Stefnir - 01.03.1951, Side 46

Stefnir - 01.03.1951, Side 46
44 STEFNIR hefur því enn meiri þungi hvílt á þorskinum, ef svo mætti að orði kveða. En nú er þess einnig farið að gæta mjög, að þorskafli fari minnkandi og má vel svo fara áður en lýkur, að sú stoð bresti einnig undan þeim ofur- þunga, sem á hana er lagður með gengdarlausri veiði. Það er því afar þýðingarmikið, að samhliða aukinni friðun hinna þýðingarmestu nytjafiska sé þess freiistað að auka hagnýtingu fisk- tegunda, sem vitað er um að til eru í miklu magni og unnt er að ná til. Það mun vera skoðun fiski- fræðinga að utan landgrunnanna eða í dýpra vatni en 500—1000 m. sé yfirleitt ekki að finna fisk- tegundir, er þýðingu hafi nema, þar sem um er að ræða fiskitorf- ur á leið milli landa. f Norður-Atlantshafi er þó vit- að um eina fisktegund, þýðingar- mikinn nytjafisk, sem er undan- tekning frá reglunni. Er það karf- inn (Sebastes marinus). Virðist hér vera um að ræða fisktegund, sem vegna þess magns, sem er af henni í sjónum og þar sem hún er þegar víða viðufr- kennd sem ágætur matfiskur, gæti að einhverju leyti a. m. k. komið í stað hinna annarra fisk- tegunda, sem hingað til hafa bor- ið uppi veiðina. Rannsóknir, sem gerðar hafa verið á undanförnum áratugum hafa leitt í ljós að karfinn hrygni á tvimur gífurlega stórum svæð- um um norðanvert Atlantshaf. Er talið að hrygningarsvæðin nái yfir um 2,5 millj. km2. Hið minna þetssara svæða er undan vesturströnd Noregs en hið stærra suður og vestur af íslandi, suð- ur með austurströnd Grænlands og langt suður í haf, allt að 50° breiddargráðu. Þessar rannsóknir hafa enn- fremur leitt í ljós, að mergð karf- ans í sjónum er miklu meiri en t. d. þorsksin og síldarinnar. I þessu sambandi verður þó að geta þess, að mestur hluti þess svæðis, sem karfinn lifir á, er með öllu óaðgengilegur fyrir fikiskip með þeim veiðarfærum, sem nu eru þekkt og eru því ekki mögu- leikar eins og nú háttar, að hag- nýta nema lítinn hluta karfa- stofnisins eða það, sem kemur upp á landgrunnið á dýpi, sem viðráð- anlegt er að fiska á. Samanbor- ið við þorskinn getur karfinn ekki talist frjósamur fiskur. í einni þroskhrygnu er talið að fjöldi eggjanna geti orðið 10— 15 millj. Karfinn gýtur hins veg- ar lirfum og koma úr hverri hrygnu 100—200 þús. aðeins. En af hinum mikla fjölda þorsk-

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.