Stefnir - 01.03.1951, Side 37

Stefnir - 01.03.1951, Side 37
INNLEND STJÓRNMÁL 35 erlendar skuldir orðnar nær 100 millj. kr. Samsvarar það 1000 millj. kr., einum milljarði, miðað við núverandi þjóðartekjur og peningagildi. Hafa íslenzkar rík- isskuldir aldrei, fyrr né síðar, orðið jafn háar. Það sætir þess vegna ekki lítilli furðu þegar að Framsóknarflokkurinn reynir að telja þjóðinni trú um að hann hafi haft forystu um gætilega fjármálastjórn. Þegar þetta er rit- Vinnufriður. að eru nokkrar horfur á að til átaka dragi um kaupgjaldsmálin á næstunni. Stjórn Alþýðusam- hands íslands gaf um s.l. áramót út áskorun til félaga sirma að segja upp samningum og krefj- ast kaup'hækkana. Aðeins örfá verkalýðsfélög hafa að vísu orð- ið við þeirri áskorun. En verk- föll hafa nú verið boðuð á nokkrum stöðum. Engan þarf að undra þó að samtök launþega séu uggandi um afkomu meðlima sinna um þess- ar mundir. Verðlag hefur farið hækkandi og erfiðara hefur orðið að láta launin hrökkva fyrir nauð- synjum fólksins. En því miður eru engar horfur á að launþegar geti aflað sér raunverulegra kjarabóta með almennum kaup- hækkunum eins og atvinnumál- um þjóðarinnar er nú háttað. Hitt er líklegra, að í kjölfar þeirra rynni enn aukin dýrtíð, þverrandi atvinna og stórauknir erfiðleikar atvinnuveganna og alls almennings. Það er þess- vegna mikil skammsýni af for- ystumönnum launþegasamtakanna að hvetja nú til átaka um kaup- gjaldsmálin. En ástæða þeirrar ráðabreytni er fyrst og fremst ótti og kapphlaup Alþýðuflokks- ins við kommúnista. Verður það stöðugt auðsærra, hvílík ógæfa klofning verkalýðshreyfingarinn- ar er fyrir þjóðina. Hún hefur beinlínis leitt til þess, að leið- togar Alþýðuflokksins hafa geng- ið í berhögg við alla skvnsemi í efnahagsmálum þjóðarinnar síð- an að flokkur þeirra „dró sig út úr pólitík“. Á s.l. vetri urðu Fráleit sendiherraskipti í ummœli Kaupmannahöfn. íslenzks fakob Möller lét sendiherra. af starfi, en við tók Stefán Þorvarðar- son, sem áður hafði gegnt sendi- herrastarfi í London. Við komu sína til Kaupmannahafnar lét hinn nýi sendiherra svo um mælt við danskt blað, að „hann harm- aði að skilnaður íslands og Dan-

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.