Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 27

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 27
Slörf landsfundar persónulegan metnað. Sjálfstæðismenn og þjóðin öll stendur í mikilli þakkar- skuld við Jóhann Hafstein og frú Ragnheiði Hafstein. Við sendum frú Ragnheiði og fjölskyldu hennar blessun- aróskir. Við minnumst lokaorða í landsfundar- ræðu Jóhanns Hafstein 1973: ,,Góðir sjálfstæðismenn. Við skulum gera okkur fulla grein fyrir því mikilvæga hlutverki, sem flokkur okkar á að rækja nú sem endranær. Sjálfstæðisflokkurinn er víðfeðmasta og sterkasta aflið í þjóðfélaginu til þess að viðhalda trausti og festu, trú á landið og framtíð þjóðarinnar. í lífsskoðun og hugsjónum Sjálfstæðisstefnunnar er kjölfesta komandi kynslóða. I trausti á Guð og góðan málstað viljum við heyja baráttu okkar fyrir vax- andi samhug og heill allra íslendinga, sem lifa og stríða við nyrstu höf í nábýli við elda og ísa. Ég bið þess, að miskunn forsjónarinn- ar verði Islandi holl um alla framtíð til farsældar fyrir aldna og óborna.” Pessi orð Jóhanns Hafstein, okkar látna leiðtoga, munu verða okkur Ieiðar- ljós á 24. landsfundi Sjálfstæðisflokksins og endranær.” III. Fundarhaldið I eftirfarandi kafla verður gefið stutt yfirlit um sjálft fundarhald landsfundarins. Annar fundur landsfundarins hófst í Sigtúni kl. 20.30 að kveldi fimmtudags- ins 29. október. Fundarstjóri var frú Margrét Einarsdóttir, formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, Reykjavík og fundarritarar þau Gunnar Hauksson, Reykjavík og frú Kristjana Ágústsdóttir, Búðardal. Fundurinn hófst með því að fundar- stjóri kynnti hvaða nefndir myndu starfa á landsfundinum, en alls störfuðu þar 15 nefndir.^á-gerði fundarstjóri grein fyrir nýju kosriingafyrirkomulagi miðstjórn- ar, en vegna miðstjórnarkjörs starfar nú sérstök kjörstjórn, sem tekur við skrif- legum framboðum til miðstjórnar. Þá kynnti fundarstjóri að kjördæmanefndir myndu starfa að venju. Að þessu loknu var gengið til kjörs stjórnmálanefndar fundarins, en það var eina nefndin, sem sérstaklega var kosið til, aðrar nefndir voru opnar öllum fundarmönnum, en aðeins tilnefndir umræðustjórar í þeim. Næst á dagskrá fundarins var starfsemi Sjálfstæðisflokksins, skipulagsmál hans og almennar umræður. Til máls tók framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Formaður Sjálfstœðisflokksins, Geir Hallgrímsson, og varaformaður Sjálfstœðisflokksins, Friðrik Sophusson. Kjartan Gunnarsson og flutti skýrslu um starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Ræddi hann um flokksstarfið alfnennt, mikil- vægi félaganna og öflugs starfs þeirra, nauðsyn traustrar og öruggrar fjárhags- stöðu flokksins og helstu verkefni, sem framundan væru, en þar bæru sveitar- stjórnarkosningarnar að vori auðvitað hæst. Þá tók til máls Inga Jóna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri fræðslu- og út- breiðslumála flokksins og gerði ítarlega grein fyrir því starfi er flokkurinn ynni á sviði fræðsiu- og útbreiðslumála. Þá ræddi hún um málefnalega stefnumótun, mikilvægi starfs málefnanefnda og góðs samstarfs þeirra og þingflokks og nauðsyn þess að flokkurinn, með erind- rekstri, héldi uppi virku sambandi við flokksmenn um land allt. Að loknum þessum greinargerðum var orðið gefið frjálst til umræðna um starf- semi Sjálfstæðisflokksins, en þar sem enginn kvaddi sér hljóðs var gengiö til næsta liðar á dagskránni, skipulagsmála flokksins. Fyrstur kvaddi sér hljóðs, Geir H. Haarde, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og kynnti tillögur til breytinga á 10. grein skipulagsreglna Sjáífstæðisflokksins, er fjallar um flokks- ráð. Var tillagan svohljóðandi: „Þingmenn flokksins, sem taka sæti í eða lýsa stuðn- ingi við ríkisstjórn, sem mynduð er í and- stöðu við ákvörðun flokksráðs, teljast 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.