Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Blaðsíða 79
77
Hjúkrunarfélagið Líkn. Það gerir svofellda grein fyrir
störfum sínum á árinu:
Arið 1929 störfuðu 4 hjúk runarkonur við Hjúkrunarfélagið „Líkn“ í
Heykjavik. Störfuðu 2 þeirra eingöngu við heimahjúkrun, 1 hafði á
hendi starf Berklavarnarstöðvarinnar, og 1 hafði umsjón með Barna-
verndun ,,Liknar“, auk þess sem hún hjálpaði til við heimahjúkrun,
þe gar tími vannst til.
Heimilishjúkrunarkonurnar fóru 10310 sjúkravitjanir á árinu, vöktu
26% nótt og höfðu dagþjónustu 10% dag.
Berklavarnastöðin. Stöðvarhjúkrunarkonan fór í 2045 heim-
sóknir á heimilin. Til stöðvarinnar leituðu alls 460 sjúklingar, sem
voru skoðaðir. Þar af voru 85 nýir sjúklingar og skyldulið þeirra, sem
einnig var hlustað. Voru það 5 karlar, 16 konur og 65 börn. 26 sjúkl-
ingum var útveguð heilsuhælis- eða sjúkrahúsvist. 13 sjúklingar voru
Höntgenmyndaðir eða útvegaðar ljóslækningar. Af börnum á skóla-
aldri, er komu í fvrsta sinn til stöðvarinnar á árinu, voru 6 berkla-
veik.
Barnaverndun Líknar. Hjúkrunarkonan fór í 955 vitjanir á
heimilin. AIls fékk stöðin 94 nýjar heimsóknir af börnum og 313 end-
urteknar heimsóknir. 474 mæður leituðu til stöðvarinnar, og hafa því
verið 881 heimsóknir af mæðrum og börnum. Einnig leituðu 22 barns-
hafandi konur til stöðvarinnar. Þar af voru 13 nýjar og 9 endur-
teknar heimsóknir.
Önnur störf félagsins voru fólgin I útbýtingu nýrra og gamalla fata,
mjólkur- og lýsisgjafa og matargjafa. Auk þess voru lánuð rúm, rúm-
föt og barnaföt frá báðum stöðvunum. Af lýsi var útbýtt 800 lítruin og
gefnir voru 4170 lítrar af mjólk frá Berklavarnarstöðinni og 1267
lítrar af mjólk frá Barnavernduninni. Húsaleigustyrkur var veittur 2
sjúklingum frá Berklavarnarstöðinni.
Tekjur félagsins á árinu voru kr. 21689.40, en gjöld kr. 21115,36.
Bíldudals. Hjúkrunarfélagið „Samúð“ hefir haft eina hjúkrunar-
konu til aðstoðar sjúklingum og sængurkonum. Hefir hjúkrunar-
konan árskaup hjá félaginu kr. 400.00. Hjá sjúklingunum á hún að
fá frítt fæði og i dagkaup kr. 1.75 um sumarið og kr. 1.25 um
veturinn.
Akureyrar. Rauðakrossdeild Akureyrar. Félag þetta, sein telur um
100 meðlimi, vinnur töluvert gagn með því að hafa í þjónustu sinni
vel menntaða hjúkrunarkonu, og með þvi að halda uppi hjálparstöð
fyrir berklaveika og leiðbeiningastöð fvrir harnshafandi konur, og
mæður og börn. Jónas læknir Rafnar annast stöðina vegna berkla-
sjúklinga en ég að öðru leyti. Hjúkrunarsystirin gengur um bæinn
og hlynnir að sjúkum eftir tilmælum þeirra eða okkar læknanna.
1223 heimsóknir til sjúklinga hefir hún skráð á umliðnu ári og að
auki vitjaði hún 306 sinnum berklaveikra heimila til að hjálpa og'
leiðbeina. Ennfremur er hún skólahjúkrunarkona, er aðstoðar lækni
við skólaskoðun og lítur stöðugt eftir þrifnaði og heilsufari barnanna
og' heldur stutta fyrirlestra fyrir þau um heilsuvernd. Hjálparstöðin
hefir fengið 1000 kr. árlegan styrk frá Alþingi og annað eins úr
hæjarsjóði. Reynsla vor Akureyrarbúa með starf þessarar hjúkrun-