Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1994, Page 41
3.3.3 Lekandi
Lekandi hefur verið á hröðu undanhaldi undanfarin ár bæði á íslandi og í
nágrannalöndunum. Á íslandi hefur mest dregið úr sjúkdómnum síðan 1988. Árið 1994
voru tilkynnt 6 lekandatilfelli en til samanburðar má geta að árið 1988 voru 246
jákvæðar lekandaræktanir greindar hér á landi. Sama þróun hefur átt sér stað á öðrum
Norðurlöndum. Líklega eru tvær meginskýringar á þessari þróun, í fyrsta lagi breytingar
á smithæfni lekandabakteríunnar og í öðru lagi öflug leit smitbera, ný og kröftug
sýklalyf og e.t.v. að einhverju leyti árangur fræðsluherferða. Sú staðreynd að tíðni
klamydíusýkinga lækkar lítið á sama tíma styður þó ekki þá tilgátu að fræðsluherferðir
hafi orðið til að breyta verulega kynhegðun íslendinga (Sigurður B. Þorsteinsson, 1995,
bls. 522).
3.3.4 Klamydía
Tíðni klamydíusýkinga hefur farið vaxandi á undanfömum ámm og hefur ekki tekist
að hafa hemil á útbreiðslunni sem skyldi. Árið 1994 bámst 1225 tilkynningar um
sjúkdóminn og 1087 árinu áður, flestar fyrir einstaklinga á aldrinum 16-22 ára.
Sjúkdómurinn, sem er oft einkennalítill eða einkennalaus, er skaðvaldur þar sem hann
getur leitt til langvarandi bólgusjúkdóma í grindarholi kvenna og þannig skaðað m.a.
eggjastokka sem aftur getur leitt til ófrjósemisvandamála.
3.3.5 Penicillin ónæmir pneumókokkar
Lyfjaónæmi sýkla er vandamál sem hefur látið á sér kræla undanfarin ár. Hér á landi
hefur athyglin einkum beinst að penicillin ónæmum pneumókokkum, sem komu fyrst
fram á íslandi í desember 1988 (Karl G. Kristinsson, 1996, bls. 9). Árið 1993 höfðu
penicillin ónæmir pneumókokkar náð 20% nýgengi í pneumókokkasýkingum.
Utbreiðslan var hröð hér á landi á meðan nýgengið hélst lágt á hinum Norðurlöndunum.
Rannsóknir sýndu að ákveðnir áhættuþættir vega þungt, s.s. dagvistun á leikskólum,
mikil sýklalyfjanoktun í yngstu aldurshópnunum og miklar vinsældir ákveðinnar
lyfjablöndu (Trímetóptim-súlfa) (sama heimild, bls. 9-10).
Mikill áróður var gegn óhóflegri sýklalyfjanokun á árunum 1991-1993 og breytingar
urðu á kostnaðarhlutdeild sjúklinga. Notkun sýklalyfja minnkaði á leikskólum milli
áranna 1992 og 1995 og nýgengi penicillin ónæmra pneumókokka lækkað niður í 17%
árið 1994 (sama heimild).
37