Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 30
28
12. Kveflungnabólga (pneumonia catarrhalis).
13. Taksótt (pneumonia crouposa).
Töflur II, III og IV, 12—13.
Sjúklingafföldi 1921- 1929:
1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929
Sjúkl.1 2) . . . 1061 1033 1009 1012 804 925 1262 875 795
2) ■ • 10243) 589 609 564 278 185 218 183 241
Dánir . . . 269 200 233 238 127 107 95 84 122
Sjúklingar með kveflungnabólgu eru með fæsta móti, þrátt fyrir in-
flúensufaraldurinn og óvenjumikið kvefár. Taksótt, sem farið hefir
rénandi undanfarin ár, færist hins vegar nokkuð í aukana á þessu ári.
Eru talin fram i'leiri tilfelli en gert hefir verið síðan 1925, og er hún
dreifð um héruðin. Annars má gera ráð fyrir, að allmikill ruglingur
sé á greiningu þessara lungnabólgutegunda, enda er satt að segja
hvérgi nærri svo augljós munur á þeim sem skilja má af kennslubók-
um. Líka mun nokkurt ósamræmi vera í því, að sumir læknar skrá-
setja þá, sem fá lungnabólgu sem fylgikvilla með inflúensu og misl-
ingum, sem sérstaka lungnabólgusjúklinga. Hinar háu kveflungna-
bólgutölur í Sauðárkrókshéraði í febrúar og marz þ. á. samhliða in-
flúensunni ber t. d. sennilega að skilja svo. Aðrir læknar gera þetta
ekki, og verður það að teljast réttara, þegar lungnabólgan er beinlínis
samfara slíkum farsóttum sem inflúensu og mislingum eða verður í
beinu áframhaldi af þeim, eins og líka upphaflegu sóttina verður að
telja dauðameinið, þegar dauða ber að með þeim atburðum. Hins
vegar er fróðlegt að geta þess í athugasemd, hve marg'ir inflúensu-
eða mislingasjúklingar fá lungnabólgu með aðalsóttinni, og ættu lækn-
ar að gera sér það að reglu.
Læknar láta þessa getið:
1. U m kveflungna b ó 1 g u :
Skipaskaga. Nokkur tilfelli al' bronchopneumonia í sambandi við
inflúensuna; urðu sumir allþungt haldnir, en énginn dó.
Borgarfi. Kveflungnabólga. Einn karlmaður fékk hana, hraustlegur
maður um þritugt fékk upp úr henni nýrnablæðingu, sem dró hann
til dauða.
ísafi. Óvenju margir fengu kveflungnabólgu, 21 tilfelli skrásett og
dóu 4.
Svarfdæla. Kveflungnabólga (bronchopn. og bronch. cap.) var með
allra fátíðasta móti, þrátt fyrir mislingana og inflúensuna. Enginn
fékk hana upp úr mislingum. Auk drengsins, sem dó (talinn á dánask.
dáinn úr mislingum) lézt úr henni roskin kona með lungnaþembu og
hjartabilun.
1) Pneum. catarrhalis.
2) Pneum. crouposa.
3) Þessari tölu ber ekki saman \ið uiiclanfarandi skýrslur. Hún misprentaðist i
upphafi, var leiðrétt í sama hefti, en i síðari skýrslum hefir leiðréttingai’innar ekki
verið gætt. Svo er um ýmsar fleiri eldri tölur. Hér hefir verið leitazt við, að taka
íillit fil fyrri leiðréttinga þeirra, sem þýðingu hafa.