Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Side 63
(.1
þakklæti finnst mönnum þaÖ oft bezt, sem fjærst er. Fyrir 60 árum
eða svo og jafnvel síðar, höfðu börnin með sér söl og súra smjörögn,
þegar þau voru að ganga til prestsins, og ,,ég fann ekki til svengdar
allan daginn, eftir að hafa borðað þetta“, sagði mér gömul og greind
kona, nú um nírætt.
Eyrarbakka. Af 766 sjúkl. héraðslæknis hafði enginn rachitis.
D. Kvillar skólabarna.
Um heilsufar skólabarna gefa skýrslur lækna um skólaskoðanir
nijög takmarkaðar upplýsingar. Þessar skýrslur hafa aðeins borizt úr
19 af 48 læknishéruðum, Keflavíkur, Skipaskaga, Borgarness, Patreks-
fj., Bildudals, Þingeyrar, ísafj., Reykjarfj., Hólmavíkur, Hofsós, Svarí'-
dæla, Höfðahverfis, Vopnafj., Fljótsdals, Norðfj., Fáskrúðsfj., Berufj.,
Síðu, Vestmannaeyja og úr sumum þessum héruðum aðeins um fáa
skóla. Og eins og við er að búast, er svo lítið samræmi í athugununum,
að það væi’i fremur villandi en leiðbeinandi að gera upp úr þeim yfir-
Htsskýrslur, og er þvi þess vegna sleppt. Til dæmis um ósamræmið
má geta þessa:
í Svarfdæla er 20% af börnunum, í Vestmannaeyja 19%, í Hólma-
víkur 12% og í Hofsós 10% talin með hryggskekkju. í 6 af þessum 19
héruðum er alls ekki minnst á þann kvilla, og í öðrum jafnvel stóruni
héruðum verður hans aðeins vart. Þarf enginn að hyggja, að þetta sé
rétt lýsing á ástandinu, heldur mun mismunurinn liggja í því, hverj-
um augum læknar líta á þetta og* hvað þeir kalla grand í mat sínum.
I Keflavíkur eru 24%, í Vestmannaeyja 22%, í Bíldudal 17% og' í
Berufjarðar 16% með sjóngalla. Annars staðar gætir þess lítið og víða
ekkert. Eitt barn í öllum þessum héruðum hefir fundizt rangeygt. í
Vestmannaeyja eru 11% með heyrnardeyfu og í Berufj. 6%. Víðast
annars staðar ekki eitt einasta barn.
í einu héraði, Bíldudals, eru 20% af börnunum með höfuðverk, i 13
héruðum alls ekki og í öðrum aðeins minnst á þann kvilla.
í Skipaskaga eru 7% með chlorosis, annarsstaðar ekki eitt einasta
tilfelli.
í Vestmannaeyja eru 57% barnanna með stækkaða kokkirtla og í
ísafj. 2%. Merkilegt, ef nokkuð væri upp úr þessu leggjandi.
í Vestmannaeyja eru líka 55% af börnunum grunsamleg um berlda-
veiki og munu þar vera talin öll þau, sem reyndust Pirquet +, sem
nær ekki neinni átt. Annarsstaðar hæst 4% og í 9 héruðum ekki eitt
einasta barn. Og er þetta vitanlega tómt handahóf.
Einna fróðlegast í þessu sambandi er að bera saman skýrslur um
kvilla skólabarna í tveimur héruðum, sem liggja hvort að öðru og með
svipaða staðhætti og lifnaðarhætti, Patreksfj. og Bíldudals.
I Patreksfj. eru 9% barnanna lúsug og 16% ineð nit. í Bíldudals sést
ekki lús og nit í aðeins 3%. I Patreksfj. er ekkert barn með hrygg-
skekkju, í Bíldudals 6%. í Patreksfj. er ekkert barn með beinkramar-
merlci, í Bíldudals 3%. í Patreksfj. hittist ekki barn með sjóngalla, i