Blik - 22.04.1947, Qupperneq 30

Blik - 22.04.1947, Qupperneq 30
2Ö B L I K. niður á gólfið og lá hreyfingar- laus. Allt í einu kom hann auga á andlit sitt í spegli. Það var and- lit brjálaðs manns. Með mikilli áreynslu stóð hann upp, fór upp á loft, þvoði sér og rakaði sig, hafði fataskipti og fór út. Fáum mínútum síðar var hann inni í lækningastofu Surgent læknis. „Ég býst við að ég ætti heldur að fara til lögreglunnar," byrjaði Reuben. „Lögreglunnar? Hvað ertu að segja?“ Hrópaði Surgent lækn- ir. „Jú, ég varð konunni minni að bana.“ „Svo“ — læknirinn sat og danglaði fingrunum í borðið, meðan Reuben sagði alla söguna. „Jæja, líður þér ekki betur nú, þegar þú hefur sagt frá öllu sam- an?“ spurði læknirinn, er Reuben hafði lokið frásögninni. „Jú, mér líður vissulega bet- ur.“ „Það var mjög heppilegt, að þú komst til mín“, hélt læknir- inn áfram, „að öðrum kosti hefð- ir þú ef til vill lent í fangelsinu. Eins og þú veizt hefur sálfræði verið eitt af áhugamálum mín- um og frístundavinnu. Þú hefur auðvitað framið glæp, glæp gagn- vart sjálfum þér. Þú hefur verið kvíðinn og óhamingjusamur mánuðum saman. Stundum ósk- aðir þú þess, að konan þín dæi. Þetta var skiljanleg ósk sérstak- lega með tilliti til þess, hve mik- ið hún þjáðist. En þú ásakaðir þig, þú gast ekki fyrirgefið þér það að bera slíkar hugsanir í brjósti. Og sú ályktun, að þri haf- ir orðið konu þinni að bana, hef- ur næstum gert út af við þig, vegna þess að þú barst leyndar- málið einn. „En lyktin læknir? — Hvað er þetta, hún er farin?" „Já, herra Reuben, vegna þess að þú hefur nú annan til þess að bera leyndarmálið með þér.“ „En ég gaf henni tvær töflur á sama hálftímanum." „En góði Reuben, það var ein- skær tilviljun, að hún dó einmitt þessa nótt. Eins og þú veist, var ég vanur að gefa henni innspýt- ingu hvern einasta dag til þess að draga úr kvölunum. En ég skildi eins vel sálarlíf hennar eins og líkamslífið. Ég vissi, hve geðstirð hún var, vesalings kon- an, hún var því aðeins ánægð, að hún nyti fullkominnar at- hygli. Ég sendi út í sætindabúð og lét kaupa piparmyntur . . .“ „Þú átt við . . . En hún var alltaf betri, þegar hún hafði tek- ið þær inn!“ „Það sýnir aðeins, hve góður sálfræðingur ég er,“ sagði Sur- gent læknir brosandi Sigurður Finnsson þýddi úr Psychology Magazine.

x

Blik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blik
https://timarit.is/publication/1522

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.