Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Síða 36
36 MATUR 26. FEBRÚAR 2021 DV
Engifer- og túrmerikskot
300 g engifer, afhýtt
4-5 greinar túrmerik rót, afhýdd
5 sítrónur, innvolsið
200 ml vatn
Allt í öflugan blandara og geymt í flösku inni í kæli.
Þorskhnakkar með hvítlauk og chilli
1 kg þorskhnakkar
50 ml avókadóolía
50 g smjör
2 hvítlaukar í neti
1 rauður chilli
1 box íslenskir tómatar
1 lúka pistasíuhnetur
Steinselja eftir smekk
½ tsk. marokkóskt paprikukrydd (sterkt)
1 tsk. asískt fiskikrydd
Salt og pipar
Olía og smjör á pönnu.
Hvítlaukur og chilli saxað smátt og sett út á pönnu,
ásamt papriku, smátt skorinni. Tómatar í framhaldi.
Sett yfir þorskhnakka í eldföstu móti og bakað í 200
gráðu heitum ofni í 10 mínútur, tekið út, pistasíuhnetum
stráð yfir og aftur inn í ofn í tvær mínútur.
Steinselja sett yfir þegar fiskurinn er fram borinn á borð.
Borið fram með hýðishrísgrjónum eða bygggrjónum og
grænu salati.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Mataræðið má ekki
vera of flókið
Guðbjörg Finns rekur G fit heilsurækt og er sjálf í hörkuformi. Hún hugar
vel að mataræðinu og telur það skipta miklu máli til að ná árangri. Matar-
venjur hennar eru einfaldar og leggur hún áherslu á að borða hreina fæðu.
G uðbjörg Sigr íður Finnsdóttir íþrótta-kennari hreyfir sig
nær allan daginn í gegnum
kennslu sína í G Fit og í fjar-
þjálfun. „Fjarþjálfunartímar
mínir krefjast þess að ég sýni
æfingarnar vel og taki þátt
allan tímann og það gefur mér
hörkuæfingu. Ég kenni líka í
þrjá daga í HÍ og þar er góður
hópur sem mætir í hádeginu.
Ég þarf því að huga vel að
mataræði mínu og reyni að fá
góða hvíld á milli.“
Mikilvægt að huga
að mataræðinu
Guðbjörg segir að það skipti
miklu máli að huga að nær-
ingunni til að ná árangri. „Ég
er á því að ef þú hreyfir þig
reglulega þá fylgi allt annað
hollt miklu auðveldara með.
Þú ferð að hugsa betur um
hvað þú borðar og svefninn
verður betri. Mataræðið
má ekki vera of flókið til að
fylgja því eftir. Því til sönn-
unar eru alltaf að koma nýir
matarkúrar eða aðferðir til að
léttast, en flestir gefast upp á
að fylgja fyrirmælum um boð
og bönn. Það er ekkert spenn-
andi að hlusta á að sú aðferð
sem virkar best sé einföld:
Borða sem mest hreinan mat,
sneiða hjá sykri, velja holla
fitu og borða nóg grænmeti.
Svo er það skammtastærðin
sem alltaf þarf að huga að, fer
eftir því hvort þú vilt léttast
eða þyngjast.“
Guðbjörg segist reyna að
fylgja sem mest hreinu mat-
aræði og fá rétt hlutföll af fitu,
próteini og kolvetnum. „Enga
orkudrykki á æfingu, vatnið
er alltaf best,“ segir hún.
Byrjar daginn á ofurdrykk
„Ég byrja alla daga á því að
fá mér eplaedik í vatnsglas,
engifer- og túrmerikskot og
rauðrófuduft frá Now. Ef
ég er með einn tíma í fram-
haldinu þá fæ ég mér ekki
morgunmat fyrr en klukkan
10.30. En þrjá daga vikunnar
vakna ég klukkan 5.20. Fæ
mér morgunmat, sem er yfir-
leitt ab-mjólk, ein matskeið
mulin hörfræ, ein matskeið
hampfræ og eitt lífrænt epli.
Fæ mér svo vítamín. Um há-
degið fyrir kennslu fæ ég mér
mjög oft tvö egg, góða lúku af
hreinum hnetum og bláber,“
segir Guðbjörg.
„Þá er kominn tími á góða
kaffibollann minn sem er
espressokaffi og kollagenduft
frá Feel Iceland, en þær bæti-
efnavörur flokka ég frekar
sem ofurhollan innmat. Ég
næli mér alltaf í góða endur-
heimt með því að fara í Sund-
laug Garðabæjar og kaldi
potturinn þar er algjör nautn.
Þá næri ég mig með grænum
ofurhollum drykk þar sem
uppistaðan er grænkál/spín-
at, sellerí, engifer, mangó og
ýmislegt grænt og gott. Ég
þarf meira en það og þá er
það oft fræbrauð sem ég baka
sjálf eða Lífskornabrauð og
þá með kotasælu eða avókadó
eða hreint skyr með granóla
frá Náttúrulega gott.“
Einfalt, hollt og gott
„Mér finnst gott að fá mér
kaffibolla númer tvö fyrir
kennslu seinnipartinn. Kvöld-
maturinn er máltíð fjölskyld-
unnar og við höldum okkur
við sem mest hreina fæðu og
ég elda sem mest frá grunni,“
segir hún.
„Ég get bætt hvítlauki og
chilli við nánast hvað sem er
og það er einfaldlega besta
kryddið. Við borðum mikið
fisk og þorskhnakkar eru í
algjöru uppáhaldi. Þessi upp-
skrift er algjör veislumatur
þó svo þetta sé mjög fljótlegt
og þannig vil ég hafa það. Ein-
falt, hollt og gott. Stundum
langar mig að narta á kvöldin
og þá er gott að fá sér medjool
döðlur og kasjúhnetur og jú,
stundum súkkulaðirúsínur.“ n
Það er ekkert
spennandi að
hlusta á að
sú aðferð sem
virkar best sé
einföld.
Guðbjörg byrj
ar alla daga á
eplaediki og
ofurskoti. Það
er hægt að
fylgjast með
Guðbjörgu á
Instagram,
@gfitheilsu
raekt.
MYND/STEFÁN