Vinnan - 01.04.1994, Qupperneq 6
6
Kröftug mótmæli gegn ferðaskatti á starfsfólk
Skattur vegna ókeypis
flutnings í og úr vinnu
rýrir kjör starfsfólks
Allir starfsmenn álversins í Straums-
vík, Járnblendifélagsins á Grundar-
tanga og Áburðarverksmiöjunnar í
Gufunesi, sem nýta sér frían akstur í
og úr vinnu, hafa skrifað undir mót-
mæli við nýrri reglu ríkisskattstjóra
um að þessi flutningur skuli skatt-
lagður að fullu. Mótmælin hafa verið
kynnt alþingismönnum Reykjaness,
Vesturlands og Reykjavíkur. Vinnu-
veitendasambandið og Alþýðusam-
bandið standa í viðræðum við fjár-
málaráðuneytið um að þessari reglu
verði breytt.
Jón Sigurðsson, forstjóri Járnblendifé-
lagsins, hefur tilkynnt fjármálaráðuneytinu
að hann hyggist ekki innheimta staðgreiðslu
af þessum flutningi starfsmanna. I álverinu
hefur yfirstjóm fyrirtækisins hins vegar til-
kynnt að innheimta á staðgreiðslu vegna
þessa skatts sé hafin.
Ríkisskattstjóri segist byggja hertar reglur
um aksturshlunnindi á heimild sem komi
fram í umsögn frá umboðsmanni Alþingis,
eins og kemur fram í síðasta tölublaði Vinn-
unnar. Þar er einnig haft eftir Láru V. Júlíus-
dóttur, framkvæmdastjóra Alþýðusambands-
ins, að þetta standist ekki stjómarskrána því
löggjafarvaldið sé hjá Alþingi en ekki ríkis-
skattstjóra.
Upphafs þess að reglumar vom hertar er
Með morgunverði, sem eftirréttur, eða bara...bara.