Vinnan - 01.04.1994, Side 4
4
25% hækkun lífeyrisréttinda
hjó Sameinaéa lífeyrissjóénum
Úttekt á lífeyrissjóöum byginga-
manna og málm- og skipasmiða,
sem voru sameinaöir í fyrra, sýnir
ákaflega sterka stöðu þeirra. Eink-
um er staða lífeyrissjóðs fyrrum
Málm- og skipasmiðasambands
íslands sterk og á aðalfundi
Samneinaða lífeyrissjóðsins í
mars var ákveðið að hækka allar
bætur úr málmiðnaðardeild
sjóðsins og réttindi sem menn
höfðu unnið sér inn fram til 1. júní
1992 um 25 prósent. Sams konar
úttekt á lífeyrissjóði bygginga-
manna sýnir að á sama hátt hefði
mátt hækka bætur úr honum og á-
vinning lífeyrisréttinda um eitt
prósent en ákveðið var að halda
þeim óbreyttum.
— Þetta sýnir að sá hræðsluáróður gegn
lífeyrissjóðum stéttarfélaganna, sem Versl-
unarráð hefur meðal annars staðið fyrir, er
marklaus. Kjarni málsins er sá að staða
flestra lífeyrissjóða er sterk og þeir eiga fyrir
skuldbindingum. Vitanlega eru til litlir sjóðir
sem standa illa en það er alls ekki rétt að líf-
eyrissjóðimir séu almennt á hvínandi hausn-
um, segir Jóhannes Siggeirsson, fram-
kvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, í
samtali við Vinnuna.
Astæða traustrar stöðu þessara tveggja líf-
eyrissjóða er að sögn Jóhannesar sú að fé
þeirra hefur verið tiltölulega vel ávaxtað og
rekstrarkostnaður lítill. Misjafnlega góða
stöðu sjóðanna rekja menn hins vegar til
þess að sjóður Málm- og skipasmiða var
stofnaður árið 1970, eða nokkru síðar en
sjóður byggingamanna. Hann brann því á
verðbólgubáli nokkru lengur en
málmiðnaðarsjóðuri nn og geldur þess enn
þann dag í dag.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn tók til starfa
1. júní 1992. Fyrst í stað starfaði hann í
þremur deildum, í svonefndri S-deild sem
hóf að taka við iðgjöldum við sameininguna,
M-deiId og B-deild. Tvær síðastnefndu
deildimar sáu um að mkka inn iðgjöld sem
voru í vanskilum frá því fyrir 1. júní. Tíminn
fram til síðustu áramóta var einnig notaður
til að fara yfir eignir og skuldbindingar sjóð-
anna og í lok síðasta árs var gerð á þeim
tryggingafræðileg úttekt og nú hefur endan-
leg sameining lífeyrissjóðanna farið fram.
Eftir þann tíma er allur sá lífeyrisrétmr sem
menn vinna sér inn jafn, hvort sem menn em
byggingamenn eða málmiðnaðarmenn.
Við sameiningu lífeyrissjóðanna fækkar
stöðugildum úr níu hjá gömlu sjóðunum
tveimur, niður í sjö hjá nýja sjóðnum. Þessu
verður náð fram annars vegar með uppsögn
en hins vegar með því að fólk minnkar við
sig vinnu. þessu ári verður sagt upp tveimur
starfsmönnum sem unnu hjá gömlu sjóðun-
um.
— Slíkt er að sjálfsögðu aldrei auðvelt og
þetta gerist ekkert öðmvísi hjá okkur en ann-
ars staðar í þjóðfélaginu. Þegar farið var af
stað með sameininguna var hagræðing yfir-
lýst markmið hennar. Hún næst fram með
því að minnka húsrými og draga úr
tölvukostnaði, og því miður verður einnig að
fækka starfsfólki, segir Jóhannes Siggeirs-
son, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyris-
sjóðsins.
JltogtntÞlaMfe
- kjarni málsins!
VINNAN