Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 30

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 30
Landsfundur 1981 Emilsson, Gmndarfiröi. Fleiri tóku ekki til máls. Næst á dagskrá var ályktun um vinnu- markaðsmál og hafði Magnús L. Sveins- son, Reykjavík, framsögu um hana. Að lokinni ræðu Magnúsar var fundi slitið kl. 20.00. Síðasta hluta fundarins hafði Pétur Hansson, Reykjavík, látið af fundar- ritarastörfum, þar eð hann þurfti að yfir- gefa fundinn, en Málhildur Angantýs- dóttir, Reykjavík, tekið við störfum fundarritara. Jóhanns Hafstein var tninnst á landsfundinum. En hann lést í maí 1980. Sjöundi fundur Sjöundi fundur landsfundarins hófst í Sigtúni sunnudaginn 1. nóvember, kl. 10.00. Fundarstjóri var Árni Emilsson, Stykkishólmi og fundarritarar þau Anna Hertevig, Siglufirði og Arnþór Ingólfs- son, Kópavogi. Á dagskrá þessa fundar voru umræöur og afgreiðsla stjórnmálaályktunar og álitsgerða starfshópa. Fyrst var tekin fyrir ályktun um vinnu- markaðsmál, sem framsaga hafði verið flutt um daginn áður, og var ályktun um vinnumarkaðsmál samþykkt samhljóða. Þá tók til máls Olafur B. Thors, Reykjavík, og hafði framsögu fyrir skipulagsnefnd landsfundarins. Ólafur kynnti þær breytingartillögur sem fram voru lagðar innan skipulagsnefndarinnar 30 og tillögur nefndarinnar á afgreiðslu á þeim. Til máls tóku formaður Sjálfstæðis- flokksins, Geir Hallgrímsson, Reykja- vík, sem lagði til að breytingartillögum merktum B og C á framlögðu fjölriti frá skipulagsnefnd yrði vísað til miðstjórn- ar. Þessar tillögur voru um breytingar á 10. og55. gr. skipulagsreglnanna. Einar H. Ásgrímsson, Garðabæ, lagði fram langar og ítarlegar tillögur um kjör og kosningareglur vegna formanns og varaformannskjörs og lagði Einar til að tillögum sínum yrði vísað til miðstjórnar. Þá tóku til máls Baldur Guðlaugsson, Reykjavík, Páll Daníelsson, Hafnar- firði, Þorvaldur Mawby, Reykjavík, sem kynnti breytingartillögu við 20. grein skipulagsreglnanna, undirritaða af Helenu Albertsdóttur. Tillagan gerir ráð fyrir að fomiaður og varaformaður flokksins verði kjörnir alntennri leyni- legri kosningu meðal allra flokksbund- inna Sjálfstæðismanna. Jón Ásbergsson, Sauðárkróki, Geir H. Haarde, Reykjavík, sem lýsti því yfir að fiutningsmenn þeirrar tillögu er hann hafði gert grein fyrir á öðrum fundi landsfundarins, 29. október, gætu vel sætt sig við að henni yrði vísað til mið- stjórnar, Gísli Jónsson, Akureyri, Guð- mundur Gíslason, Kópavogi, Ólafur B. Thors, Reykjavík, Haraldur Blöndal, Reykjavík, Guttormur Einarsson, Reykjavík, Júlíus Sólnes, Seltjarnarnesi, Benedikt Bogason, Reykjavík, Árni Johnsen, Vestmannaeyjum, Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra, Reykja- vík, Auður Auðuns, Reykjavík. Er hér var komið var ákveðið að fresta umræðum um skipulagsmálin þar til eftir hádegi, en taka til við umræður um stjórnmálaályktun, sem stjórnmála- nefnd fundarins hafði nú afgreitt og lá fyrir landsfundinum. Framsögu fyrir stjórnmálanefnd landsfundarins hafði Jónas H. Haralz, Kópavogi. Jónas gerði grein fyrir því að niðurstaða stjórnmálanefndar hefði orðið sú, að leggja fram stjórnmálaálykt- un í tvennu lagi, annars vegar almenna stjórnmálaályktun og hins vegar sérstaka ályktun um afstöðu flokksins til ríkis- stjórnarinnar. Til máls tóku Sigurgeir Sigurðsson, Seltjarnarnesi, Stefán A. Jónsson, Kagaðarhóli og Erlendur Eysteinsson, Stóru-Giljá, A-Hún. Fundi varslitið kl. 12.30. ✓ Attundi fundur Áttundi fundur landsfundarins hófst í Sigtúni sunnudaginn 1. nóvember kl. 14.(X). Fundarstjóri var Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Reykjavík, en fundarritarar Kjartan Jónsson. Reykja- vík og Sigurður Þ. Jónsson, Vestmanna- eyjum. Á dagskrá þessa fundar var afgreiðsla stjórnmálaályktunar, en ekki vannst tími til að afgreiða hana fyrir hádegi þennan dag, framhald á afgreiðslu á nefndarálit- um og kosning formanns og varafor- manns Sjálfstæðisflokksins og kosning miðst jórnarmanna. Gunnar Thoroddsen, forsœtisráðherra. Fyrstur tók til máls Jónas H. Haralz, Kópavogi, og fjallaði um drög að stjórn- málaályktun. Þá tóku til máls Matthías Á. Mathiesen, Hafnarfirði, forsætisráð- herra, Dr. GunnarThoroddsen, Reykja- vík, Gísli Jónsson, Akureyri, Davíð Sch. Thorsteinsson, Garðabæ. Fundarstjóri tilkynnti nú að hann takmarkaði ræðu- tíma við tvær mínútur (þessari ákvörðun sinni framfylgdi fundarstjóri síðan af mikilli lipurð), Birgir ísleifur Gunnars- son, Reykjavík, Sverrir Hermannsson, Reykjavík, Þorgeir Ibsen, Hafnarfirði, Ragnhildur Helgadóttir, Reykjavík, Skúli Johnsen, Garðabæ, Halldór Blöndal, Akureyri, forsætisráðherra Dr. Gunnar Thoroddsen, Reykjavík, sem óskaði eftir skriflegri atkvæðagreiðslu um þann kafla stjórnmálaályktunarinn- ar, sem fjallaði um afstöðu Sjálfstæðis-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.