Fréttablaðið - 20.02.2021, Page 2
SAMGÖNGUMÁL Fargjöld í ferjuna
Sæfara, sem siglir milli Dalvíkur,
Hríseyjar og Grímseyjar, munu
hækka um 12 prósent í maí næst-
komandi samkvæmt áætlun Sam-
skipa og Vegagerðarinnar.
Endanleg ákvörðun liggur þó ekki
fyrir. Einnig er áætlað að farmgjöld
hækki um 14 prósent.
Bæjarráð Akureyrarbæjar hefur
mótmælt fyrirhuguðum gjald-
skrárbreytingum harðlega, en bæði
Hrísey og Grímsey tilheyra sveitar-
félaginu. Hilda Jana Gísladóttir
bæjarfulltrúi segir bæjarráð ekki
hafa fengið nein viðbrögð frá Vega-
gerðinni við mótmælunum, en þeim
er ekki síst beint til löggjafans.
Hilda segir að taka verði umræðu
um þjóðferjur til byggðra eyja, það
er að Vegagerðin skuli líta á ferjur
til þeirra eins og aðra þjóðvegi og
verði þá gjaldfrjálsar. Kostnaður sé
við almenna vegagerð, rétt eins og
ferjusiglingar.
„Þetta eru í rauninni veggjöld á
suma landsmenn,“ segir Hilda. Málið
sé í eðli sínu byggðamál, hvort sam-
félagið vilji styðja við byggð í eyjum.
„Fólk þorir ekki að segja hvar á að
vera byggð og hvar ekki. En aðgerða-
leysi er líka aðgerð.“ Með því að gera
fólki erfiðara og kostnaðarsamara
um vik að búa á ákveðnum stöðum
sé verið að veikja búsetugrundvöll-
inn.
Núverandi verðskrá Sæfara hefur
gilt frá árinu 2018. Samkvæmt henni
greiða fullorðnir 1.500 krónur fyrir
staka ferð milli Dalvíkur og Hrís-
eyjar og 3.000 til Grímseyjar.
Ekki er afsláttur gefinn fyrir miða
fram og til baka en ellilífeyrisþegar,
öryrkjar og börn, 12 til 15 ára, greiða
hálft gjald og ókeypis er fyrir börn
undir 12 ára.
Telur Hilda að ferðirnar ættu að
vera gjaldfrjálsar, að minnsta kosti
fyrir íbúa eyjanna. En ókeypis far-
gjöld fyrir alla myndu einnig styðja
vel við ferðaþjónustuna í þessum
byggðum, sem eru skilgreindar sem
brothættar.
Í Hrísey búa um 160 manns og
þar er meiri þjónusta á staðnum en
í Grímsey þar sem aðeins búa um
60 manns og mun lengra að sigla. Í
báðum eyjum eru íbúar sem þurfa
að fara oft upp á land til að sækja
þjónustu. Nefnir Hilda læknisþjón-
ustu og menntaskóla sem dæmi.
„Með hækkun fargjalda ímynda
ég mér það að vöruverð hækki í
eyjunum. Ef ég væri að reka verslun
og þyrfti að greiða aukalega fyrir
f lutning myndi ég þurfa að koma
því út í verðlagið,“ segir hún. Engin
verslanakeðja sé í eyjunum, sem lofi
sama vöruverði um allt land, heldur
aðeins litlar verslanir.
Tvær aðrar eyjur eru í byggð,
Heimaey í Vestmannaeyjum og
Flatey á Breiðafirði. Á Alþingi er nú
til umræðu frumvarp Karls Gauta
Hjaltasonar og 13 annarra þing-
manna Miðf lokks, Samfylkingar,
Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna
um þjóðferjur. En samkvæmt því
yrðu ferjurnar hluti af grunnkerfi
samgangna landsins.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Þetta eru í rauninni
veggjöld á suma
landsmenn
Hilda Jana Gísla-
dóttir, bæjarfull-
trúi Samfylkingar
Borgarmyndin breytist
Hörð mótspyrna gegn
verðhækkun í ferjum
Bæjarráð Akureyrar mótmælir hækkuðum fargjöldum og farmflutninga-
gjöldum í Sæfara, ferjuna út í Hrísey og Grímsey. Líta eigi á ferjurnar eins og
aðra þjóðvegi, því að aukinn kostnaður skerði búsetumöguleika í eyjunum.
Áætlað er að gjald í Sæfara hækki um 12 prósent í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Millimál í fernu
VÍTAMÍN
& STEINEFNI
PRÓTEIN GLÚTENS LAKTÓSAORKA
ÁN ÁN
Næring+ er á lista Sjúkratrygginga Íslands yfir niðurgreidd
næringarefni fyrir þá sem eiga gilda innkaupaheimild.
Verið er að rífa byggingu á horni Katrínar túns og Bríetar túns í Reykja vík. Þarna var GJ Fossberg hf. tíl húsa, eftir að fyrirtækið f lutti þangað árið
1965. Við hlið þessa húss stóðu áður höfuð stöðvar WOW air sem hætti starf semi árið 2019. Sú bygging hefur þegar verið rifin. FRÉTTA BLAÐIÐ/VALLI
SAMFÉLAG Miklar umræður hafa
skapast í Facebook-hóp íbúa í
Laugarneshverfi undanfarna daga
vegna ljósmynda sem voru birtar
þar af rusli sem hent hefur verið á
lóð á Hallgerðargötu.
Lóðin er í eigu Brynju, leigu-
félags Öryrkjabandalags Íslands, og
stendur við fyrrum höfuðstöðvar
Íslandsbanka á Kirkjusandi, sem
voru teknar úr notkun árið 2017
vegna myglu.
Að sögn íbúa í hverfinu hefur rusl
verið að safnast fyrir á lóðinni und-
anfarnar vikur og er líkast því að
einhverjir aðilar séu kerfisbundið
að henda úrgangi þar í stórum stíl.
Starfsmenn fasteignaumsjón-
ar Brynju gátu ekki tjáð sig um
málið að svo stöddu. – þsh
Gremja vegna sóðaskapar
Það kennir ýmissa grasa í ruslabingnum á Kirkjusandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FLUGMÁL Banda ríska f lug mála-
eftir litið fylgist með öllum flugum
Boeing -737 MAX véla með gervi-
hnöttum. Þoturnar eru aftur komn-
ar í notkun eftir tæp lega tveggja ára
kyrr setningu vegna tveggja f lug-
slysa þar sem 346 fórust.
Stofnunin hefur aldrei áður
stundað jafn víð tækt eftir lit með á-
kveðinni flug véla tegund og nær það
til f luga MAX-véla um heim allan.
Náið er fylgst með öllu ferli
vélanna, frá f lug taki til lendingar,
með nýrri tækni sem streymir gögn-
um frá vélunum á hálfrar sekúndu
fresti. Hægt er að sjá hversu oft hver
vél tókst á loft, hve lengi hún flaug
og ef eitt hvað kemur upp á.
Icelandair á MAX-vélar og hefur
fest kaup á fleirum. Félagið stefnir
að því að hefja flug með þeim í mars.
Nú er verið að þjálfa flug menn Icel-
andair í notkun þeirra. – þp
Gervi hnettir
fylgjast með
MAX-vélum
Fyrstu Boeing 737 MAX var flogið
2016. FRÉTTA BLAÐIÐ/SIG TRYGGUR ARI
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð