Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1964, Blaðsíða 147
— 145 —
1964
Vegna þess að ekki var tiltækur neinn sérmenntaður heilsueðlis-
fræðingur og ljóst, að nokkur tími hlaut að líða, þar til hann fengist,
var það tillaga landlæknis, að athugað yrði, hvort Þórður Þorvarðar-
son rafvélavirki, starfsmaður við röntgendeild Landspítalans, mundi
geta annazt skoðun röntgentækja og ýmsar nauðsynlegar geislamæling-
ar vegna geislavarna. Var talið nauðsynlegt, að hann dveldist erlendis,
væntanlega í Ósló, um 2ja mánaða skeið. 1 lok ársins 1964 dvaldist
hann á Statens Institutt for Strálehygiene í Ósló með styrk frá Evrópu-
ráðinu og kynnti sér framkvæmd geislavarna við skoðun röntgentækja.
Landlæknir hafði lagt til við ráðuneytið, að skipuð yrði nefnd vegna
geislavarna, og með bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, dags. 13.
Jan. 1964, var skipuð nefnd landlækni til ráðuneytis um framkvæmd
laga um öryggisráðstafanir gegn jónandi geislum frá geislavirkum
efnum eða geislatækjum, nr. 95/1962. I nefndina voru skipaðir prófess-
orarnir Magnús Magnússon og Þorbjörn Sigurgeirsson og Gísli Peter-
sen yfirlæknir.
Geislavamaeftirlit.
Samkvæmt fyrrnefndum lögum um öryggisráðstafanir gegn jónandi
geislum og reglugerð með þeim, skulu tæki, sem hæf eru til að fram-
leiða jónandi geisla, skoðuð eigi sjaldnar en annað hvert ár.
Landlæknir fól Páli Theodórssyni eðlisfræðingi og Þórði Þor-
varðarsyni rafvélavirkja að hefja skoðun og skrásetningu röntgen-
tsekja samkvæmt fyrrnefndri reglugerð, og fóru þeir dagana
14.'—25. ágúst um Vesturland, Vestfirði og Norðurland austur að
Akureyri. Til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar komust þeir þó ekki
vegna ófærðar. I ferð þessari voru röntgentæki á eftirtöldum stöð-
Uln skoðuð og skrásett: Sjúkrahúsið Akranesi, Kleppjárnsreykir,
Sjúkrahúsið Stykkishólmi, Búðardalur, Reykhólar, Patreksfjörður,
Líldudalur, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Sjúkrahúsið Isafirði,
Bolungarvík, Hólmavík, Hvammstangi, Blönduós, Skagaströnd,
Sauðárkrókur, Hofsós, Kristneshælið, Sjúkrahúsið Akureyri, Heilsu-
yerndarstöðin Akureyri, Dalvík. Auk þeirra tækja, sem skoðuð voru
1 þessari ferð, hafa tæki Landspítalans í Reykjavík verið skoðuð og
skrásett.
í skýrslu þeirra Páls og Þórðar segir orðrétt:
Ef röntgentæki hjá tannlæknum eru ekki talin með, mun nú vera
húið að skoða um 60% af röntgentækjum hér á landi.
Tækin voru fyrst skráð, og var þá gerð nokkuð ýtarleg lýsing á rönt-
gentækjunum, vinnuborði og öðrum aðbúnaði, eftir því sem ástæða
þótti til. Þá var frágangur tækjanna og öryggisbúnaður athugaður.
Læknarnir voru spurðir að því, hvernig tækin væru notuð, og um ár-
legan skoðanafjölda. Rétt notkun tækjanna og öryggisbúnaðar var
rætt og skýrt. Gengið var úr skugga um, að tækin verkuðu á allan hátt
19