Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 9

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 9
Landsfundairæða Geirs Hallgnmssonar Hvort er það frjálslyndi eða stjórn- lyndi að þykjast frysta innlent sparifé, en vísa svo opinberum stofnunum og einka- fyrirtækjum á erlend lán og flytja þannig bankastarfsemina að þessu leyti út úr landinu eins og heildverslunina áður vegna óraunhæfra verðlagshafta? Gera stjórnarherramir sér þess ekki grein eins og aðrir, að innlend bankastarfsemi og verslun voru og eru forsendur sjálfstæðis þjóðarinnar? Hvort er það frjálslyndi eða stjórn- lyndi að móta þá stefnu í húsnæðismálum að ungu sem eldra fólki er gert ókleift að byggja yfir sig og sína? Um leið eru landsmenn dregnir í dilka. Sumir fá 90% lán, en mega ekki einu sinni hafa meðal- tekjur verkamanna, svo að þeir geta ekki staðið undir láninu. Hinir fá lán innan við20% af byggingarkostnaði. Hvort er það frjálslyndi eða stjórn- lyndi að hverfa enn frekar frá því tak- marki að hver fjölskylda eigi eigin íbúð með því að hækka fasteignaskatta og eignaskatta og setja ný lagaákvæði um leiguhúsnæði, sem leitt hafa til húsnæðis- kreppu á höfuðborgarsvæðinu á 3 ára valdatíma vinstri stjórna í landi og borg? Þarf frekar vitnanna við, þegar kommúnistinn í forsæti höfuðborgarinn- ar kallar á leigunám, húsnæðisskömmt- un eins og fulltrúi Framsóknar fyrir 30 árum? Hvort er það frjálslyndi eða stjórn- lyndi að stöðva virkjun fallvatna, hindra eigin fjármagnsmyndun orkufyrirtækja, reka þau með tapi og erlendum lántök- um og huga alls ekki að sölu orku til stóriðju heldur þvert á móti spilla fyrir þróun þeirra mála til bættra lífskjara og fleiri starfa fyrir landsmenn eins og iðnaðarráðherra hefur gert og ríkis- stjórnin lagt blessun sína yfir? Hvort er það stjórnlyndi eða frjáls- lyndi að beita leyfum og bönnum, höft- um og hömlum til þess að vinna bug á verðbólgu að sovéskri og pólskri fyrir- mynd að skapa einstaklingum og fyrir- tækjum skilyrði til að láta hendur standa fram úr ermum, auka framleiðslu, fram- leiðni og fjölbreytni og vinna sig þannig út úr vanda og verðbólgu? Allar eru þessar spumingar byggðar annars vegar á stefnu Sjálfstæðisflokks- ins og hins vegar gerðum núverandi ríkis- stjórnar og annarra vinstri stjórna sl. 3 ár. Þátttaka sjálfstæðismanna í núverandi ríkisstjórn samrýmist því ekki stefnu Sjálfstæðisflokksins eins og hún hefur verið mótuð á 23 undanförnum lands- fundum. Þótt ég hafi hér sérstaklega vitnað í ummæli Jóns Þorlákssonar um frjáls- lyndi og stjórnlyndi, þá er enginn vafi á því, að Ólafur Thors, Bjarni Benedikts- son og Jóhann Hafstein tóku að þessu leyti undir og fylgdu fram í orði og verki sömu stefnu. Forystuhlutverkið Auðvitað hafa orðið miklar breytingar á hálfri öld bæði hér og annars staðar í heiminum, ekki síst frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Hagvöxtur hefur aukist í kjölfar frjálsari viðskipta þjóða á milli, frumkvæðis, framtaks og frelsis í atvinnumálum vestrænna ríkja. í krafti 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.