Vinnan


Vinnan - 01.04.1994, Page 28

Vinnan - 01.04.1994, Page 28
28 Gu&ríSur Elíasdóttir: Atvinnuleysi er þjóðarböl sem bægia ver&ur fró með öllum tiltækum róóum Hef ekki fundi& fyrir því aö það væri litið öðruvísi á mig innan verkalýðshreyfingarinnar vegna þess að ég er kona — Alveg frá því aö ég fór aö hafa vit hef ég verið heilluö af verkalýös- málum og jafnaðarstefnunni en þetta tvennt er nátengt í mínum huga, segir Guðríður Elíasdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Framtíðarinnar í Hafnarfirði. Hún er lengi búin að vera í forystufylkingu verkalýðshreyfingarinnar. Meðal annars gegndi hún fyrst kvenna embætti fyrsta varaforseta Alþýðu- sambands íslands. Guðríður er fædd og uppalin á Akranesi, þar sem hún bjó jafnframt sín fyrstu hjú- skaparár. — Akranes var á þessum árum svo- nefndur „kratabær“ þannig að það er ef til vill ekki að undra þótt jafnaðarstefnan hafi orðið mér snemma hugleikin. Að því leyt- inu var ekki mikil breyting fyrir mig að koma hingað til Hafnarfjarðar árið 1945, segir Guðríður, en Hafnarfjörður hefur ver- ið og verður víst að teljast enn eitt höfuð- vígi jafnaðarstefnunnar hér á landi. Guðríður hóf störf við ræstingar þegar til Hafnarfjarðar var komið, í Lækjarskóla, og því starfi sinnti hún í eina sjö vetur. — Ég gekk þá þegar í Framtíðina og var þar frekar virk. Arið 1949 var ég beðin um MYLLAN Kveöja til verkafólks 1. maí að taka við gjaldkerastarfinu til bráða- birgða en það varð tuttugu og eitt ár. Allt er þetta meira og minna tilviljunum háð, segir Guðríður sem tók við formennsku í félag- inu árið 1967. Jafnframt hefur hún verið í framkvæmdastjóm Verkamannasambands- ins til fjölda ára og gegndi að auki stöðu fyrsta varaforseta Alþýðusambandsins næstliðið kjörtímabil. Eftir Ragnar Karlsson Guðríður vill ekki gera mikið úr því að hún hafi verið fyrsta konan sem kjörin var til varaforseta innnan Alþýðusambandsins. Aðspurð segir hún að sér hafi þótt dálítið freistandi að taka þeirri áskorun af þeim sökum að kona hafði ekki áður komist til slíkra metorða innan sambandsins. — Mér fannst þetta vera ákveðinn stökkpallur fyrir konur innan ASI og ég er þess fullviss að konum verður ekki boðið upp á annað en að þær fái að halda sæti fyrsta varaforseta. Kynferði ekki konum fjötur um fót Guðríður segist vera tiltölulega ánægð með stöðu kvenna innan verkalýðshreyf- ingarinnar, enda hafi mikið áunnist á síð- ustu árum við að rétta hlut kvenna. — Það er allt annað að sjá samsetningu miðstjómar ASÍ í dag en var fyrir fáeinum árum. Lengi vel vorum við aðeins tvær konurnar sem áttum sæti í miðstjórninni. I dag erum við allnokkrar sem sitjum þar. Því er oft haldið fram að karlmenn haldi kvenfólki til baka í félagsstarfi. Hefur þú fundið fyrir þessu á vettvangi verkalýðs- hreyfingarinnar? — Nei, að minnsta kosti ekki í seinni. Ég hef ekki getað merkt að ég væri litin öðrum augum af því að ég er kona. Það hefur verið dásamlegt að vinna með öllum í miðstjóminni. Það sem við konur viljum koma áfram getum við en það verður auð- vitað að hafa fyrir því, eins og reyndar öll- um örðum málum. Hitt er annað mál að karlmenn innan verkalýðshreyfingarinnar hefðu oft mátt vera konum hliðhollari, sér- staklega hér áður fyrr, segir Guðríður. Eru þá einhver rök sem mæla með því að halda kynjunum aðskildum í verka- kvennafélögum og verkamannafélögum eins og reyndin er í Hafnarfirði? — Ég hef ekkert verið á móti því að fé- lögin sameinist. An efa verður það reyndin í náninni framtíð að kvenna- og karlafélög sameinist. Þess má geta að síðastliðið haust fór Verkamannafélagið Hlíf fram á það við okkur að hafnar yrðu viðræður um samein- ingu félaganna. Við samþykktum að ganga til viðræðna við Hlífarmenn á síðasta aðal- fundi en það er skammt um liðið þannig að úr frekari ráðagerðum hefur ekki orðið enn sem komið er. Ég vil taka það fram að samstarf félaganna hefur ávallt verið með ágætum. Jafnvel þó að ekki sé um nein sérstök kvenna- og karlamál að ræða innan verka- lýðshreyfingarinnar held ég að starf kvennafélaganna sé méð dálítið ólíku sniði en gengur og gerist innan karlafélaganna. Þessi mismunur í starfsháttum var mun ljósari hér á árum áður. Svo ég taki Fram- tíðina sem dæmi þá fór fram á vegum fé- lagsins ýmis starfsemi sem ekki tíðkaðist hjá körlunum. Hér var boðið upp á marg- víslegar skemmtanir, basara og kaffikvöld sem mikið og óeigingjarnt starf fór í að undirbúa. Af einstökum málum felst þó sérstaða Framtíðarinnar í stofnun og rekstri bama- heimilisins á Hörðuvöllum sem var nýlunda í bænum á þeim tíma. Ég er alltaf stolt af því fyrir hönd félagsins að þetta skuli hafa verið gert af þeim takmörkuðu efnum sem þá voru. Framtíðin rak þetta heimili í mörg ár án þess að bærinn legði nokkuð af mörkum á móti. Formlega séð á félagið dagheimilið en bærinn hefur tekið að sér reksturinn. Þar eru nú milli fjörutíu og fimmtíu böm, segir Guðríður. — Þegar maður lítur til baka er ótrúlegt VINNAN

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.