Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 8

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 8
Landsfundur 1981 kjördæmamálsins og lækkun verðbólgu. Þar voru kynntar hugmyndir um skattalækkanir, tryggingabætur og slit þeirrar sjálfvirkni launa og verðlags, sem einkennir vítahring verðbólgu. Eftir að fulltrúar allra stjórnmála- flokka höfðu reynt stjómarmyndun fól forseti Islands þeim öllum sameiginlega að reyna myndun meirihlutastjórnar og var þá viðræðum allra fjögurra haldið áfram og það er sannfæring mín, að þær hefðu annað hvort leitt til þjóðstjórnar fjögurra flokka, annars konar meiri- hlutastjórnar eða minnihlutastjómar sjálfstæðismanna, ef nokkra sjálfstæðis- menn hefðu ekki brostið þolinmæðina og þeir ekki gengið andstæðingunum á hönd. Mér hefur verið legið á hálsi fyrir þjóð- stjórnarþráhyggju. En auk þess sem þjóðstjórnartilraunir vom til þess fallnar að brjóta einangrun Sjálfstæðisflokksins á bak aftur, þá var það sannfæring mín, að við Islendingar verðum að gera þjóðarsátt til að sigrast á erfiðleikum okkar, komast úr úr vítahring verðbólgu og hefja stórsókn í atvinnumálum, sókn til bættra lífskjara. Ef sjálfstæðismenn áttu að vera sjálf- um sér samkvæmir fyrir og eftir kosning- ar þá var þeim nauðsynlegt í þátttöku í ríkisstjórn að verulegt skref væri stigið í baráttu gegn verðbólgu, rekstrarskilyrði atvinnuveganna bætt svo að þeir gætu í framtíðinni greitt hærra raunvemlegt kaup og samhliða væri dregið úr ríkisum- svifum og skattheimtu. Sagt var, að stjórnarkreppan hefði staðið lengi, en stjómarmyndunartil- raunir hafa oft staðið lengur á íslandi og staðfestu þarf að sýna, ef árangur á að nást. En fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins gengu til þessa stjórnarsamstarfs með hjálp þess fimmta, án þess að fá einu einasta stefnumáli sjálfstæðismanna framgengt. Það er ljóst að þessir þingmenn hafa brotið í bága við skipulagsreglur Sjálf- stæðisflokksins, þar sem segir í 10. gr.: ,,Flokksráð markar stjórnmálastefnu flokksins, ef ekki liggja íýrir ákvarðanir landsfundar. Ekki má taka ákvörðun um afstöðu flokksins til annarra stjórnmála- flokka nema með samþykki flokksráðs.” Þetta ákvæði tekur til allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins, minnihluta sem meirihluta. Klofningurinn Og það er algerlega ósambærilegt að líkja núverandi klofningi um afstöðu til ríkisstjórnar við ágreining um ný- sköpunarstjórnina. Þá réð meirihlutinn, hvað úr varð og hvers konar ríkisstjórn var mynduð. Nú ræður minnihlutinn í Sjálfstæðisflokknum ferðinni og hvaða ríkisstjórn situr að völdum. Leikreglur lýðræðis og samþykktir tlokksins hafa verið þverbrotnar. Núverandi ríkisstjórn er í raun beint áframhald af vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar, nema áhrif kommúnista eru mun meiri í þessari ríkisstjórn en ríkisstjórn Ólafs, enda eru formælendur kommúnista ósparir að halda því á lofti, eins og nú síðast á alþingi fyrir tveim dögum. Allir sjálfstæðismenn voru sammála um að vera í harðri andstöðu við ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar. Öll sömu rök og raunar sterkari og fleiri liggja til þess að allir sjálfstæðismenn ættu að vera í andstöðu við núverandi stjórn. Þingflokkur, miðstjórn og flokksráðs- fundir í febrúar og nóvember sl. hafa og með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða kveðið upp úr með ákveðna stjórnar- andstöðu flokksins, auk ályktana lands- samtaka. Landsfundur, æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins, hlýtur að kveða upp sinn dóm og staðfesta þær ályktanir, sem aðrar flokksstofnanir og samtök hafa gert eða rifta þeim að öðrum kosti. En ég legg áherslu á að sá ágreiningur, sem nú ríkir í Sjálfstæðisflokknum, er bundinn við afstöðuna til núverandi ríkisstjórnar, myndunar hennar, stefnu og starfa. Ráðherrar úr hópi sjálfstæðismanna hafa látið orð liggja að því, að ágreining- urinn sé víðtækari og snúist um frjáls- lyndi eða íhaldssemi. Ég er algerlega ósammála því, að sjálfstæðismenn séu dregnir í dilka og flokkaðir með þessum hætti, en spyrja má stjórnarsinna, sem það gera, hvað þeir telja frjálslyndi og hvað íhaldssemi? Orð Jóns Þorlákssonar Jón Þorláksson, fyrsti formaður Sjálf- stæðisflokksins, fjallaði einu sinni um muninn á íhaldi og umróti annars vegar og frjálslyndi og stjórnlyndi hins vegar og sagði: „Munurinn á íhaldsstefnu og umróts- stefnu er sá, að íhaldsstefnan spyr: ,,Hvað hefur reynst vel á þessu sviði hingað til? Það, sem vel hefur reynst, viljum vér til fyrirmyndar hafa, viljum varðveita það. Vér viljum ekki breyta til, nema oss þyki sýnt, að nýjungin sé betri. En umrótsstefnan festir augun á göllum hinnar eldri tilhögunar, sem einatt verða auðfundnir í þessum ófull- komna heimi, og segir: Burt með það gamla og gallaða, vér viljum reyna eitt- hvað nýtt.” Munur á frjálslyndi og stjórnlyndi er hins vegar sá, að „önnur stefnan heldur því fram, að hver einstaklingur eigi að vera sem frjálsastur sinna athafna innan þeirra takmarka, sem lögin setja til varnaðar gegn því, að einstaklingarnir vinni hver öðrum eða félagsheildinni tjón. Hún lítur svo á, að verkefni ríkis- valdsins sé einkanlega það, að vernda heildina gegn utanaðkomandi árásum og einstaklinga hennar gegn yfirgangi lóg- brjóta og misindismanna. Þessi stefna hefur mjög oft kennt sig við frjálslyndið, og er það fremur vel valið heiti, því að frjálslyndið, þ.e. vöntun á tilhneigingu til þess að gerast forráðamaður annarra, er sjálfsagt höfuðeinkenni þess lundar- fars, sem markar stefnuna. Höfuðrök- semd þeirrar stefnu fyrir málstað sínum er sú að þá muni mest ávinnast til almenningsheilla, er hver einstaklingur fær fullt frjálsræði til að nota krafta sína í viðleitninni til sjálfsbjargar, öðrum að skaðlausu. Andstæðingar þessarar stefnu eru þeir menn, sem vilja láta félagsheildina eða ríkisvaldið setja sem fyllstar reglur um starfsemi einstaklinganna, banna margt, leyfa fátt og skipulagsbinda allt. Þeir halda sig geta beint átökum einstakling- anna í rétta átt með því að gefa nógu ýtarleg lagaboð og reglur um starfsemi þeirra, en gæta miður að hinu, að um leið og einstaklingurinn er sviftur frelsinu, þá er venjulega þar með kæfð löngun hans til að beita kröftunum, og frost kyrrstöð- unnar færist yfir þ jóðlífið... Ég þekki ekkert sameiginlegt heiti, sem þessi stefna hafi borið í mörgum löndum eða á ýmsum tímum... En mér finnst, að orðið stjórnlyndi megi vel nota sem lýsingu á því lundar- fari, sem er undirrót stefnunnar.” Frjálslyndi eða stjórnlyndi Ég held, að enginn sjálfstæðismaður kippi sér upp við það að vera frjálslyndur íhaldsmaður enda Sjálfstæðistlokkurinn orðinn til fyrir sameiningu Frjálslynda flokksins og íhaldsflokksins, en Sjálf- stæðismaður frábiður sér að vera stjórn- lyndur íhaldsmaður. Það lundarfar eftir- látum við andstæðingunum. Hvort ber það vitni frjálslyndi eða stjórnlyndi að standa að öllum vinstri- stjórnarsköttum síðustu 3 ára og hækka beina skatta um 30-40% frá því sem var í tíð stjórnar sjálfstæðismanna á árinu 1977? 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.