Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Qupperneq 77
75
yeiki — verða stálhraust eftir um 20 sólböð sumarið 1928. Siðastliðið
ár hófst ég handa með að útvega fé til þess að endurbæta sólbyrgið og
koma ujjp ljóslækningastöð, sem starfrækt yrði á vetrum fyrir þá, er
þess þyrftu. Gáfum við Ömólfur kaupmaður Valdimarsson á Suður-
ejTri sínar kr. 250.00 hvor, svo tókst mér að iitvega kr. 1500,00 styrk frá
Berklavarnafélagi íslands, og loks hafa safnast 400—500 krónur með
smágjöfum. Ljóslækningatækin eru þegar fengin, en hafa ekki tekið til
starfa ennþá. Hér í Önundarfirði hefi ég, eins og að undanförnu, lagt
allt kaj>p á að auka sjúkrasjóðinn. Fyrir dugnað þingmannsins okkar
tókst að útvega í hann kr. 2000,00 úr ríkissjóði, svo nú er loks því
marki náð, að hann megi fara að starfa, en samkvæmt reglugerð sinni
mátti hann ekki gera það fyrr en hann væri orðinn kr. 10000,00. Hann
var kr. 4600,00 fyrir þremur árum, en er nú orðinn nálægt kr. 1 1000,00,
og er það mikil aukning, þar sem jafnlitlir möguleikar eru á og hér.
Hér á Flateyri stofnaði ég félag', sem ber nafnið „Ljóslækningafélag
Önfirðinga“. Inntökugjald er 10 kr. og rennur til verkfærakaupa; auk
þess hefir félagið fengið kr. 200,00 styrk úr hreppssjóði og mjög ódýrt
rafmagn. Hvert Ijósbað hefir verið selt á kr. 0,45 fyrir börn, en kr. 0,80
fyrir fullorðna. Sjúkrasjóðurinn lánaði það fé, sem á vantaði til verk-
færakaupanna. Félagið hefir starfað mikið í vetur; nærri því allir, sem
notið hafa ljósbaðanna, hafa haft kirtlaveiki, beinkröm eða brjóst-
himnubólgu.
Hóls. Þess má geta, að við eigum hér sjúkraskýlissjóð, sem orðinn er
rúmar 18 þúsund krónur, og vona ég að hann verði að góðu liði, er
stundir líða.
ísafj. Legudagafjöldi meiri en nokkurn tíma áður og sjúklingaf jöld-
inn svipaður og hann hefir verið mestui'. Flestir sjúklingar á dag 56,
fæstir 43. Aðsókn að sjúkrahúsinu: ísafjarðarkaupstaður 97, Norður-
ísafjarðarsýsla 98, Vestur-ísafjarðarsýsla 18, Strandasýsla 8, Barða-
strandasýsla 5, Hunavatnssýsla 1, Reykjavík 5. Útlendingar 11. Ljós-
lækninga hafa notið á árinu 95 sjúklingar. Þar af voru 64 á sjúkrahús-
inu, allir berklaveikir, en 31 utan sjúkrahúss, allir berklaveikir nema
6. Byrjað var að starfa ineð Röntgentækjum með septembermánaðar-
byrjun. Til áramóta voru teknar 33 myndir af 28 sjúklingum. Voru 17
sjúklingarnir á sjúkrahúsinu en 11 utan sjúkrahúss. Auk þess voru 20
sjúklingar gegnumlýstir og voru 11 þeirra á sjúkrahúsinu, en 9 utan
þess.
Miðfj. Sjúkraskýlið hér var byggt ásamt læknisbústað 1918. Uppruna-
lega var ætlast til að næg'ja myndi fyrir 4 sjúklinga, og vil ég bæta því
við, að undir þeim kringumstæðum var afsakanlegt að ráða héraðsbú-
um til að byggja skýlið áfast við bústaðinn. Reynslan sýndi brátt, að
skýlið var að mun of lítið. Var þvi bætt við það 1926, þannig, að nú
rúmar það 7 sjúklinga. En að jafnaði neyðist maður til að hafa 8, 9
og jafnvel 10 sjúklinga í senn. Með aukinni velmegun manna og auk-
inni menntun héraðslækna leita menn tiðar lækna en áður var, og
leggja ennfremur mikla áherzlu á að þurfa eigi að leita út fyrir hér-
aðið. Ég set sem dæmi: Ekki of hátt reiknað, að ferð til Reykjavíkur
og botnlangaaðgerð þar ineð öllum kostnaði kosti ca. kr. 500.00, að
m. k. að vetrinum. Heima í héraði kostar allt, ef vel gengur, kr. 150