Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 68
66
mál snertir mest, eiga heimtingu á að í'á að vita nákvæmlega hvað
hér er leyfilegt, hvað óleyfilegt, hvað rétt og hvað rangt. En það
ligg'ur ekki við, að þær viti það eins og nú standá sakir, sein ekki
er við að búast, meðan læknar rugla þær í stað þess að leiðbeina
þeim.
Enn eru þessi fóstureyðingarmál ekki komin í verulegt óefni hér
á landi, til líka við það, sem tíðkast annars staðar, en til þess mun
vissulega draga ef við herum ekki gælu til að reisa skorður við með
skynsamlegum fyrirmælum og reglum áður en það er orðið of seint.
Vafalaust verður helzta ráðið það, að heimila hæfum læknum
að liðsinna konum í þessu efni, ekki eingöngu til að bjarga lífi þeirra
beinlínis, heldur einnig ef aðrar réttmætar ástæður eru fyrir hendi,
sem nánar verða skilgreindar. Að öðrum kosti hlýtur að fara svo,
hér sem annars staðar, að konur falli unnvörpum í hendur ræningja,
óvandaðra lækna, sem gera sér nevð þeirra að féþúfu eða skottu-
lækna, sem skaði þær í tilbót.
Sennilega hafa ýmsir Jæknar hér í Reykjavík séð þessa nauðsyn og
fyrir hana talið sér. skylt að fara ekki jafn einstrengingslega eftir
bókstaf laganna og þeir mundu annars hafa gert. En óneitanlega
væri betur sæmandi fyrir læknastéttina að leggja kapn á að fá laga-
bókstafnum breytt, en að vinna þessa verk alltaf í trássi við lands-
lög og rétt, oft undir ýmsu málamyndar yfirskyni og stundum jafn-
vel í ógeðslegu pukri eins og hver önnur óbótaverk.
Um fæðingarhjálp sína láta læknar þessa getið:
Rvík. Læknar hafa alls aðstoðað 92 fæðandi konur; venjuleg fæð-
ingarhjálp hjá 28 (töng, vending o. s. frv.), hitt deyfingar og pitui-
trininnspýtingar.
Skipaskaga. Fæðingar voru á árinu 46. 16 sinnuin var læknis vitjað
til sængurkvenna, 3svar til að deyfa við lok fæðingar, 11 sinnum til að
herða á sóttinni og deyfa, og 2svar til að leggja á töng.
Borgarfj. Ég var 7 sinnum sóttur til fæðinga. Ein þeirra var tvíbura-
fæðing hjá 19 ára stúlku, sem fékk eklampsia. Flogin byrjuðu skyndi-
lega í byrjun útfærslutímabilsins, voru þétt og hörð. Þegar ég kom,
byrjaði ég á Stroganoffsdeyfingu. Eftir 2 morfínskammta hættu flog-
in, urðu 10 alls, en fæðingunni miðaði ekkert úr því. Fósturhljóð góð
allan tímann. Var þá í narcose lögð töng á sitjanda fyrra barnsins og'
tókst að draga það frain. Síðan gerði ég vendingu og framdrátt á fót á
seinna barninu, var það mjög liflítið, fór fyrst að anda eftir 20 mín-
útna lífgunartilraunir. Móður og börnum heilsaðist mjög vel.
Borgarness. Var alloft sóttur til kvenna, sem voru að fæða, en oft-
ast var það aðeins til að deyfa og því um líkt. Engin verulega alvar-
leg tilfelli á þessu ári, og allt gekk það vel og slysalaust, sem að þessu
laut.
Ólafsvikur. Til sængurkvenna var læknis vitjað 4 sinnum á árinu.
í 2 tilfellum var aðeins deyfing'. Hjá einni konu var losuð föst fylgja
og framdráttur á barni með töng hjá annari.
Reykhóla. Tvisvar var læknis vitjað til þess að ná fylgju.
Patreksjj. Mín var 5 sinnum vitjað til kvenna í barnsnauð. Tilefnið
oftast sóttleysi, einu sinni plac. prævia. Helztu aðgerðir: 1 tangarfæð-