Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Side 22

Vinnan - 01.04.1994, Side 22
22 Karitas Pálsdóttir, formaáur deildar fiskvinnslunnar: Gríðarlegt átak í starfsmenntun — Stærstu framfaramálin sem deild fiskvinnslunnar hefur unnið að eru að mínu viti fiskvinnslunámskeiðin og nýja bónuskerfið, segir Karitas Páls- dóttir á Isafirði, formaður deildarinn- ar. — En vandamálin sem við blasa nú eru að sjálfsögðu síminnkandi þorskkvót- ar, fiskvinnsla úti á sjó og flutningur á óunnum fiski til útlanda. Þetta veldur því að atvinnuöryggi fólks er stefnt í tvísýnu og hefur jafnframt grafið undan fast- launasamningunum frá 1974 þannig að þeir veita ekki það atvinnuöryggi sem þeim var ætlað, segir Karitas. Hún hefur verið í stjórn deildarinnar frá upphafi en hefur nú tekið við for- mennsku af Snæ Karlssyni. Hvernig finnst henni að til hafi tekist þegar hún lítur um öxl og hugleiðir markmiðin sem sett voru í upphafi? — Það er ekki mitt að segja um það; eflaust finnst mörgum að við höfum gert alltof lítið. Að sumu leyti held ég þó að þetta hafi gengið ágætlega en á hinn bóg- inn erum við að mínu viti komin inn á hættulega braut með því að skipta okkur svona niður í hópa. Við erum komin með svo flókið launakerfi að það er orðin spurning um hvenær á að stokka upp. Við höfum vitanlega komið að öllum samningamálum þessi árin og nýja bónus- kerfið var mjög til bóta þegar það tók við af hripleku einstaklingsbónuskerfinu. Eg tel einnig að gríðarlegt átak hafi verið gert í menntunarmálum. Fiskveiðinám- Karítas Pálsdóttir: Launakerfið er orðið ívo flókið að það er orðin spurning um hvenœr á að stokka það upp. skeið sjávarútvegsráðuneytisins hófust vorið 1988 og síðan hafa um 9000 manns sótt þau. Verkamannasambandið hefur alla tíð átt fulltrúa í starfsfræðslunefnd ráðuneytisins og verkamannafélögin hafa séð um framkvæmd námskeiðanna í sam- vinnu við starfsmann ráðuneytisins hvert á sínum stað, nema hér á Vestfjörðum þar sem Alþýðusamband Vestfjarða hefur annast framkvæmdina, segir Karitas. Frá því deild fiskvinnslufólks var stofnuð hafa verið haldnir nokkrir fundir fyrir starfsfólk í fiskvinnslu og fyrir tveimur árum var efnt til ráðstefnu fyrir fulltrúa úr öllum félögum Verkamanna- sambandsins sem vinna í fiskvinnslunni. Þar voru fluttir fyrirlestrar og fólk tjáði sig um ýmsa vankanta á launakerfinu og sérmál sem snúa eingöngu að fiskvinnslu- fólki. — Það er náttúrlega þetta fólk sem þarf að hittast og ræða hlutina, fólkið sem hefur vit á þessum hlutum, og þessir fundir hafa þjappað því saman, segir Kar- itas Pálsdóttir. Nú vinna stjórnarmenn deildar fisk- vinnslufólks að viðamikilli könnun í fisk- vinnsluhúsum víða á landinu. Verið er að safna saman upplýsingum um meðalstærð fiska, hve mikið er unnið og í hvaða pakkningar, meðalnýtingu og hver hluta- skiptin verða. Þessari könnun á að vera lokið fyrir haustið og ætlunin er að leggja niðurstöður hennar fram á ráðstefnu í haust. — Akveðið var að athuga þessi mál vegna þess að margir telja að fiskurinn hafi breyst frá því nýja hlutaskiptakerfið var tekið upp og forsendur þess voru byggðar á gömlum stöðlum um stærð og ástand fisksins. Fólk telur að núorðið sé meira af ormi í fiskinum og hann sé miklu minni en hann var; vinnuaðstæður séu ekki eins á öllum stöðum og launa- munur eftir svæðum. Það er komin upp ákveðin tortryggni út í þetta kerfi og með þessu erum við meðal annars að kort- leggja hvernig þessi atriði eru í raun og veru, segir Karitas Pálsdóttir, formaður deildar fiskvinnslufólks, í samtali við Vinnuna. MtwSSr A Gerum hreint í umferðinni! BIFREIÐASKOÐUN ISLANDS HF VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.