hef- ur leitt. Það hefði því ekki átt að þurfa að verða slíkur atvinnusamdráttur sem orð- ið hefur ef stjórnvöld og atvinnurekendur hefðu nýtt þau góðu skilyrði sem sköp- uðust eftir að tókst að ná verðbólgunni niður, jafnvel niður fyrir þá verðbólgu sem verið hefur á sama tíma í aðal við- skiptalöndum okkar. Og nú þegar einnig hefur tekist að ná vaxtastiginu í landinu svo verulega niður sem raun er á orðin, þó að betur eigi að vera hægt að gera, verður ekki annað séð en að aðeins vanti stefnumótun af hálfu stjórnvalda til þess að snúa vörn í sókn. Það kom enda fram í ræðu Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofn- unar, á Iðnþingi þann 25. mars síðastlið- inn að hann teldi að nú væri „sögulegt tækifæri til að snúa vörn í sókn“. Flann sagði einnig: „Skilyrði til iðnþró- unar eru einstaklega góð um þessar mundir, bæði inn á við og út á við.“ Það ér því brýnt við þessar aðstæður að verkalýðsfélögin noti samtakamátt starfsgreinasambanda og heildarsam- taka sinna til þess að knýja á stjórnvöld um að þau sýni framtak og frumkvæði í atvinnusköpun. Þegar ég tala um at- vinnusköpun á ég ekki við einhverjar bráðabirgðaúrlausnir á atvinnuleysis- vandanum eða sérstök tímabundin átaksverkefni. Ég á við framtíðarupp- byggingu atvinnulífsins sem skapi öllu þjóðfélaginu arð og geti aukið kaupmátt launa í landinu til lengri tíma. Og eins og forstjóri Þjóðhagsstofnun- ar sagði, er lagið einmitt núna til að hrinda slíku í framkvæmd vegna hag- stæðra efnahagslegra skilyrða. Það er við þær aðstæður sem mikilvægt er að við notum sameinaðan mátt starfs- greinasambandanna til að þrýsta á stjórnvöld um framkvæmdir, enda eigum við inni fyrirheit í þeim efnum frá gerð nokkurra síðustu kjarasamninga. Benedikt Davíðsson VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.