Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 36
36 MATUR 26. FEBRÚAR 2021 DV Engifer- og túrmerikskot 300 g engifer, afhýtt 4-5 greinar túrmerik rót, afhýdd 5 sítrónur, innvolsið 200 ml vatn Allt í öflugan blandara og geymt í flösku inni í kæli. Þorskhnakkar með hvítlauk og chilli 1 kg þorskhnakkar 50 ml avókadóolía 50 g smjör 2 hvítlaukar í neti 1 rauður chilli 1 box íslenskir tómatar 1 lúka pistasíuhnetur Steinselja eftir smekk ½ tsk. marokkóskt paprikukrydd (sterkt) 1 tsk. asískt fiskikrydd Salt og pipar Olía og smjör á pönnu. Hvítlaukur og chilli saxað smátt og sett út á pönnu, ásamt papriku, smátt skorinni. Tómatar í framhaldi. Sett yfir þorskhnakka í eldföstu móti og bakað í 200 gráðu heitum ofni í 10 mínútur, tekið út, pistasíuhnetum stráð yfir og aftur inn í ofn í tvær mínútur. Steinselja sett yfir þegar fiskurinn er fram borinn á borð. Borið fram með hýðishrísgrjónum eða bygggrjónum og grænu salati. Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Mataræðið má ekki vera of flókið Guðbjörg Finns rekur G fit heilsurækt og er sjálf í hörkuformi. Hún hugar vel að mataræðinu og telur það skipta miklu máli til að ná árangri. Matar- venjur hennar eru einfaldar og leggur hún áherslu á að borða hreina fæðu. G uðbjörg Sigr íður Finnsdóttir íþrótta-kennari hreyfir sig nær allan daginn í gegnum kennslu sína í G Fit og í fjar- þjálfun. „Fjarþjálfunartímar mínir krefjast þess að ég sýni æfingarnar vel og taki þátt allan tímann og það gefur mér hörkuæfingu. Ég kenni líka í þrjá daga í HÍ og þar er góður hópur sem mætir í hádeginu. Ég þarf því að huga vel að mataræði mínu og reyni að fá góða hvíld á milli.“ Mikilvægt að huga að mataræðinu Guðbjörg segir að það skipti miklu máli að huga að nær- ingunni til að ná árangri. „Ég er á því að ef þú hreyfir þig reglulega þá fylgi allt annað hollt miklu auðveldara með. Þú ferð að hugsa betur um hvað þú borðar og svefninn verður betri. Mataræðið má ekki vera of flókið til að fylgja því eftir. Því til sönn- unar eru alltaf að koma nýir matarkúrar eða aðferðir til að léttast, en flestir gefast upp á að fylgja fyrirmælum um boð og bönn. Það er ekkert spenn- andi að hlusta á að sú aðferð sem virkar best sé einföld: Borða sem mest hreinan mat, sneiða hjá sykri, velja holla fitu og borða nóg grænmeti. Svo er það skammtastærðin sem alltaf þarf að huga að, fer eftir því hvort þú vilt léttast eða þyngjast.“ Guðbjörg segist reyna að fylgja sem mest hreinu mat- aræði og fá rétt hlutföll af fitu, próteini og kolvetnum. „Enga orkudrykki á æfingu, vatnið er alltaf best,“ segir hún. Byrjar daginn á ofurdrykk „Ég byrja alla daga á því að fá mér eplaedik í vatnsglas, engifer- og túrmerikskot og rauðrófuduft frá Now. Ef ég er með einn tíma í fram- haldinu þá fæ ég mér ekki morgunmat fyrr en klukkan 10.30. En þrjá daga vikunnar vakna ég klukkan 5.20. Fæ mér morgunmat, sem er yfir- leitt ab-mjólk, ein matskeið mulin hörfræ, ein matskeið hampfræ og eitt lífrænt epli. Fæ mér svo vítamín. Um há- degið fyrir kennslu fæ ég mér mjög oft tvö egg, góða lúku af hreinum hnetum og bláber,“ segir Guðbjörg. „Þá er kominn tími á góða kaffibollann minn sem er espressokaffi og kollagenduft frá Feel Iceland, en þær bæti- efnavörur flokka ég frekar sem ofurhollan innmat. Ég næli mér alltaf í góða endur- heimt með því að fara í Sund- laug Garðabæjar og kaldi potturinn þar er algjör nautn. Þá næri ég mig með grænum ofurhollum drykk þar sem uppistaðan er grænkál/spín- at, sellerí, engifer, mangó og ýmislegt grænt og gott. Ég þarf meira en það og þá er það oft fræbrauð sem ég baka sjálf eða Lífskornabrauð og þá með kotasælu eða avókadó eða hreint skyr með granóla frá Náttúrulega gott.“ Einfalt, hollt og gott „Mér finnst gott að fá mér kaffibolla númer tvö fyrir kennslu seinnipartinn. Kvöld- maturinn er máltíð fjölskyld- unnar og við höldum okkur við sem mest hreina fæðu og ég elda sem mest frá grunni,“ segir hún. „Ég get bætt hvítlauki og chilli við nánast hvað sem er og það er einfaldlega besta kryddið. Við borðum mikið fisk og þorskhnakkar eru í algjöru uppáhaldi. Þessi upp- skrift er algjör veislumatur þó svo þetta sé mjög fljótlegt og þannig vil ég hafa það. Ein- falt, hollt og gott. Stundum langar mig að narta á kvöldin og þá er gott að fá sér medjool döðlur og kasjúhnetur og jú, stundum súkkulaðirúsínur.“ n Það er ekkert spennandi að hlusta á að sú aðferð sem virkar best sé einföld. Guðbjörg byrj­ ar alla daga á eplaediki og ofurskoti. Það er hægt að fylgjast með Guðbjörgu á Instagram, @gfitheilsu­ raekt. MYND/STEFÁN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.