Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 39
37
Linsæri eru talin fram fleiri en oftast áður. Um 8 tilfellin er þess
getið, að 4 af þeim hafi verið erlend eða 50%.
Læknar láta þessa getið:
Rvík.
Lues. 10 sjúklingar skráðir á árinu, þar af 2 útlenclingar. Sjúkling-
ar ívið færri en síðari árin. Af þessum sjúklingum eru 3 með lues
primaria og því vonandi læknast til fulls; 5 með lues secundaria, 1 með
lues tertiaria og' 1 með lues congenita. Sjúkclómurinn því ekki aukizt
verulega þetta ár.
Ulc. venereum. 6 sjúklingar, þar af 3 útlendingar. Sjúkdómurinn
verður því að reiknast innlendur sjúkdómur, ]>ó sjaídan verði hans
vart.
Lekandi. Næstum óbreytt útbreiðsla (11,6%) frá siðasta ári. Skráð-
ir á árinu 308 sjúkl. Þar af 5 börn á aldrinum 1—5 ára, og óvanalega
margar konur, 90 alls, og' er það gleðilegt, að náðst hefir i svo margar
konur, því ef ekki tekst að ná í kvenfólkið með þenna sjúkdóm, er
voðinn vís. Annars hefir vantað tilfinnanlega sjúkrahúspláss fyrir
kvensjúklinga og börn með lekanda, og virðist bærinn verða að tak-
ast þá skyldu á herðar að sjá sínum sjúklingum fyrir sjúkrahúss-
plássi. Það má heita næstum jcví ógerningur, að stunda þessa sjúkl-
inga liti í bæ, auk þess mikill þáttur profylaxis að hafa sem flestar
slikar konur á sjúkrahúsi. Þær smita tæplega á meðan. Ennfremur
verður að krefjast þess, að höfninni verði stranglega lokað um nætur,
til þess að lauslátt kvenfólk vaði eklci um skip, en að því eru víst
talsverð brögð nú. Stungið hefir verið upp á því, að bæjarstjórnin taki
Frakkneska spítalann, sem nú er eign bæjarins, og láti þar sjúklinga
með berklaveiki, en hafi sjúldinga með lekanda í Farsóttahúsinu,
þegar litil brögð eru að farsóttum, og mætti það víst blessast í nokkur
ár. Máske fær eitthvað af lekandasjúklingum pláss á væntanlegum
landsspitala, en rnikið getur það ekki orðið.
Skipaskaga. Eitt tilfelli af gonorrhoe kom fyrir á manni hér í kaup-
túninu rétt fyrir jólin; kvaðst hann hafa brugðið sér til Reykjavíkur
og fengið kvillann þar, en, eins og vant er, var óinögulegt að hafa upp
úr honum, af hverjum hann hefði fengið hann, þrátt fyrir margítrek-
aða eftirgrenslun.
Ilorgarfí. Lelcandi. Tveir sjúkl. hafa leitað til mín á árinu, piltur
og stúlka, hæði úr Borgarnesi. Pilturinn hafði nýlega smitazt í Rvík,
batnaði til fulls. Stúlkan hafði smitazt heima, óvíst um bata.
ísafí. 6 innlendir karlmenn og 2 útlendir og 2 innlendar konur með
gonorrhoe. Auk ]>ess hefir Torfi Bjarnason skrásett 2 innlenda karl-
menn með gonorrhoe og af mánaðaskránum virðist mér Kristján
Sveinsson hafa bókfært 16 innlenda karlmenn, eina innlenda konu og
4 útlenda karlmenn, allt með gonorrhoe, og 2 útlenda karlmenn með
syfilis. Er þá kynsjúkdómatalan í héraðinu samtals 35 og hærri en
nokkurntíma áður.
Siglufí. Syfilis varð ekki vart hér á árinu, og er þetta nú þriðja árið,
og má merkilegt heita, því ég tel það ekki, þótt einn maður (norskur)
komi hér snöggvast á höfnina með lues ITT og leitaði aðallega læknis-
hjálpar vegna Mb. cordis.