Stefnir - 01.03.1951, Side 77

Stefnir - 01.03.1951, Side 77
BRAUÐBITI OG LÍKKISTA 75 dagarnir liðu hver af öðrum, án þeiss að hann kæmi. Svo var það kvöld nokkurt að einhver kom með þá fregn, að hann hefði fallið. Hvernig? Hvar? Hvenær? Hann var dáinn, svo mikið var víst, en hvernig það bar að var óljóst. í tvær vikur, eins og venja var eftir siðvenjum staðarins, sá eng- inn Katrínu. Hún lokaði sig inni með sorg sína, ásamt nokkrum kon- um úr nágrenninu. Á meðan reyndi svo bróðir hennar að fá gleggri upplýsingar um hvernig dauða sonarins hefði borið að höndum. Allt, sem hann gat komist að, var að drengurinn hafði verið drepinn ekki langt frá þorpinu, þegar styrjöldin var alveg á enda eða jafnvel búin. Það hafði heldur ekki skeð í raunverulegri orustu heldur í minniháttar bardaga eða skærum, og einhvern veginn var erfitt að skilja það allt saman. „Hvar jörðuðu þeir hann,“ spurði ICatrín. „Bara úti á víðavangi eða í kirkjugarði. Hún fór til sóknarprestsins til að fá upplýsingar og ráð, en hann gat hvorugt gefið henni. „Þessi styrjöld var flóknari en aðrar styrjaldir,“ sagði hann. „Sumir voru skotnir í ennið, aðrir í bakið.“ Katrín vann bug á hlédrægni sinni og fór til oddvitans. „Ég verð að minnsta kosti að fá að vita,“ sagði hún auðmjúklega, „hvort vesalings sonur minn hefur verið jarðaður í vígðri mold?“ „Ég skil ekki þessa forvitni yðar,“ svaraði oddvitinn. „Hann er hvort sem er dáinn, svo ég skil ekki hvaða mismun það gerir?“ Þá leitaði Katrín uppi hermanninn, sem hafði flutt fregnina um fall sonarins. Dag nokkurn fór hún svo ásamt honum, með asnann í taumi, í áttina til þess landshluta, þar sem sonur hennar hafði verið drepinn. Og viku síðar komu þau til baka og nú var á baki asnans löng og þung tinlíkkista, sem þau fluttu til kirkjugarðsins í þorpinu. „Gaztu nú ekki látið hann vera, þar sem búið var að grafa hann?“ sagði kirkjugarðsvörðurinn gremjulega. „Nú verð ég að tilkynna þetta til yfirvaldanna." „Hann var ekki jarðaður í kirkjugarði,“ sagði Katrín. „Þeir höfðu bara kastað honum í dýki í hnotviðarskógi, ásamt öðrum.“

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.