Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Side 33
31
Kikhóstafaraldurinn, er gengið hefir undanfarin ár og náði hámarki
1927, virtist, eftir skýrslum að dæma, deyja út í ágústmánuði 1928.
Þriggja tilfella er þó getið í ág'úst og' september þessa árs og í 3 hér-
uðum: Rvík, Borgarness og Siglufj. Ekki verður séð hvort veikin hefir
leynst i landinu allan þenna tíma eða þetta eru aðflutt tilfelli, sem
ekki hefir orðið meira úr, með því að læknar geta þeirra ekki sérstak-
lega.
17. Svefnsýki (encephalitis lethargica).
Töflur II, III og IV, 17.
Sjúklingaíjöldi 1921 1929:
1921 1922 1923 1924 1925 192(1 1927 1928 1929
Sjúkl. 3 „ „ 2 16 „ 17? 3 7
Dánir 2 „ „ 2 3 „ ? 1
Svefnsýkin hagar sér líkt og mænusóttin, en sjúkdómsgreining lítur
út fyrir að vera miklu vafasamari.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Skráðir 4 sjúklingar alls, 1 karl, 2 konur, 1 barn, 5—10 ára.
Maðurinn hættulega veikur, en náði sér þó að lokum, og er nú
vinnufær.
Svarfdæla. Einn sjúklingur talinn, en að vísu vafasamur. Var sjó-
maður í Hrísejr, en átti heima í Reyðarfirði. Ég sá hann 19. sept., en
þá hafði hann haft höfuðverk í viku og hita. Hafði fyrst haft lítilshátt-
ar tilkenning við kyngingu, en hún var horfin, er ég sá hann, enda
ekltert sjúklegt að sjá í koki. Augnahreyfingar voru seinar, en ann-
ars ekkert við augun athugavert; yfirleitt voru allar hreyfingar sein-
ar, og er hann var spurður, var hann seinni til svars en mér fanst
eðlilegt, og' var þetta tvent það, sem helzt vakti grun hjá mér um, að
hér gæti verið um svefnsýki að ræða; en vitaskuld er valt á þessu að
hyggja, einkum þegar læknirinn er ókunnugur sjúklingnum, og veit
ekki, hvaða viðhragðsflýtir honum er eðlilegur. Svefn var sagður nokk-
urnveginn eðlilegur, þó í þyngra lagi. Lyst góð og hægðir. Milta ekki
stækkað. Hjartahljóð voru í daufara lagi, en annars ekkert abnormt
finnanlegt við rannsókn á hjarta, lungum eða kvið. Eina kvörtunin
var um höfuðverkinn. Hiti var, meðan ég hafði spurnir af, milli 38°
og 39°. Sjúklingurinn fór úr héraðinu í mánaðarlokin, og hafði þá
enn höfuðverk, er lítið hafði látið undan antineuralgica. Ég sá hann
ekki nema þetta eina sinn.
Mýrdals. í október var eitt tilfelli skráð, sem vafi lék á, hvort vera
mundi encephalitis epidemica. Sjúklingurinn átti heima undir Eyja-
fjöllum á héraðsenda, og' átti ég ekki kost á að fylgjast með gangi
sjúkdómsins. Hann komst nokkurnveginn til heilsu aftur, fluttist til
Vestmannaeyja. Hefi ég ekki haft spurnir af honum síðan og get
ekki skorið úr því með vissu, hvort diagnosis hefir verið rétt eða eigi.
ekki skorið úr því með vissu, hvort diagnosis hefir verið rétt
eða eigi.