Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1994, Page 24
2. Dánarorsakir
2.1 Inngangur
í kaflanum hér á eftir verður fjallað um algengustu dánarorsakir íslendinga og
algengustu dánarorsakir eftir aldri. Nákvæmari tölur um dánarorsakir árin 1993 og
1994, eftir kyni og aldri eru birtar í töflu B 2.1.
2.2 Skráning dánarmeina
Þrátt fyrir ýmsa annmarka eru tölur um dauðsföll meginuppspretta upplýsinga við
skipulag og mat á heilbrigðisþjónustu því flestar þjóðir hafa enn ekki nægilega
nákvæmar og yfirgripsmiklar upplýsingar um sjúkdóma og sóttafar. Dánartölur eru þess
vegna aðgengilegustu upplýsingamar þegar rannsakað er hlutfallslegt mikilvægi
algengustu heilbrigðisvandamála bæði á lands- og heimsmælikvarða. Dánartölur verður
þó að túlka með gát þegar um samanburð í tíma eða á milli landa er að ræða m.a. vegna
mismunandi greiningaraðferða og mismunandi aldurssamsetningar.
Dánartölur eru byggðar á dánarvottorðum þar sem tilgreindir eru sjúkdómar, áverkar
og kringumstæður sem valda dauða.
Greining dánarorsaka er í höndum einstakra lækna og má gera ráð fyrir nokkru
ósamræmi vegna mismunandi túlkunar þeirra. Til þess að draga sem mest úr því
ósamræmi sem þetta kanna að valda fer einn aðili, læknir, yfir öll dánarvottorð hér á
landi og leiðréttir þau ef með þarf og sér til þess að aflað sér nánari upplýsinga um
vafatilvik.
I tölulegri úrvinnslu á dánarvottorðum er aðeins ein dánarorsök valin til skráningar.
Þetta verður hins vegar að teljast bagalegt þar sem að þannig fást engar upplýsingar um
samverkandi þætti eins og t.d. ofneyslu áfengis.
2.2.1 Tíðni krufninga
Núorðið deyja flestir íslendingar á sjúkrahúsum eða öðrum sjúkrastofnunum, eða
80% árið 1994. Til samanburðar má geta að í Bandaríkjunum eiga um 60% dauðsfalla
sér stað á sjúkrahúsum, Danmörku 56%, Frakklandi 50%, Svíþjóð 79%, Bretlandi 66%
og Japan 67% (WHO 1995, bls. XUI-XV). Þá eru krufningar hlutfallslega margar hér á
landi og eru þær framkvæmdar við 38% dauðsfalla, í Bandaríkjunum er þessi tala 12%,
Danmörku 32%, Svíþjóð 37%, Bretlandi 24% og Japan 4% (sama heimild).
20