Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1994, Page 20
Um helmingur kvennanna hefur að jafnaði verið starfandi á vinnumarkaði, um eða
yfir fjórðungur hefur verið í námi, um tíunda hver heimavinnandi og 2-3% hafa verið
atvinnulausar eða öryrkjar. Á þessu hefur þó orðið sú breyting nú allra síðustu árin að
hlutfall atvinnulausra og öryrkja hefur farið hækkandi og var komið í 10 af hundraði
hópsins árið 1993 en lækkaði síðan í rúm 6% árið 1994.
1.4.4 Ófrjósemisaðgerðir
Samkvæmt núgildandi lögum nr.25/1975 er ófrjósemisaðgerð heimiluð að ósk
einstaklings sé hann/hún fullra 25 ára og óski eindregið og að vel íhuguðu máli eftir því
og ef engar læknisfræðilegar ástæður eru til staðar, sem mæli gegn aðgerð. Sé
viðkomandi ekki fullra 25 ára er ófrjósemisaðgerð heimil eingöngu ef um sérstakar
aðstæður er að ræða, sem nánar er kveðið á um í lögunum.
Áratuginn 1981-90 voru gerðar að meðaltali 595 ófrjósemisaðgerðir á ári. Hlutur
karla í þessum aðgerðum var lengst af óverulegur eða að meðaltali 30 á ári þennan
áratug og varð ekki breyting á því fyrr en um og eftir 1993. Það ár voru framkvæmdar
alls 620 ófrjósemisaðgerðir á konum og 68 á körlum eða alls 684. Árið 1994 var
heildarfjöldinn 592, 514 aðgerðir hjá konum og 78 hjá körlum Langflestir þeirra, sem
gangast undir ófrjósemisaðgerð eru á aldrinum 35-44 ára.
(Kaflar 1.4.1 til og með kafla 1.4.4 voru samdir af Sigríði Vilhjálmsdóttur).
1.4.5 Dánartíðni
Á árinu 1994 dóu 1717 íslendingar (1752 árið 1993) og var dánartíðni þá 6,5 á
hverja 1000 íbúa. Dánartíðni hefur verið á bilinu 6-7 á hverja þúsund íbúa síðustu
áratugi. I byrjun aldarinnar var dánartíðni mun hærri en fór lækkandi er líða tók á
öldina.
1.4.6 Ævilíkur
Meðalævi íslenskra kvenna er nú tæplega 81 ár og er það svipað og meðal norskra og
sænskra kvenna. Japanskar konur eru þær einu sem lifa að einhverju marki lengur en
fyrmefndar konur og var meðalævi þeirra rúmlega 83 ár árið 1994. Islenskir karlar njóta
hvað lengstrar meðalævi í heiminum, eða tæplega 77 ár.
Eins og fyrr lifa konur að jafnaði lengur en karlar en dregið hefur saman með
kynjunum hér á landi. Nú lifa íslenskar konur að jafnaði 4,1 ári lengra en íslenskir karlar
en 1979/80 lifðu þær að jafnaði 6 árum lengur en karlar. í löndum með svipaða
meðalævilengd er munurinn oftast meiri, eða 5-7 ár.
16