Stefnir - 01.03.1951, Side 57

Stefnir - 01.03.1951, Side 57
KYNNI ÁSTRALÍUM. OG NÝ-SJÁL. AF SÓSÍALISMANUM 55 Sósía'istanna þanið svo út skrif- stofuveldi ríkisins, að nú vinnur þar fjórði hver vinnufær maður í þjónustu ríkisins. Skattar námu þar síðastliðið ár nær 40% af heildartekjum þjóðarinnar. Bæði í Ástraíu og Nýja Sjá- landi hefur verðbólga sú, sem ríkisstjórnirnar hafa skapað, gert mönnum auðveldara að afla sér peninga. Að þetta var „sósíal- isma-velmegun“ var augljóst hverri húsmóður, er hún fór til að kaupa inn nauðsynjar handa heimilinu. Frá því fyrir stríð hafa Sósíalistar lækkað kaupmátt pundsins um helming. Það hefur þá einnig lækkað um helming verðgildi sparifjár, líftryggingar- skírteina, eftirlauna og bóta frá alþýðutryggingunum. Samtímis hafa árásir Sósíalista á frjálst framtak, loforð þeirra um „eitthvað fyrir ekkert,“ og hið pólitíska dekur þeirra við Komm- únista, leitt af sér aukin verkföll, minna framtak og ískyggilegan samdrátt hinna þýðingarmestu framleiðslugreina. Samkvæmt yfirliti, sem gert var síðastiliðinn vetur, þá átti Ástralía heimsmet í verkföllum þrjú næstu árin á undan. „Það er herfileg blekking Sós- íalismans,“ stóð í áströlsku kosningaávarpi, „að við getum orðið auðugri með því að fram- leiða minna.“ Þessi blekking hef- ur orsakað mikinn samdrátt á iðnaðinum. Þrátt fyrir 50% aukn- ingu vinnuafls við ástralska iðn- aðinn, þá hefur afkastaaukning hans eftir stríðið orðið stórum minni, en hjá nokkurri annarri sambærilegri þjóð. Til þess að halda framleiðslunni niðri og tryggja næga atvinnu þá voru margar iðngreinar settar undir „The Darg“-skipan, sem samtök iðnverkamanna komu á, þar sem hámarksafköst hvers verkamanns voru ákveðin, að viðlögðum þungum sektum, ef útaf var brugðið. Þar sem Verkamannastjórnin hafði lofað að auka kolafram- leiðsluna þá hækkaði hún laun námumanna mjög,veitti þeim auknar tómstundir og stofnsetti sérstakt ráðuneyti, til þess að gæta hagsmuna þeirra. Á kostnað ríkisins var námumönnunum séð fyrir tennisvöllum, „bowling11- brautum, íþróttatækjum, bóka- söfnum og kvikmyndum. Öll þessi fríðindi gátu þó ekki þaggað niður hinn and-kapital- istiska áróður hinna herskáu leiðtoga námumannasamband- anna. Er kolaframleiðslan á ár- unum 1939—1948 jókst í Can- ada um 17% í Suður-Afríku um

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.