Stefnir - 01.12.1981, Page 60

Stefnir - 01.12.1981, Page 60
Bókafregnir um stjórnmálaskoðanir Gunnars á árun- um rétt fyrir síðari heimsstyrjöldina. Áhugavert hefði verið að fá álit og skýr- ingar Gunnars á þessu efni og mörgu öðru svo sem borgarstjóratíð hans; af- skiptum hans af dagblaðinu Vísi á árun- um eftir 1960, hvernig fjárhagsvandi Vísis var leystur og hverjir leystu hann; nánar hefði mátt fjalla um forsetakosningarnar 1968 og Landsbankamálið - en allt hafði þetta ásamt mörgu öðru þýðingu þegar skýra á þá mótstöðu sem endurkoma Gunnars mætti í forystu flokksins 1970. Meint píslarvætti Gunnars í forsetakjör- inu 1952 megnar ekki eitt að skýra þá miklu andstöðu. Ekki má heldur gleyma borgarstjórnarkosningunum 1970 sem raktar eru í bókinni Valdatafl í Valhöll. Þá vekur það sérstaka athygli að Gunnar kýs að sleppa úr frásögn sinni öllum áttunda áratugnum- sagan er rakin fram til ársins 1970 og þráðurinn tekinn upp aftur þegar Gunnar var að mynda stjóm sína í janúar-febrúar 1980. Enn má nefna að frásögn Gunnars af stjómarmynduninni er í sama anda og alltaf áður - þótt vitað sé að sú frásögn hans er ekki í samræmi við raunveruleik- ann, líkt og fram kemur í samtölum Dag- blaðsins og Vísis við verkfræðingana Edgar Guðmundsson og Benedikt Boga- son laugardaginn 5. desember 1981. Hvers vegna er Gunnar enn að reyna að breiða yfir fyrstu daga stjómarmyndun- arinnar? Loks vekur athygli hve frásögnin af síðasta landsfundi er lituð og hlutdræg - þar sem mönnum eru gefnar upp skoðan- ir eftir geðþótta Gunnars og án sam- ræmis við það sem fram kom á fundin- um. Gildir þetta ekki síst þegar Gunnar fjallar um skipulagsbreytingahugmyndir ungra sjálfstæðismanna. Sú frásögn er öll hin einkennilegasta svo ekki verði meira sagt. Bók þessi getur alls ekki talist vönduð samtalsbók eða heimildarrit - hún er að- eins það sem Gunnar vill segja og kýs að segja með þessum hætti. Höfundur- inn lætur nota sig sem einskonar málpípu og virðist ekki hafa haft metnað til að spyrja um annað en það sem Gunnari var þóknanlegt. Því hefði í sjálfu sér verið eins gott að gefa út spólurnar, sem við- talið hefur verið tekið upp á, þannig að menn hefðu milliliðalaust getað ,,með- tekið boðskap Gunnars heima í stofu, á sama hátt og skrásetjarinn á ,,veröndinni í Barmahlíð” við ritun bókarinnar. Stétt með stétt Út er komið rit um sjálfstæðismenn í verkalýðshreyfingunni í samantekt Hannesar H. Gissurarsonar, sagnfræð- ings. Ritið er gefið út í tilefni 30 ára afmælis Verkalýðsráðs Sjálfstæðis- flokksins 4. nóvember 1981. í ritnefnd áttu sæti þeir Gunnar Helgason, Hannes H. Gissurarson, Hilmar Guðlaugsson og Sigurður Óskarsson. Gunnar Helgason, fyrrverandi for- maður Verkalýðsráðsins og Sigurður Óskarsson, núverandi formaður Verka- lýðsráðs rita ávarpsorð en Hannes H. Gissurarson fjallar síðan um baráttu sjálfstæðismanna í verkalýðshreyfing- unni síðustu þrjátíu ár. Ritið skiptist í sex kafla sem nefnast: Verkalýðshreyfingin til 1938; Sjálfstæðismenn í sókn og vörn; Baráttan um Alþýðusambandið 1948- 1968; Verkalýðshreyfingin frá 1968; Við- horf Sjálfstæðismanna í verkalýðsmál- um; Hvað sýnir reynslan. Ritið er 90 síður að stærð prýtt miklum fjölda mynda og er hið vandaðasta að allri gerð. Pessi mynd var tekin rétt áður en hinn örlagaríki þingflokksfundur sjálfstœðismanna hófst 1. febrúar 1981. Gunnar Thoroddsen, þáverandi varaformaður Sjálfstœðisflokksirts og Ólafur G Einarsson, formaður þingflokksins, rœðast við. Fjœr sést inn íþingflokksherbergi sjálfstœðismanna í Alþingishúsinu. TÖLVUPAPPÍR í ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM. 1111_________1 FORMPRENT HVERFISGÖTU 78 — SÍMI 25960 Leiðrétting Fallið hafa niður nöfn fundarritara á fjórða fundi landsfundarins í Sigtúni 30. október kl. 14.30. En þeir voru: Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Akureyri og Kjartan Rafnsson, Keflavík. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum. 50

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.