Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Side 26

Vinnan - 01.04.1994, Side 26
26 Það var kuldalega staðið áb stofnun Jökuls Skinnið fellur þétt að beinum; hold- grannur, svipsterkur, einbeittur, eilítið hokinn veður hann áfram upp í vind- inn. Göngugarpur, náttúruskoðari. Benedikt Þorsteinsson, fyrsti formað- ur verkalýðsfélagsins Jökuls, formað- ur í 27 ár frá stofnun félagsins 1942 fram til ársins 1969. ,,Það var kuldalega staðið að stofnun Jökuls, það verður að segjast eins og er. Félagið ber því nafn með rentu í fleiri en einum skilningi," segir Benedikt og horfir til jöklanna sem umkringja Höfn. „Um annað var hins vegar ekki að ræða. Hérvarfyrir verkalýðsfélag, Atvinnufélag Hafnarverkalýðs, stofn- að 1929, en það var bitlaust vegna þess að Jón ívarsson kaupfélags- stjóri var í félaginu og aðstoðarmaður hans, Björn Guðmundsson, var í stjórn félagsins. Formaður félagsins, Benedikt Steinsson, var þeim hand- genginn. Það var augljóst að þetta gat ekki gengið. Okkur kom saman um það nokkrum að það eina sem hægt væri að gera væri að leysa félagið upp með einhverjum hætti og stofna nýtt. Aðalfundur hafði verið boðaður í janú- arbyrjun 1942. Við létum það berast manna á milli að rétt væri að skila auðu við stjómar- kjör. Orðið var látið ganga til allra nema for- mannsins — og að sjálfsögðu ekki til þeirra Jóns og Björns.“ Benedikt segir hægt og skipulega frá, stendur af og til upp, rótar í Rætt við Benedikt Þorsteinsson, fyrsta formann Verkalýðs- félagsins Jökuls gömlu skrifborði, gluggar í gamlar, hand- skrifaðar fundargerðir; nákvæmur, vandvirk- ur: Skaftfellingurinn leynir sér ekki í honum. Kvaðst hafa mál að flytja „Kvöldið fyrir umræddan aðalfund boð- aði Björn stjómina heim til sín og auglýsti eftir málum sem menn ætluðu að leggja fyrir fundinn. Eg var í stjóminni, kvaðst hafa mál að flytja en neitaði að segja hvert máiið væri.“ Hér þagnar Benedikt og hugsar sig um, Eftir Baldur Kristjánsson heldur siðan áfram: „Það er óhætt að segja að plottið hafi gengið eftir. Við stjórnarkjör voru allir seðlar auðir nema þrír. Jón Ivars- son sætti sig ekki við þetta, krafðist þess að kosið yrði aftur og enn fór á sömu leið.“ „í samræmi við það sem fyrirfram hafði verið ákveðið kvaddi ég mér hljóðs og bar upp tillögu um að félagið yrði leyst upp. Um- ræður urðu heitar. Jón lét bóka að hann teldi það ólöglegt og áskildi sér rétt til að leita landslaga. Ég var hins vegar búinn að ræða þetta mál við Jón Sigurðsson hjá ASI og hann hafði talið þetta einu færu leiðina í stöðunni; að leysa félagið upp og stofna nýtt. En eftir miklar umræður var tillaga mín borin undir atkvæði, að viðhöfðu nafnakalli, og samþykkt með 34 atkvæðum gegn 3. Fjórir greiddu ekki atkvæði. Eftir nokkurt þref gengu allir fundarmenn — nema þrír — af fundi, út í bamaskóla þar sem nýtt félag var stofnað. A stofnfundinum voru 39. A honum ríkti einhugur og bjart- sýni. Við gengum strax í ASI en það var einmitt 1942 sem sósíalistar náðu yfirhönd- inni á ASI-þingi og hreyfingin var slitin úr tengslum við Alþýðuflokkinn.“ Jón Ivarsson kærður „það var þungt í Jóni út af þessu lengi vel og ekki bætti framhaldið úr skák. Um ára- mótin 1942-3 voru sett lög sem settu verðlag og kaupgjald fast. Jón Ivarsson sat þá á Al- þingi. Fljótlega eftir áramótin urðum við vör við það að kol og ýmsar matvörur einnig fóm að hækka hér í kaupfélaginu. Jón ívars- son bar því við að flutningskostnaður á kolin, sem flutt voru frá Norðfirði, hefði valdið hækkun þeirra. Við sendum upplýsingar um þessar hækkanir til Alþýðusambandsins sem lagði síðan fram kæru á hendur Jóni ívars- syni fyrir ólöglegt vöruverð. Daginn eftir var málið tekið fyrir á Alþingi. Málið var lagt VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.