Vinnan - 01.04.1994, Side 8
8
fram sem rök í máli sínu gagnvart umboðs-
manni Alþingis að mönnum væri mismunað
á þann hátt að þeir sem kæmu til vinnu í rút-
um þyrftu ekki að greiða skatt af því meðan
hinir sem kæmu á eigin bílum væm mkkaðir
um skatt af aksturskostnaðinum. Viðbrögð
skattstjóra vom þau að hann lagaði misréttið
með því að ganga á hagsmuni þeirra sem
áður nutu hlunninda að þessu leyti í stað
þess að bæta kjör þeirra sem áður báru
skarðan hlut frá borði.
Trúnaðarráð verkalýðsfélaganna hjá
ISAL átti fmmkvæði að því að gripið var til
mótmæla gegn þessari nýju skattheimtu og
höfð voru samráð við starfsmenn Járn-
blendifélagsins á Grundartanga, Aburðar-
verksmiðjunnar í Gufunesi og Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
vegna starfsmanna hjá Islenskum aðalverk-
tökum og annarra sem sækja vinnu á Kefla-
víkurflugvelli. Þá hefur Vinnan fregnir af
því að víða um land, þar sem starfsmenn fá
frían akstur í og úr vinnu, sé verið að huga
að því hvernig koma megi mótmælum á
framfæri.
Málið skiptir þetta fólk talsverðu því hér
er um að ræða 12-1500 krónur sem bætast
við skattskyldar tekjur fólks í hverjum mán-
uði eða 14 -22 þúsund krónur á ári.
I bréfi trúnaðarráðs verkalýðsfélaganna,
íseja .þktgmöpnunarií viaí kýflnk.se^e meðal
annars að þessar hertu skattreglur komi fyrst
og fremst niður á starfsfólki stórra fyrirtækja
í útjörðum byggða eða fyrir utan þær. Þess-
um fyrirtækjum sé nauðsyn á að geta fengið
starfsfólk vrða að á stórum íbúðarsvæðum
og það sé hagur þeirra að sjá fólkinu fyrir
fríum ferðum í og úr vinnu til að tryggja ör-
ugga mætingu.
Þá er á það bent að fólk sé flutt í og úr
vinnu í vinnutíma en mæti það ekki tíman-
lega þar sem rúturnar stansa þurfi það að
koma sér í vinnu á eigin kostnað og dregið
sé af launum þess mæti það ekki á réttum
tíma.
Skatturinn hækkar stöbugt
— Um þetta hefur verið samið í kjara-
samningum áratugum saman. I síðustu
þrennum samningum hefur launafólk samið
um ekki neitt, eins og kunnugt er, til að
stuðla að stöðugleika og styrkja atvinnu-
reksturinn. En skattaprósentan hefur hækkað
úr 35,2% árið 1988 í 41,8% nú, auk þess
sem farið er að skattleggja frítt fæði og nú
fríar ferðir, segir Gylfi Ingvarsson, aðaltrún-
aðarmaður starfsmanna í Straumsvík, í sam-
tali við Vinnuna.
Gylfi hefur fengið þær upplýsingar frá
ÍSAL að um 50 milljónir króna kosti að
djyjtjajstarfsmenn í pg úr vinnu á ári og að
skatturinn á starfsmenn yrði í ár sjö milljón-
ir. Samið er við ákveðið fyrirtæki um þessa
flutninga og að sjálfsögðu greiðir það skatta
af-tekjum sínum. Ef allir starfsmenn ISALs
færu í vinnuna á eigin vegum bættust um
500 bflar í umferðina og ríkið yrði af þeim
tekjum sem það hefur nú frá þeim sem sér
um aksturinn, auk þess sem slysahætta og
mengun ykjust í réttu hlutfalli.
— Ef þessi skattlagning verður ekki af-
numin með lagabreytingu verður ekki hægt
að ljúka næstu kjarasamningum án þess að
samið verði um lagfæringu vegna þessa
skatts, segir Gylfi Ingvarsson.
Áhrifin af þessari nýju skattheimtu ríkis-
ins skýrist ágætlega með dæmi af desem-
bergreiðslu og orlofsgreiðslu sem allir
starfsmenn ISALs fá. Þær námu rúmum 70
þúsund krónum á hvern starfsmann árið
1988 en frá því drógust tæpar 25 þúsund
krónur í skatt þannig að eftir voru 45.600
krónur. Nú nema þessar greiðslur rúmum 94
þúsund krónum; skatturinn er tæpar 40 þús-
undir, 16 þúsundir króna eru dregnar frá
vegna frís fæðis og 14 þúsundir á að draga
frá vegna frírra ferða. Þá em eftir tæpar 25
þúsund krónur eða 20 þúsund krónum
minna en árið 1988 þegar þessar greiðslur
vom mun lægri en þær em nú.
Aukin verðsamkeppni
-lægra vöruverð
Berð þú saman vöruverð þegar þú ferð í verslun?
Fylgist þú með að verðmerkingar séu í lagi?
Árvekni neytenda erforsenda virkrar samkeppni.
Leggðu þitt af mörkum!
fFíff'E:.,:
Samkeppnisstofnun
VINNAN
/