Stefnir - 01.03.1951, Side 54
52
STEFNIR
til 'þess að brjóta sér braut til
efnalegs sjálfstæðis. Þetta var
það, sem þjóðin kaus.“
Robert G. Menzies, formaður
Frjálslynda flokksins í Ástralíu
og núverandi forsætisráðherra,
segir: „Ástralía er land með
mörg tækifæri fyrir ævintýraþrá
og hugkvæmni æskunnar. Sósíal-
istar komu mönnum til þess að
líta á framtíðina með augum
hinna öldruðu og þreyttu. I stað-
inn fyrir hið karlmannlega kjör-
orð brautryðjandans: „Látið mig
glíma við vandamálin, ég skal
leysa þau,“ settu þeir mönnum
kjörorðið: „Látið ríkisstjórnina
leysa vandamálin.“
Lítum nú nánar á hvað raun-
verulega gerðist hjá fólkiriu í
Ástralíu og Nýja-Sjálandi, þegar
það „lét ríkisstjórnina um að
leysa vandamálin.“
Fyrir fimm árum síðan ætlaði
Verkamannastjórnin í Ástralíu
að þjóðnýta hina arðbæru og sí-
vaxandi loftflutninga landsins.
Lögin um það voru dæmd and-
stæð ákvæðum stórnarskrárinnar
og urðu því ekki framkvæmd.
Sósíalistar hugðust þá ná mark-
miði sínu með því að beita fjár-
hagslegum þvingunum af hálfu
stjórnarinnar, stofnsettu ríkisfyr-
irtæki til að reka flugferðir —
Trans-Australia-Airways — og
ætluðu með því að knésetja flug-
félögin, sem rekin voru af ein-
staklingum.
Starfslið til hins nýja fyrir-
tækis ríkisstj órnarinnar, TA A,
var fengið frá flugfélögum ein-
staklinganna með því að greiða
því stórum hærri laun, en svo
mikil var óstjórnin hjá þessu
nýja fyrirtæki, að samkvæmt
einni álitsgerð hafði það við flug-
vallaþjónustu og afgreiðslu átta
menn við störf, sem einn maður
innti af hendi hjá flugfélögum
einstaklinga. Ekki voru teknar
upp ferðir á öllum flugleiðum
Australian National Airways,
stærsta flugfélagsins, sem ein-
staklingar áttu. TAA fékk aukinn
benzínskammt eftir þörfum, en
flugfélögunum var neitað um
nokkra aukningu á benzín-
skammti, til þess að þau gætu
ekki aukið starfsemi sína.
ANA hafði sérstaka samninga
um póstflutninga, en nú var TAA
látið fá póstflutningana, og það
fyrir hærra gjald. ANA var svipt
hinum arðbæru Kyrrahafsferðum
sínum, og TAA var látið fá 'þær
áætlunarferðir jafnframt því, að
fargjöldin voru hækkuð. Starfs-
mönnum ríkisins voru gefin bein
fyrirmæli um það, að ferðast með
TAA. Þegar einkafyrirtæki sóttu
um að fá að kaupa nýjar flugvéb