Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Page 50

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Page 50
síðast veturinn 1904—1905, tór síðan á heilsuhæli í Danmörku og dó þar skömmu síðar úr lungnatæringu, Tala berklaheimila nú: Kirkjubólshreppur 2, Hrófbergshreppur 2, Kaldrananeshreppur 3. Sauðárkróks. Um berklaveiki er það að segja, að í þessu héraði, sem og sennilega fleirum, fer hún fremur vaxandi en hið gagnstæða. Stendur það auðvitað í sambandi við það, sem þegar er vitað, að veik- in er svo feykilega langvinn og hefir svo langan undirbúningstíma. Til þess að greinilegur árangur verði af berklavörnum, þarf sennilega lengri tíma en þegar er liðinn síðan berklavarnalögin kornust í gildi. T. d. liggur nú á sjúkrahúsinu hér kona, sem er 47 ára gömul. Hafði hún, er hún var 7—9 ára, verið samvistum með og sofið hjá ungri stúlku, sem dó úr tæringu á þeim árum. Siðan hefir hún ekki verið samvistum við berklaveikt fólk og veiktist fyrst síðastliðið ár. En það ár átti hún venjn fremur erfitt og hafði lélegt fæði. Er þetta sér- staka dæmi fært því til sönnunar, hvernig þessi veiki hagar sér stund- um. Hún liggur niðri, svo tugum ára skiptir, ef ekkert ábjátar fyrir sjúklingnum, en brýst út, ef tækifæri gefst, jafnvel eftir rnarga tugi ára. Til þess að berklavarnir verði „effectivar", verður að leggja hina mestu áherzlu á að rannsaka eklti síður gamalt fólk með hósta eða uppgang, jafnvel þó friskt sé að öðru Iejdi. Er oft erfitt mjög' að finna berkla í uppgangi þessa fólks. En það má takast eftir ítrekaðar tilraunir, eða svo hefir mér reynzt það. Það ber ekki svo sjaldan við, að börn og unglingar eru föl og blóðlítil með þrútna kirtla eða með byrjandi berklaveiki. Ljóslækningar og sjúkra- húsvist um tírna bjargar oft þessum sjúklingum frá því að verða altekin af berklaveikinni. Þeim batnar vanalega alveg og verða hin hraustustu. Ég tek þetta fram til þess að undirstrika það álit mitt, að ég tel það illa farið, ef að því ráði verður horfið, að svipta fátækt fólk þeirri hjálp, sem Ijóslækningar veita, en það er gert, ef það verður svift styrknum samkvæmt berklavarnalögunum til þess að það g'eti veitt sér þessa lækningu. Ég tel, að ekki megi að svo stöddu slaka neitt til á berklavarnalögunum, því það mundi gera að engu árangur þann, sem þegar er fenginn, þó ekki sé hann verulega kominn í ljós ennþá. Þá tel ég', að meira þurfi að gera en þeg'ar hefir gert verið, til þess að fræða alþýðu manna um þýðingu hollrar fæðu í stað hinnar fjörvi- snauðu fæðu, sem menn nú neyta miklum mun meira en áður var, fæðu, sem einnig er svipt bæði lífrænum söltum og nauðsynlegum úrgangsefnum, og gera sérstaklega unga menn blóðlitla og móttæki- legri fyrir berklasmitun. Jiofsós. Skrásettir eru 10 nýir berklasjúklingar, en flestir lítið veik- ir. Ég hef bent á, að fyrir tæpum 150 árum dó maður (Árni bp. Þór- arinsson) að því er virðist úr berklum í þessu héraði og fært líkur að því, að nokkuð muni þá hafa verið um berkla á þessu svæði. Ég hef tvisvar minnst á það í ársskýrslum mínum að lítið væri um berklaveiki í Hofsóshéraði. Á árunum 1907—1929 eru skrásettir 117 sjúklingar. Það verða að meðaltali 5 á ári eða sem svarar 2,&%c af íbú- um héraðsins. Sé tekin tala dáinna úr berklaveiki 1911—1928, þá verður hún 0,79^ að meðaltali á ári, en á öllu landinu 1,8%c árlega.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.