Stefnir - 01.12.1981, Qupperneq 33

Stefnir - 01.12.1981, Qupperneq 33
Störf landsfundar var samþykkt samhljóða að miðstjórn skyldi skipa nýja málefnanefnd um íþrótta- og æskulýðsmál. Var nú lýst kjöri varaformanns Sjálf- stæðisflokksins. Friðrik Sophusson, alþingismaður, Reykjavík, var kjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 549 atkvæðum. Ragnhildur Helgadóttir, Reykjavík, hlaut 381 atkvæði. Aðrir fengu 5 atkvæði og auðir seðlar voru 6. Alls tóku því þátt í þessari kosningu 941 landsfundarfulltrúi. Nýkjörinn varaformaður Sjálfstæðis- flokksins, Friðrik Sophusson, Reykja- vík, tók til máls og þakkaði fundar- mönnum það traust og þann stuðning er hann hefði fengið, en landsfundarfull- trúar risu úr sætum og hylltu hinn ný- kjörna varaformann með langvinnu lófa- taki. Þá tók til máls Ragnhildur Helgadótt- ir, Reykjavík og óskaði nýkjörnum for- manni og varaformanni til hamingju með kjörið og þakkaði fundarmönnum þann stuðning er hún hefði hlotið. Fundar- stjóri greindi frá að úrslit miðstjómar- kjörs yrði tilkynnt síðar. Eftirtaldir 11 hlutu kosningu í mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins: Björn Þórhallsson, Reykjavík, 832 atkvæði, Davíð Scheving Thorsteinsson, Garða- bæ, 749 atkvæði, Jónas H. Haralz, Kópa- vogi 720 atkvæði, Ellert B. Schram, Reykjavík, 704 atkvæði, Þorsteinn Páls- son, Reykjavík 704 atkvæði, Einar K. Guðfinnsson, Bolungarvík, 686 atkvæði, Gísli Jónsson Akureyri 629 atkvæði, Oðinn Sigþórsson, Borgarfirði 502. atkvæði, Jón Ásbergsson, Sauðárkróki, 465 atkvæði, Sigurlaug Bjarnadóttir, Reykjavík 426 atkvæði og Björg Einars- dóttir, Reykjavík4ll atkvæði. í kosningu miðstjórnar greiddu atkvæði alls 947 landsfundarfulltrúar, þar af voru 3 seðlar ógildir og 1 auður. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kýs fimm menn í miðstjórn flokksins, svo sem skipulagsreglur mæla fyrir um, en því kjöri var ekki lokið á landsfundinum sjálfum, en fór fram nokkrum dögum síðar og voru kjörnir í miðstjórn alþingis- mennirnir Albert Guðmundsson, Matthías Bjarnason, Matthías Á. Matthiesen, Salome Þorkelsdóttir og Steinþór Gestsson. Auk þeirra, sem landsfundur kýs í miðstjórn og þeirra sem þingflokkur kýs í miðstjórn eru sjálfkjömir í miðstjórn formenn landssamtaka flokksins, Sambands ungra sjálfstæðismanna, Landssambands sjálfstæðiskvenna og verkalýðsráðs. Þá eru sjálfkjörnir for- menn kjördæmisráða flokksins. Seturétt á miðstjórnarfundum hafa, samkvæmt skipulagsreglum, formaður fjármálaráðs og formenn fræðslunefndar og út- breiðslunefndar. Að loknum umræðum og afgreiðslu mála tók til máls formaður Sjálfstæðis- flokksins Geir Hallgrímsson. Lýsti hann ánægju sinni með störf landsfundarins og óskaði nýkjörnum varaformanni ög ný- kjörinni miðstjórn allra heilla í starfi sínu fyrir hugsjónir Sjálfstæðisflokksins. Geir Hallgrímsson gat þess að Gunnar Thoroddsen, sem lét af störfum vara- formanns flokksins á þessum landsfundi, myndi nú jafnframt láta af störfum í mið- stjórn hans. Geir þakkaði Gunnari góð störf í þágu flokksins um áratugaskeið og tóku fundarmenn undir þessar þakkir með langvinnu lófataki og risu úr sætum sínum. Að lokum óskaði formaður þeim fundar- mönnum, sem langt væru að komnir, góðrar heimferðar og heimkomu og bað menn að minnast fósturjarðarinnar. Risu landsfundarfulltrúar úr sætum og hylltu ísland með ferföldu húrrahrópi. Að því loknu sleit formaður 24. lands- fundi Sjálfstæðisflokksins. Að landsfundi loknum var haldinn kvöldfagnaður í Sigtúni og sóttu fagnað- inn um 1000 manns. IV. Nefndir og nefndastörf Á 24. landsfundi starfaði ein aðal- Jónas H. Haralz, formaður, Kópavogi Amar Sigurmundsson, Vestmannaeyjum Árni Emilsson, Grundarfirði Árni Ol. Lárusson, Garðabæ Árni Sigfússon, Reykjavík Ásdís Rafnar, Reykjavík Auður Auðuns, Reykjavík Bjarni Snæbjörn Jónsson, Mosfellssveit Björg Einarsdóttir, Reykjavík Erna S. Kristinsdóttir, Hafnarfirði GeirH. Haarde, Reykjavík Gísli Blöndal, Seyðisfirði Guðmundur Hallvarðsson, Reykjavík Guðmundur Hansson, Reykjavík Gunnar Ragnars, Akureyri Guttormur Einarsson, Reykjavík Hilmar Jónasson, Hellu Ingólfur Falsson, Keflavík Jón Ormur Halldórsson, Reykjavík Jóna Gróa Sigurðardóttir, Reykjavík nefnd, sem fundurinn kaus, stjórnmála- nefnd. Formaður hennar var Jónas H. Haraiz, Kópavogi Aðrar nefndir eða starfshópar, sem störfuðu á fundinum voru þessar: allsherjarnefnd, formaður Salome Þorkelsdóttir, Mosfellssveit, atvinnumálanefnd, fonnaður Árni Grétar Finnsson, Hafnarfirði, heilbrigðis- og tryggingamálanefnd, formaður Ólafur Örn Arnarson, Reykjavík, húsnæðis- málanefnd, formaður Jón Þorgilsson, Hellu, nefnd um kjördæmaskipan og kosningafyrirkomulag, formaður Gísli Jónsson, Akureyri, menningamála- nefnd, formaður Hulda Valtýsdóttir, Reykjavík, samgöngumálanefnd, for- maður Ágúst Hafberg, Reykjavík, skattamálanefnd, formaður Pétur H. Blöndal, Reykjavík, skipulagsnefnd, formaður Ólafur B. Thors, Reykjavík, skóla- og fræðslunefnd, formaður, Guð- mundur Heiðar Frímannsson, Akureyri, sveitarstjórna- og byggðamálanefnd, formaður Jón Gauti Jónsson, Garðabæ, umhverfis- og skipulagsmálanefnd, for- maður Gestur Ólafsson, Reykjavík, utanríkis- og varnarmálanefnd, for- maður Geir H. Haarde Reykjavík, vinnumálanefnd, formaður Magnús L. Sveinsson, Reykjavík. Allar voru þessar nefndir opnar lands- fundarfulltrúum til starfa í samræmi við áhugamál þeirra. Pá störfuðu á landsfundinum átta kjördæmisnefndir og ennfremur komu saman til funda og ræddu sérmál sín ungir s jálfstæðismenn og konur er voru fulltrúar á landsfundi. Jónas Elíasson, Reykjavík Margrét Einarsdóttir, Reykjavík Matthías Bjarnason, Garðabæ Ólafur G. Einarsson, Garðabæ Ólafurísleifsson, Reykjavík Ólína Ragnarsdóttir, Grindavík Ólöf Benediktsdóttir, Reykjavík Ottó Michelsen, Reykjavík Ragnhildur Helgadóttir, Reykjavík Richard Björgvinsson, Kópavogi Siggeir Björnsson, Holti Sigurður Óskarsson, Hellu Stefán A. Jónsson. Kagaðarhóli Svanhildur Björgvinsdóttir, Dalvík Sverrir Hermannsson, Reykjavík Porsteinn Pálsson, Reykjavík Þorvaldur Mawby, Reykjavík Þórir Lárusson, Reykjavík Þórunn Einarsdóttir, Selfossi (Skýrsla þessi um störf landsfundar var tekin saman af Kjartani Gunnarssyni). í stjórnmálanefnd landsfundarins áttu þessir sæti: 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.