Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1929, Side 134
132
uppi sjúka, vernda hörnin, Ieiðbeina heimilunmn og hjálpa þeim við
varúð og hafa eftirlit með, að gætt só hollustu og hreinlætis eftir föng-
um. Það er ósannað, hvort slik þörf er á þeirri starfseini hér til sveita,
sem víða annars staðar, að öllu leyti, og óvíst, að rétt væri að taka
upp siði annara óbreytta, en athugavert er þetta atriði eigi að síður,
ekki sízt í Rvík og öðrum stærri bæjum vorum og enda 1 kauptún-
unum.
Guðinundur Hannesson prófessor hefir lagt það til, að rannsökuð
yrði berklasmitun í fleiri eða færri héruðum á landinu og síðan
framkvæmd bólusetning eftir fenginni reynslu. Ég vil fyllilega taka
undir þetta og gera þau orð að minum. Um bólusetningu eru þrjár
aðferðir til umræðu, svo sem kunnugt er, þ. e. Friedmanns aðferð með
skjaldbökuberklum, Langers aðferð með ungum berklabakteríum,
sem eru drepnar við 100° hita, og Calmettes aðferð með BCG. Fried-
manns aðferð mun ekki koma hér til greina, enn sem komið er.
Langers aðferð hefir þann kost, að hún er áreiðanlega hættulaus, en
reynslutíminn er enn of stuttur. Calmettes aðferð er einnig hættulaus,
að því er séð verður, og slysin í Lúbeck voru ekki henni að kenna
(sbr. t. d. Neue Deutsche Klinik, (i Bd., 1930, bls. 452), en reynslan
um hana fremur hvetjandi en letjandi.
Sé nú gert ráð fyrir, að Calmettés bólusetning yrði notuð hér hjá
oss, þá er það fljótséð, að erfitt yrði og víða líklega ókleift, að nota
BCG til inngjafar handa börnuni yngri en 10 daga gömlum. Hér á
landi fæðast ca 2b%0 á ári og er þá barnkoman 25—35 börn á ári í
flestum héruðum, eða 2—3 börn á mánuði. En ef útkoman við rann-
sókn reyndist yfirleitt svipuð því, sein orðið hefir í þessu héraði, þá
ætti þess heldur ekki að vera þörf í sveitahéruðunum, með nokkr-
um undantekningum.
Ég' hugsa mér tilhögunina þannig: Þá er smitun hefir verið rann-
sökuð í hverju héraði, eru öll börn bólusett, sem ósmituð eru, og þeir
unglingar ósmitaðir, sem það vilja, t. d. til 30 ára aldurs. Sé nú gert
ráð fyrir 3 ára innmuniteti, þá er því næst bólusett á 3 ára fresti í
hverju héraði. Eru þá frumbólusett börn 0—3 ára, en hin endur-
bólusett. Sé ekki unnt að bólusetja ungbörn þau, sein eru í mestri
hættu (á berklaheimilum), á 3 ára tímabilinu í héraðinu, þá ætti það
að vera vinnandi verk, að taka þau og' verja til næstu bólusetningar,
eða fara með þau í næsta hérað, ef bólusetningin færi ekki alstaðar
fram samtímis, sem ekki er gert ráð fyrir og af þessari ástæðu væri
ef til vill ekki æskilegt.
Að svo mæltu Ivk ég máli mínu og ber ályktanir mínar og tillögur
undir heilbrigðisstjórn og Læknadeild háskólans til þóknanlegrar at-
hugunar.