Stefnir - 01.03.1951, Side 66

Stefnir - 01.03.1951, Side 66
64 STEFNIR arins, holræsagerð hefur verið mikil og nýtt rafmagnskerfi hefur verið lagt í bæinn, en rafmagnsorkan er fengin frá Andakílsárvirkj- uninni, sem er í sameign bæjarins og Mýra- og Borgarfjarðarsýslna. Fyrir skömmu var ákveðið að reisa skyldi fyrirhugaða sements- verksmiðju á Akranesi, enda er bærinn einkar vel settur með tilliti til þess að hún verði staðsett þar. Nægilegt rafmagn og vatn og að- stæður til flutninga á sjó og landi, hvort tveggja hinar beztu. Skelja- sandur, sem er aðalhráefni sementsins svo mikill, á næstu slóðum, að nægja mundi mörgum verksmiðjum í hundrað ár. Væntanlega verður hafist handa um að reisa sementsverksmiðjuna hið bráðasta, enda er þess sízt vanþörf núna. Á Akranesi eru íbúar nú kringum 2600 og fer ört fjölgandi. Bú- ast má þó fynst við verulegri fjölgun, þegar hafist verður handa um byggingu sementsverksmiðjunnar, enda verður athafnalíf þá fjöl- breyttara á Akranesi, heldur en verið hefur. Má með sanni segja, að atvinnuvegir Akurnesinga séu ekki aðrir en sjávarútvegur og lítils háttar landbúnaður og jarðrækt. Þetta er alltof einhæft og þarfn- ast skjótra breytinga, ef bærinn á að halda viðgangi sínum og vexti. Möguleikar til stóraukins landbúnaðar og efling iðnaðar á staðnum er rík nauðsyn. Það verður ekki isvo við þessar línur skilið, að maður hljóti ekki að minnast á það, að einmitt einstaklingsframtakið hefur hér átt sinn ríkasta og snarasta þátt í framförum og framkvæmdum þessa bæjar. Hinir ötulu og framsæknu dugnaðarmenn, sem hafa rutt bæn- um braut til velfarnaðar hafa allir verið ótrauðir merkisberar sjálf- stæðisstefnunnar, þeirrar einu stefnu sem lætur eftir sig veruleg merki framkvæmda. Gucjl. Einarsson. MAÐUR skyldi aldrei treysta konu, sem- segir rétt til uni aldur sinn, 'því a3 sú kona getur ekki þagaS yfir neintt. — Oscar lP'ilde.

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.