Blik - 22.04.1947, Blaðsíða 18

Blik - 22.04.1947, Blaðsíða 18
>4 B L I K um við öll setzt. Nú sjáum við, hvar prestur kemur á „fullri ferð“ upp eftir götunni. Hann kemur beint inn og segir okkur að setjast, áður en sitjandinn hef- ur lyfzt úr sætinu. „Óvenjulega seinn í þetta sinn,“ hugsum við. Strax hefst kennslan. Prestur hefur hátt, svo að okkur finnst nóg um, en það leynir sér ekki, að hann er mikill tungumálagarpur. Enskan streymir af tungu hans. Þegar við höfum lesið og þýtt, lætur hann okkur segja enskar setningar. Hans uppá- haldssetningar eru: Hann kyssir stúlkuna sína og hún fer á mis við kossinn. Klukkan er 12. Tím- inn er á enda. Matarhlé í eina klukkustund. í dag er mánudagur Eftir hádegi er kennsla í handavinnu. Þá er alltaf glatt og kátt á hjalla, og er þá margt spjallað, t. d. um tízkuna, síð- ustu bíómvndir, strákana, pilsið á þessari og blússuna á hinni o. s. frv. Ungfrú Kolbeins hastar furðu lítið á okkur, því að flestar vinna um leið, þrátt fyrir allt masið. Allt í einu kveður mikið ör- væntingaróp við í stofunni. Svo stendur sem sé á, að Lilla stend- ur á undirkjólnum, þegar Óskar kemur inn til þess að hringja. Hún þýtur bak við reykháf, en við engjumst sundur og saman af hlátri yfir þessu broslega atviki, og biðjum Óskar blessaðan að drepa á dyr naést, því að engin vill verða fyrir svona truflun aftur, og hann lofar því. Þannig lauk þessum degi í skólanum okkar og rnargar okkar beztu endurminningar eru það- an runnar. H. K. og Á. 3. bekk og allar hinar. Dáöir drýgðar „Ætlið þið þá að byrja að grafa í dag, börn?“ spurði skóla- stjórinn, þegar hann kom inn í stofuna. Því var svarað með „kórjái". „Þá skuluð þið fara heirn og búa ykkur, við leggjum af stað frá skólanum ktukkan hálf tíu.“ Piltar og stúlkur þustu út, allir vildu verða fyrstir. Klukkan hálf tíu var lagt af stað með rekur um öxl til skóla- grunnsins og var mesti vígahug- ur í öllum hópnum. Þegar upp eftir kom, kom það í ljós, að nokkrar rekur vantaði, en Valtýr Brandsson og fleiri góðhjartaðir náungar þarna í nágrenninu líkn uðu sig yfir þennan framgjarna unglingahóp og lánuðu sínar rekur. Þá var tekið til að grafa. Frost hafði verið um nóttina og því nokkuð vont að komast niður úr klakanum, en þegar því var

x

Blik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.