Vinnan - 01.04.1994, Side 42
Ekki hægt áb fara í
verkfall á miðju kjörtímabili
- tveir verkamenn hjá Stálsmiðjunni gera athugasemd viá skrif Vinnunnar og telja
meá ólíkindum að málgagn ASI skuli halda slíku fram
í 2. tölublaði Vinnunnar, febrúar
1994, birtist greinin „Verkamenn og
Stálsmiðjan taka höndum saman.“ Við
verkamenn í Stálsmiðjunni viljum gera
nokkrar athugasemdir við þessi skrif.
Forsaga málsins er sú að í byrjun síðasta
árs brutu forsvarsmenn Stálsmiðjunnar á
okkur sérkjarasamning. Þessu vildum við
ekki una og eftir nokkurt stapp lauk deil-
unni síðastliðið vor með dómi Félagsdóms.
Þar var Stálsmiðjunni gert að standa við
gerðan samning. Meðan á stappinu stóð
fórum við í aðgerðir sem voru dæmdar
ólöglegar í Félagsdómi síðastliðið haust.
Tveimur dögum eftir málflutninginn fyrir
dómi var einum verkamannanna, Gylfa
Páli Hersi, sagt upp störfum. Við töldum
uppsögnina tengjast vinnudeilunum og því
brot á 4. grein Vinnulöggjafarinnar. Enn
kom til kasta Félagsdóms. Þar var gerð
sátt. Hún fól meðal annars í sér að Gylfi
skyldi halda áfram störfum ef verkefni
væru fyrir hendi um áramótin. Verka-
mannafélagið Dagsbrún taldi að Stálsmiðj-
an hefði síðan brotið sáttina þar sem for-
svarsmenn fyrirtækisins sögðu ekki rúm
fyrir áframhaldandi starf Gylfa Páls eftir
áramót.
Dagsbrún leit þetta mál mjög alvarleg-
um augum, enda um heiður félagsins að
tefla. Verkamanni er sagt upp störfum
vegna þátttöku hans í vinnudeilum, gerð er
sátt með aðild félagsins og hún síðan rofin.
Félagið haft að engu. Til þess að ná fram
rétti sínum ákvað stjóm og trúnaðarmanna-
ráð félagsins á fundi sínum í janúar að afla
verkfallsheimildar til þess að krefjast þess
að Stálsmiðjan stæði við niðurstöðu Fé-
lagsdóms. A sama tíma og tekist var á um
uppsögnina stóð slagur um 12,5% kaup-
lækkun allra starfsmanna Stálsmiðjunnar,
um 100 talsins. Væri kauplækkunin ekki
samþykkt væri litið svo á sem menn hefðu
sagt upp. Eftir nokkurt þref var gerður nýr
vinnustaðasamningur þar sem fallið var frá
kauplækkuninni í stað ýmissa hagræðinga
og sparnaðaraðgerða sem leiddu til nokk-
urrar kjararýrnunar en styttri vinnutíma.
Við Dagsbrúnarmenn erum ekki tilbúnir að
gefa eftir kaup eða réttindi gegn vafasöm-
um loforðum sem við vitum að standast
ekki. Eins og t.d. að ef við vinnum ókeypis
fáum við kannski að halda vinnunni í
skipasmíðaiðnaði í nokkur ár, kannski alla
ævi, sem gæti orðið stutt. Þannig lá alltaf
ljóst fyrir að Dagsbrúnarmenn í Stálsmiðj-
unni samþykktu ekki nýjan vinnustaða-
samning fyrr en gengið væri frá ráðningu
Gylfa Páls.
Grein Vinnunnar byggir á makalausri
grein í Dagsbrúnarblaðinu frá febrúar
1994, þar sem ekkert samráð var haft við
verkamennina. Yfirskrift greinarinnar í
Vinnunni, „Verkamenn og Stálsmiðjan
taka höndum saman“, er út í hött. Það var
gert samkomulag, sem er ekki það sama og
að haldast í hendur, dansa saman, fara í
bíó, eða samþykkja að fara eftir leikreglum
þess sem öllu ræður. Okkur finnst slæm
blaðamennska að apa upp svona grein.
Vinnan er málgagn ASI, væntanlega þar
með einnig málgagn okkar í Stálsmiðjunni.
Vinnan birti í fyrravor að okkar frumkvæði
grein um átökin í Stálsmiðjunni. Vinnan
hefur að öðru leyti ekki fjallað um þá bar-
áttu sem við höfum staðið í, s.s. uppsagnir
og kauplækkunaráform. Þó var fjallað ítar-
lega um þessi mál í öðrum fjölmiðlum.
Hins vegar fjalla forystumenn ASÍ iðulega
um vandamál eigendanna í skipasmíðaiðn-
aði eins og verið sé að tala um miðalda-
samfélag þar sem daglaunamenn mega
þiggja molana sem hrynja af borðunum, éta
annars það sem úti frýs.
I grein Vinnunnar er því haldið fram að
verkfallsheimildar hafi verið aflað „...enda
leit ekki út fyrir það um tíma að samninga-
umleitanir bæru árangur." Fyrr í greininni
segir: „Við lá að til verkfalls kæmi í janúar
eftir að starfsmönnum voru settir þeir úr-
slitakostir að samþykktu þeir ekki 12,5%
kauplækkun..."
Það er með ólíkindum að málgagn ASÍ
haldi því fram að hægt sé að fara í verkfall
á miðju samningstímabili (samningar renna
út um næstu áramót). Samkvæmt aftur-
haldslögum ber félaginu friðarskylda og
slfk verkföll komu aldrei til tals. Verkfalls-
heimild Dagsbrúnar snerist um að staðið
yrði við niðurstöðu Félagsdóms í uppsagn-
armáli Gylfa Páls og ekkert annað.
Annað er það að stuðningur ASI við
okkur í uppsagnarmálinu, er Stálsmiðjan
braut á okkur sérkjarasamning og reyndar í
öllum þrýstingnum um kauplækkanir, var
rýr. Þó áttum við fund með forseta sam-
bandsins, lögfræðingi þess og hagfræðing-
um um uppsögnina. Lögfræðingnum þótti
málið „interessant“, væntanlega út frá lög-
fræðilegri hlið mála. Þegar við leituðum
fyrst til skrifstofu ASI var okkur tjáð að
málið væri vonlaust og reynt að telja úr
okkur kjark. Það er athyglisvert að fram-
kvæmdastjóri VSÍ virtist ávallt reiðubúinn
að styðja við bakið á sínum mönnum með
viðtölum í fjölmiðlum. Hann var ekki í
nokkrum vafa um sína afstöðu.
Hjá okkur verkamönnunum var sam-
staðan órjúfanleg og lykilatriðið. Dagsbrún
stóð við bakið á okkur, VMSÍ studdi okkur
og Atli Gíslason, lögfræðingur Dagsbrúnar,
vann sitt verk vel. Um alla borg og reyndar
víða um land hafði fólk skilning á málinu.
Það er mikilvægt, ekki hvað síst á tím-
um eins og nú, að verkafólk geti notað sín
samtök og málgagn. Það á að grundvalla
skrif sín á umsögn þess verkafólks sem í
baráttunni stendur.
Arni H. Kristjánsson trúnaðarmaður,
Gylfi Páll Hersir
Veislusalir
tilmannfagnaðar
sjáum um veislur, fundi, ráðstefnur
og annan mannfagnað.
Veisiuföngin færðu hjá okkur.
VEISLU-RISIÐ
Rlslnu Hverflsgötu 105
Sími 62 52 70
VINNAN