Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 43

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 43
SUS-frétUr störf á þágu Eyverja og sjálfstæðisfélag- anna í Eyjum. Ný stjórn var kjörin og hana skipa: Ásmundur Friðriksson form., Georg Þór Kristjánsson varaform., Geir Jón Þóris- son gjaldkeri, Jóhannes Long ritari, Geir Sigurlásson form. stjómmálanefndar, Grímur Gíslason meðstj. og Guðjón Hjörleifsson meðstjórnandi. Einnig var kostið í fulltrúaráð og stjórnmálanefnd. Gestur fundarins var Jón Magnússon fyrrverandi form. S.U.S. Jón flutti góða ræðu um st jómmálaviðhorfið að loknum landsfundi og ástandið í Sjálfstæðis- flokknum., ekki var það að merkja á ræðu Jóns að um neina uppgjöf væri að ræða hjá sjálfstæðismönnum þvert á móti hvatti hann sjálfstæðisfólk til meiri samstöðu og stórhugs í framtíðinni. Baráttukveðja, Ásmundur Friðrikssqn Fjarmal S.U.S. Stefni hefur borist eftirfarandi athugasemd vegnafréttar um fjármál S.U.S. í 3. tbl. 1981.: Guðjón Kristjánsson: Fréttabréf f rá Akranesi Aðalfundur Þórs, félags ungra sjálf- stæðismanna á Akranesi, var haldinn í lok nóvember. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Formaður var kosinn Guðjón Kristjánsson og aðrir í stjórn þeir, Benjamín Jósefsson, Halldór Karl Hermannsson, Guðjón Þórðarson og Bjarni Guðmundsson. Var það mál manna að fundurinn hefði tekist mjög vel og væri vonandi upphafið að öflugra starfi en verið hefur undanfarin ár. Eitt fyrsta verk stjómarinnar verður að stuðla að stofnun félags hægri sinn- aðra nemenda innan Fjölbrautaskóla Akraness. Skólinn hefur stækkað ört frá stofnun og er orðinn einn af stærri skól- um landsins. Það er mjög mikilvægt verkefni fyrir unga sjálfstæðismenn hér á Akranesi, að ná upp einhverju afli innan skólans, til að vega upp á móti þeirri óheilla þróun sem þar hefur átt sér stað. Vaxandi fjöldi kennara við skólann vinnur skipulega að því að innprenta rót- tækar vinstri skoðanir í nemendur sína, bæði með vali á námsbókum og fyrir- lestrum. Það verður að vera eitt helsta verk okkar ungra sjálfstæðismanna að spoma við þessari slæmu þróun með skipulögðum vinnubrögðum og áróðri. Komandi bæjarstjórnarkosningai munu einnig setja mikinn svip á starfið i vetur. Á aðalfundinum var rætt um fram- boðsmái ungra manna og kvenna, og hvernig stuðla beri að auknum áhrifum þeirra á stjórn bæjarins. Munum við eftir megni reyna að ná inn ungum manni í bæjarstjórn. Síðastliðinn vetur bám ungir sjálf- stæðismenn hér á Akranesi fram tillögu á fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi, um, að Öðmm stjórnmála- flokkum hér yrði sent bréf þar sem reifuð yrði hugmynd um sameiginlegt prófkjör fyrir bæjarstjómarkosningar vorið 1982. Áfraksturinn varð sá að skipuð var nefnd fjögurra manna, einum frá hverjum flokki, til að koma saman reglum fyrir slíkt prófkjör. Nefndin hefur lokið störfum og er ákveðið að halda próf- kjörið helgina30. og 31. janúar 1982 Það má segja að þessi tillaga ungra sjálfstæðismanna á Akranesi hafi reynst stefnumarkandi, því nú er í gangi við- ræður um slíkt prófkjör á nokkmm stöðum á landinu. Um kosti og galla þeirra reglna sem gilda munu fyrir prófkjörið hér á Akra- nesi er það helst að segja, að minni líkur eru taldar á því að fólk úr einum flokki reyni að hafa áhrif á niðurröðun fram- bjóðenda hjá öðrum flokki, þar sem að- eins má raða einum lista. Fólk sem áður vildi ekki taka þátt í prófkjöri, vegna þess að það vildi ekki láta í Ijós hvaða flokk það aðhyltist, getur áfram átt sitt leyndarmál, þó að það taki þátt í sam- eiginlegu prófkjöri, því enginn getur séð hjá hvaða flokki var raðað. Ætti því að fjölga því fólki sem tekur þátt í prófk jöri og vill hafa einhver áhrif á röðun fram- boðlistans. Ákveðið var að nöfnip skyldu vera 9 hjá hverjum flokki og röðun bindandi fyrir þrjú efstu sætin. Um þessi atriði má eflaust endalaust deila. Fyrir jafn stóran flokk og Sjálf- stæðisflokkinn getur reynst erfitt að koma frambjóðendum í prófkjöri niður í 9. Hentugra væri að hafa hámark og lág- mark þátttakenda sem raða má. Ungir sjálfstæðismenn hér á Akranesi vildu að niðurstöður um niðurröðun í prófkjörinu yrðu bindandi fyrir þá aðila sem hlytu 25% af þeim sem röðuðu hjá flokknum, eða meira. En því miður fékkst það ekki samþykkt. Þrátt fyrir allt er eitt ljóst: Með sameiginlegum prófkjörum er enn eitt ákrefið stigið í þá átt að gera niður- röðun á framboðslista lýðræðislegri. í síðasta tölublaði tímaritsins Stefnis, er sagt frá fjármálum S.U.S. og þess getið, að reikningar þeir sem lagðir voru fyrir síðasta S.U.S. þing hafi verið rangir í veigamiklum atriðum. Verulega háar upphæðir væru ógreiddar, sem ekki hefði verið gert grein fyrir í reikningum og fjárhagsstaða S.U.S. væri ekki eins góð og reikningar gáfu til kynna. Þá er einnig sagt, að stefnt sé að því að fjár- hagur sambandsins verði kominn í við- unandi horf fljótlega eftir áramótin. Vegna þessara skrifa sem komu mér nokkuð á óvart vil ég taka fram eftir- farandi: 1. Mér hefði fundist eðlilegt og sjálfsögð kurteisi að haft væri samband við fyrr- verandi gjaldkera og formann S.U.S. um þessi mál, áður en gefið er til kynna opinberlega, að fjármál og bókhaid S.U.S. sé í ólestri frá hendi fyrrverandi stjórnar. 2. Hreinar tekjur skv. rekstrarreikningi S.U.S. fyrir tímabil síðustu stjómar em kr. 114.127,-. Eignir umfram skuldir skv. efnahagsreikningi 28.8. 1981 eru kr. 113.900,-. Þetta sýnir að á tímabili síðustu stjómar varð veru- leg breyting á fjármálum sambands- ins, þannig að síðasta stjórn skilar verulegum tekjuafgangi til núverandi stjörnar og stöðunni er breytt á tíma- bilinu úr tapi í hagnað. 3. Mér hefur verið tjáð að í uppgjöri því sem lagt var fyrir síðasta S.U.S. þing hafi láðst að geta um 2 víxla að höfuð- stól um kr. 10.000,00. Það er vissu- lega slæmt að umræddra víxilskulda skuli ekki getið, en það gefur hins vegar ekki tilefni til ummæla af því tagi sem um getur í síðasta tölublaði Stefnis, nema ætlunin sé að kasta rýrð á störf síðustu stjórnar sambandsins. 4. Síðasta S.U.S. stjóm beitti ítrasta sparnaði við rekstur sambandsins og útgáfu Stefnis s.l. tímabil. Þess vegna tókst að breyta fjárhagsstöðunni á þann veg, að núverandi stjórn S.U.S. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.