Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 25
FÓKUS 25DV 26. FEBRÚAR 2021 festist ég í Aberdeen í marga daga vegna veðurs), gisti í hótelherbergjum sem lyktuðu eins og blautir ullarsokkar og át meintan mat af „room ser­ vice“ matseðlum. Í einni af þessum ferðum sendi ég ósk út í alheiminn. Ég óskaði þess að ég gæti eytt meiri tíma heima við í félagsskap barnanna. Ef ég væri ekki trúleysingi myndi ég draga þá ályktum að ég hefði verið bænheyrð á fullbókstaflegan hátt. Stuttu síðar kom heimsfaraldur og öllu var skellt í lás. Undanfarið ár hef ég eytt öllum stundum heima við, alltaf í félagsskap barnanna. Ég ítreka: alltaf. Ég er ekki svo sjálfhverf að ég telji að ég hafi valdið kóróna­ veirufarsóttinni en ef fólk vantar sökudólg í staðinn fyrir George Soros og Bill Gates þá er því velkomið að benda á mig.“ Það er stutt í grínið hjá Sif sem bætir við: „Þarna sannaðist hið fornkveðna: „Be careful what you wish for.““ Glundroði Skólar í Bretlandi hafa að mestu verið lokaðir síðan í mars 2020. „Þeir opnuðu að­ eins síðasta haust, en það entist ekki lengi. Þegar skól­ arnir hafa verið lokaðir höf­ um við maðurinn minn verið starfsfólk milli níu og fimm á daginn en líka kennarar, leikskólakennarar, matráðar, ræstitæknar, íþróttaþjálfarar og skemmtikraftar.“ Aðspurð um hvernig það sé að vera í fæðingarorlofi á Covid­tímum svarar hún: „Það er eins og veröldin hafi verið dæmd í fæðingarorlof með mér. Algeng tilfinning í fæðingarorlofi er FOMO, eða „fear of missing out“. Nú þegar allt er lokað og ekkert er að gera þarf maður ekki að óttast að maður sé að missa af neinu. Það er allavega léttir.“ Sif segir lítið vera til sem heitir venjulegur dagur hjá fjölskyldunni. Sjálfshjálpar­ ráðum rignir yfir heimsbyggð­ ina eins og eldi og brennisteini og flest ráða þau þjáðum að taka stjórn á hlutunum, skipu­ leggja lífið og fataskápinn eins og Marie Kondo. „En ef það er eitthvað sem heims­ faraldurinn hefur kennt mér er það einmitt þvert á móti, að láta af stjórn. Það eina sem er í dagatali „venjulegs“ dags um þessar mundir er glundroði. Til að koma einhverju í verk þarf maður að vera jafnsveigjan­ legur og fimleikastjarna, jafn­ mikið á tánum og ballerína og jafntilbúinn í slaginn og box­ ari. Ef skyndilega gefst stund til vinnu milli þess sem hjálpa þarf krökkunum í „heimaskól­ anum“, gefa þeim að borða, stilla til friðar þegar þriðja heimsstyrjöldin brýst út, er ekkert mikilvægara en að grípa hana og nýta hana vel.“ Klúður Covid­19 faraldurinn hefur leikið Bretland grátt og þó að smit sé á hraðri niðurleið eru enn að greinast að meðal­ tali 7.500 tilfelli á dag. „Bresk stjórnvöld hafa gripið til allra réttu ráðstafananna í faraldr­ inum. Þau hafa hins vegar alltaf gert það nokkrum mán­ uðum of seint. Nú síðast bárust fréttir af því að loks eigi að fara að hefja eftirlit á landa­ mærum vegna kórónaveirunn­ ar. Ferðamenn frá ákveðnum „áhættu“­löndum eiga að fara í sóttkví á hótelum. Ef fólk lýgur til um hvaðan það kom á það yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi. Ég held að margir foreldrar í Bretlandi sem hafa haft börnin sín heima öllum stundum síðastliðið ár líti á tíu ára fangelsi sömu augum og þeir líta ókeypis gistingu á spa­hóteli. Einkaherbergi með klósetti og matur innifalinn. Hvílíkt dekur. Það ríkir þó óvænt bjartsýni í baráttunni gegn kórónaveir­ unni í Bretlandi sem stendur. Bretum gengur vel að bólu­ setja. En spyrjum að leiks­ lokum. Bresk stjórnvöld hafa enn tíma til að klúðra málum eins og þeim einum er lagið.“ Plató og barnakúkur Að hverju ertu að vinna sem stendur – jú, því það er greini- lega ekki nóg að ala upp börn og sinna heimili ef maður er Íslendingur? „Ef umboðsmaðurinn minn hér í Bretlandi vissi að ég væri að spjalla við þig en ekki að skrifa í nýjustu bókinni minni sem ég ætlaði að vera búin með fyrir löngu myndi hún líklega skjóta mig. Ég er á lokasprettinum með nýja skáldsögu sem ég skrifa á ensku og á fyrstu köflunum í skáldsögu sem ég skrifa á ís­ lensku.“ Hvernig gengur að finna tíma í skrif með alla heima? „Ef maður er ekki nítjándu aldar Fjölnismaður mundandi fjaðurstaf í Köben held ég að það sé almennt erfitt að finna tíma og rými til skrifta en maður verður að berjast gegn því að hversdagsleikinn drepi niður andagiftina. Stundum er það þó áskorun. Til dæmis þegar maður situr við tölvuna í þvílíkum gír að vísa í Plató og Sartre og fattar svo allt í einu að maður er með barna­ kúk á handarbakinu,“ segir Sif sem skrifaði sinn fyrsta pistil í Fréttablaðið fyrir áratug. Pistillinn fjallaði um fyrir­ tæki sem Sif stofnaði á þeim tíma og líkti hún ferlinu við það að eignast barn. Er sú samlíking enn ofar- lega í huga þér og gætir þú hugsað þér að stofna annað fyrirtæki? „Það ætti að reka hverjum þeim kinnhest sem ekki hef­ ur eignast barn en ákveður samt að líkja einhverju við það að eignast barn. Ef mér tekst að finna upp tímavélina skal ég með glöðu geði heim­ sækja þessa yngri og barn­ lausu sjálfa mig og lesa henni pistilinn. Það eru þó einhver líkindi þarna. Þegar maður eignast barn og þegar maður stofnar fyrirtæki heldur maður stór­ huga í vegferð með vel skipu­ lagðar áætlanir í farteskinu. Yfirleitt verður ævintýrið þó allt öðruvísi en maður hafði planað.“ Fyrirtækið sem Sif vísar í er bókaútgáfa sem hún stofn­ aði og rak en seldi seinna For­ laginu. „Uppátækið þaut af stað og gekk vonum framar. Ég komst hins vegar að því að þótt ég elski bækur leiðist mér fyrir­ tækjarekstur. Það var dýrmæt lexía. Lífið er of stutt fyrir leiðinlega hluti.“ n Það ætti að reka hverjum þeim kinn hest sem ekki hefur eignast barn en ákveður samt að líkja einhverju við það að eignast barn. Sif Sigmars- dóttir er ofurhetja með penna. MYND/ ANTON BRINK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.