Vinnan - 01.04.1994, Blaðsíða 34
34
Dagbjört Gubmundsdóttir,
leikskólanum viS Lönguhóla
"Ahuga-
leysi háir
hreyfingunni"
„Þetta er góður vinnustaður. Ég
hef áður unnið við saltfiskverkun og
við aðra fiskvinnslu og í verslun en
ég kann einna best við mig hér. Það
er þroskandi að vinna með bömum.
Sannarlega ekki erfitt. Togar ein-
hvern veginn í það góða í manni.
Þetta ættu allir að prófa. Ég sé ekki
eftir því að hafa breytt um frá salt-
fiskverkuninni.
Mér finnst lífskjörin hafa legið
heldur niður á við. Verkalýðsbarátt-
an mætti vera beittari. Ahugaleysi
háir að vísu hreyfingunni. Fólkið
mætti standa betur að baki forystu-
mönnunum en forystumennirnir
gætu líka hrifið fólk betur með sér
með kraftmeiri framkomu.
Eitt vil ég nefna. Landsbyggðin
situr ekki við sama borð og Reykja-
víkursvæðið þegar verkmenntun er
annars vegar. ASI á aðild að Tóm-
stundaskólanum í gegnum Menn-
ingar- og fræðslusambandið þar sem
hægt er að afla sér verkmenntunar
en starfsemi hans nær aðeins til höf-
uðborgarsvæðisins. Einnig mætti
verkalýðshreyfingin gera meira að
því að stuðla að atvinnusköpun og
örva hvers konar nýjungar. Það er á-
gætlega staðið að félagsmálakennslu
á vegum ASI en þennan verklega
þátt rnætti bæta.“
Innkaupastofnun
ríkisins
Nafni Innkaupastofnunar ríkisins hefur verið breytt
í RIKISKAUR til samræmis við nýja tíma og að
nokkru breytt þjónustusvið.
Innkaupastofnun hefur annast innkaup fyrir
ríkisstofnanir, en einnig margs konar útboð vegna
vörukaupa, verkframkvæmda og þjónustu.
Jafnframt hefur verið lögð aukin áhersla á
viðskiptalega aðstoð og leiðbeiningar um vörukaup.
Þá hefur sala á eignum ríkisins, svo sem notuðum
bílum, fasteignum, tækjum og búnaði, farið fram á
vegum Innkaupastofnunarinnar á undanförnum
árum. Hér hefur því skapast eins konar kaupvangur
á vegum ríkisins og því er við hæfi að breyta nafni
stofnunarinnar í hentugra og þjálla orð.
RIKISKAUP
ú t b o ð s k I I a á r a n g r i !
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK
SÍMI 91-26844, BRÉFAS.91-626739
Hansína Valþórsdóttir
vinnur í fiskvinnsiu hjó
Borgey
"Hœttum
svartsýnis-
rausi"
,,Ég byrjaði að vinna
hérna í humri fyrir 11
árum. Hef unnið hérna
merira og minna síðan og
kann vel við mig. Mér
finnst gaman að vinna í
fiski. Ég er ein af þeim.
Finnst virkilega gaman að
vinna í fiski.
Mér finnst kjörin vera
ágæt. Ef maður fengi bara
taxtana strípaða þá væri
kaupið auðvitað lélegt en
bónusinn gerir það að verk-
um að þetta er ágætt. Mað-
ur þarf auðvitað að vinna
býsna mikið. Ég hef alltaf
tekið alla þá næturvinnu
Sigurður Karl Pólsson
hjó Trévirki ó Höfn
„Stundum
jákvæður
úr hófi
fram/y
„Ég er bara leðurhaus
héma. Ég er búinn að vera á
sjónum mest allt mitt líf eða
í 20 ár. Það er gaman að
breyta svolítið til.
Annars kom það ekki til
af góðu að ég fór í land
akkúrat nú. Ég er lifandi
fómarlamb kvótabrasks. Ég
hætti út af deilum um kvóta-
kaup. Þannig var að ég vildi
ekki taka þátt í kaupum út-
gerðarinnar á kvóta og fór í
land ásamt fleimm. Við upp-
gjör kom í Ijós að útgerðin
dró af mér vegna kvóta-
kaupa. Ég fór í mál og vann.
Við emm að vinna héma
við að byggja íbúðir fyrir
aldraða. Þetta er ágæt vinna
og andinn í fyrirtækinu er
mjög góður. Það eru þrír
smiðir sem eiga þetta fyrir-
tæki.
Kaupið! það er rosalegt
maður að koma í land. Samt
þess virði að geta verið hjá
börnunum og konunni. Og
við hér hjá Trévirki höfum
það ágætt miðað við það
sem ég hef getað þangað til
nýlega; er hætt því núna,
stutt síðan ég ákvað það.
Fólk á að vera bjartsýnt,
hætta þessu svartsýnisrausi.
Rífa sig upp. Það er allt
hægt ef viljinn er fyrir
hendi. Þá hefur fólk gott af
því að hugsa af og til að-
eins út í það hvernig fólk
fór að héma áður fyrr.“
sem gengur og gerist í landi.
En þetta gengur ekki til
lengdar, það er kominn kláði
í mann að komast á sjóinn.
Mér finnst verkalýðs-
hreyfingin hafa staðið sig
vel.Mál hafa hins vegar þró-
ast þannig í þjóðfélaginu að
það er ekkert hægt að gera í
bili. Ég er hins vegar bjart-
sýnn á að úr muni rætast.
Reyndar svo jákvæður að
mér finnst það stundum úr
hófi fram. En það þýðir ekk-
ert annað. Það veltur allt svo
mikið á því hvemig maður
hugsar.
Annars fer óöryggið illa í
mig. Þetta gengur vel hjá
okkur núna hér og maður
veit að svo verður um nokk-
urra mánaða skeið en svo er
þetta verkefni búið og eng-
inn veit hvað við tekur. Það
verður að skapa fólki ör-
yggí-
VINNAN